Morgunblaðið - 17.04.2019, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Kolibri trönur
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
í hæsta gæðaflokki
á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
listavörum
WorkPlus
Strigar frá kr. 195
Þegar notandi segir Alexa eða OK
Google byrjar tækið að taka upp.
Sendir síðan upptökuna til gagna-
þjónustu sem greinir hvað var sagt
og sendir til baka fyrirmæli við hæfi.
Hvað Amazon varðar þá eru gögnin
send til tiltekinna starfsmanna sem
hlusta á fyrirmælin og skoða hvort
þau hafi verið
túlkuð rétt. Að
því fram hefur
komið í fréttum
eru hljóðbútarnir
tengdir raðnúm-
eri tækisins og
fornafni skráðs
eiganda.
Þetta kom
fram hjá Árna
Matthíassyni,
sem mætir í tæknihornið í síðdegis-
þætitnum á K100 á mánudögum og
fræðir þar hlustendur um ýmislegt
sem tengist tækni og græjum af
ýmsu tagi.
Fyrir tveimur árum var maður
sakaður um morð og lögregla vildi fá
upptöku úr Alexu frá Amazon. Ama-
zon neitaði en leyfði svo aðgang að
gögnunum eftir að eigandi þeirra
gaf leyfi sitt. Málið var svo látið nið-
ur falla.
Ekki er langt síðan lögregla krafði
Amazon um upptökur úr öðru morð-
máli þar sem talið var hugsanlegt að
upptökur gætu varpað ljósi á það
sem fram fór. Þess má geta að Ama-
zon fær um 2.000 beiðnir á ári frá
yfirvöldum um gögn sem fyrirtækið
á í fórum sínum, en greinir ekki op-
inberlega á milli þess hvaða þjón-
ustu gögnin snerta.
Annað dæmi er af konu sem var
að spjalla við eiginmann sinn með
Alexu við hliðina á sér. Alexu heyrð-
ist þá konan biðja um að samtalið
yrði hljóðritað og síðan að senda
ætti það til samstarfsmanns eig-
inmannsins, eða svo segja Amazon-
bændur í það minnsta, en fleiri dæmi
eru um að apparöt sem Alexa og Go-
ogle Home hafi numið skipanir sem
eigendur þeirra vissu ekki að þeir
væru að gefa.
Eftir því sem snjalltækjum fjölgar
á heimilinu berast meiri gögn til
Alexu og Google Home ef þau eru
notuð til að stýra snjalltækjunum, til
að mynda baðvoginni eða ísskápn-
um, og þá safnast enn meiri per-
sónuupplýsingar í sarpinn. Hægt er
að koma í veg fyrir að Alexu-
upptökur berist til eyrna lifandi
fólks með því að breyta stillingum í
Alexu-appinu. Það er líka hægt að
eyða öllum upptökum úr safni Alexu
en þá er maður líka að eyða því sem
græjan hefur „lært“ varðandi fram-
burð og fleira og þarf að byrja upp á
nýtt. Árni benti líka á að í raun væri
hægt að senda skipanir til Alexu
með svo hárri tíðni að mannseyrað
greindi hana ekki. Alexa gerir það
hinsvegar. Þannig væri hægt að búa
til lag sem væri fullt af skipunum til
Alexu um að gera ýmislegt, án þess
að eigandinn hefði hugmynd um.
Amazon segist hafa selt 100 millj-
ón Alexa-apparöt og tugmilljónir Go
Home hafa selst.
Rétt er að hafa í huga að íslenska
er ekki til sem viðurkennt tungumál
í Alexu enn sem komið er og því
óljóst hvort einhver hefur fyrir því
að hlusta á þá Íslendinga sem hafa
komið sér upp þessari tækni.
siddegid@k100.is
Hver er að hlusta?
Tæknihornið í síðdegisþættinum
Ekki er langt síðan lögregla krafði Amazon um upptökur úr öðru morðmáli þar
sem talið var hugsanlegt að upptökur gætu varpað ljósi á það sem fram fór.
Árni Matthíasson
Tækni Amazon og
Google eru langt
komin með að þróa
raddstýringa-
tækni.
um frá Nóa Síríus. Að auki verða
Grettisfígúrur faldar á svæðinu og
ef þú finnur Gretti færðu Grettis-
egg nr. 4. Síðast en ekki síst verða
á sveimi sérmerktir páskaungar
sem veita glaðning frá samstarfs-
aðilum okkar eða; 66 húfur frá
66°norður, fjölskylduspil frá Spila-
vinum, gjafabréf frá Keiluhöllinni,
gjafabréf frá Jóa útherja, gjafa-
bréf frá YoYo ís og Samsung
Galaxy S10-sími ásamt Galaxy
buds-heyrnartólum,“ segir Rakel
og það er greinilegt að það er til
mikils að vinna.
Auk þess verður boðið upp á
veitingar fyrir alla á meðan birgð-
ir endast.
Leitin hefst klukkan 10 í fyrra-
málið, það er á skírdagsmorgun,
og eru allir velkomnir í höfuð-
stöðvar Morgunblaðsins og K100 í
Hádegismóum við Rauðavatn.
Veðuguðirnir voru ekki með K100
í liði á laugardaginn sl. þegar hin
árlega páskaeggjaleit stöðvarinnar
átti að fara fram. Síðustu tvö ár
hefur páskaeggjaleitin farið fram í
Hádegismóum við Rauðavatn við
miklar vinsældir og þrátt fyrir að
veðrið hafi aftrað leitinni á laugar-
daginn á að reyna aftur á morgun,
skírdag.
„Það verður margt og mikið í
gangi. Leikhópurinn Lotta hitar
krakkana upp og það er enginn
annar en Ásgeir Páll sem ræsir
leitina,“ segir Rakel Júlía Jóns-
dóttir sölustjóri K100 sem hefur
veg og vanda af skipulagningu
leitarinnar ásamt sölu- og mark-
aðsteymi stöðvarinnar. Mörg
hundruð páskaungum verður
dreift um svæðið sem fólk á að
leita uppi. „Fyrir hvern unga sem
finnst fæst lítið páskaegg að laun-
Hundruð páskaunga
falin í Hádegismóum
Páskaegg Hundruð páskaunga verða falin í Hádegismóum. Páskaeggja-
leitin mun fara fram í Hádegismóum við Rauðavatn.