Morgunblaðið - 17.04.2019, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 17.04.2019, Qupperneq 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 Miðvikudagur 24. apríl. Kyrrðarstund í Kapellu vonarinnar kl. 12. Sumardagurinn fyrsti 25. apríl. Skáta- messa kl. 12.30 í samstarfi við skáta í Keflavík. Sr. Fritz Már þjónar fyrir alt- ari. KÓPAVOGSKIRKJA | Skírdagur. Fermingarmessa kl. 11. Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústs- dóttur djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors. Skírdagur. Helgistund kl. 13.15 í Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson leiðir stundina. Kór Kópavogskirkju syngur. Föstudagurinn langi. Messa kl. 11. Dr. Karl Sigurbjörnsson biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogs- kirkju syngur undir stjórn Lenku Má- téová, kantors kirkjunnar. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Sigurður Arnarson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors. Eftir guðs- þjónustu verður hátíðarkaffi í safn- aðarheimilinu Borgum í boði sóknar- innar, í umsjá kórs kirkjunnar. Kl. 9.45 mun Sögufélag Kópavogs leiða göngu um Hraunbraut. LANGHOLTSKIRKJA | Skírdagur. Fermingarmessa kl. 11. Guðbjörg Jó- hannesdóttir sóknarprestur og Jó- hanna Gísladóttir æskulýðsprestur þjóna. Organisti er Magnús Ragn- arsson. Félagar úr Kór Langholtskirkju syngja. Föstudagurinn langi. Guðsþjónusta kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sókn- arprestur þjónar. Organisti er Magnús Ragnarsson. Kór Langholtskirkju syng- ur. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 10. Ath. breyttan messutíma. Guð- björg Jóhannesdóttir sóknarprestur þjónar. Organisti Magnús Ragnarsson. Kór Langholtskirkju auk eldri félaga syngur. Sögustund og páskaeggjaleit barnanna fer fram á sama tíma í litla sal, Ósk Dís Kristjánsdóttir leiðir stundina. Morgunverðarhlaðborð að messu og sögustund lokinni. Sumardagurinn fyrsti. Fermingar- messa kl. 13. Guðbjörg Jóhann- esdóttir sóknarprestur og Jóhanna Gísladóttir æskulýðsprestur þjóna. Organisti er Magnús Ragnarsson. Fé- lagar úr Kór Langholtskirkju syngja. LAUGARDÆLAKIRKJA Í FLÓA | Skírdagur. Fermingarmessa kl. 13.30. LAUGARNESKIRKJA | Skírdagur. Sameiginleg kvöldmessa Laugarnes- og Ássókna í Laugarneskirkju kl. 20. Föstudagurinn langi. Hringadrótt- inssögumaraþon í safnaðarheimilinu kl. 10-22. Sameiginleg guðsþjónusta Laugarnes- og Ássókna í Áskirkju kl. 11. Guðsþjónusta Betri stofunni Há- túni 12 kl. 13. Guðsþjónusta kl. 14 Hjúkrunarheimilinu Sóltúni. Kyrrð- arbæn alla daga dymbilvikunnar kl. 17.30 í kirkjunni. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Kór Laugarneskirkju og Arngerður María Árnadóttir er organisti. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari. Sam- eiginlegur morgunverður í safn- aðarheimilinu á eftir. Sameiginlegur sunnudagaskóli Laugarness- og Ás- sókna í Húsdýragarðinum kl. 11. þri 23.4. Kyrrðarbæn kl. 20. mið 24.4. Helgistund Félagsmiðstöð- inni Dalbraut 18-20 kl. 14. Sumardagurinn fyrsti 25.4. Ferming- armessa kl. 11. LÁGAFELLSKIRKJA | Skírdagur. Fermingarguðsþjónustur kl. 10.30 og 13.30. Sr. Arndís Linn og sr. Ragnheið- ur Jónsdóttir þjóna fyrir altari og préd- ika. Kirkjukór Lágafellskirkju syngur og leiðir safnaðarsöng. Þórður Sigurð- arson organisti. Meðhjálpari Lilja Þor- steinsdóttir Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Prestur Arndís Linn. Kirkjukór Lága- fellssóknar syngur. Organisti Þórður Sigurðarson. Fiðluleikari Sigrún Harð- ardóttir. www.lagafellskirkja.is MIÐDALSKIRKJA Í LAUGARDAL | Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Söngkór Miðdalskirkju syngur. Sungnir verða hátíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteins- sonar. Organisti er Jón Bjarnason. MOSFELLSKIRKJA | Föstudagurinn langi. Tónleikar kl. 17. Flutt verður Sa- bat Mater eftir Pergolesi. Söngvarar: Erla Dóra Vogler mezzosópran og Lilja Guðmundsdóttir sópran. Þórður Sig- urðarson leikur á orgel. Lestur passí- unnar inni á milli söngkafla annast kórfélagar úr kirkjukór Lágafells- sóknar. Enginn aðgangseyrir. www.lagafellskirkja.is MOSFELLSKIRKJA Í GRÍMNESI | Guðsþjónusta föstudaginn langa kl. 20.30. Egill Hallgrímsson sókn- arprestur annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. NESKIRKJA | Skírdagur. Messa og máltíð í kirkjuskipinu kl. 18. Þau sem geta koma með. Brauði og víni er deilt út undir borðum. Prestur er Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Félagar úr Kór Neskirkju syngja undir stjórn Stein- gríms Þórhallssonar organista. Föstudagurinn langi. Helgistund kl. 11. Píslarsagan lesin og hugleidd. Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran og Nat- halía Druzin Halldórsdóttir syngja kafla úr Stabat Mater eftir Pergolesi. Stein- grímur Þórhallsson er við hljóðfærið. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Í fram- haldi ræðir Guðmundur Ingólfsson verk sín sem sýnd eru á Torginu. Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 8. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Stein- gríms Þórhallssonar. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið. Prestar kirkjunnar þjóna. Morgunkaffi og páskahlátur að messu lokinni. Fjöl- skylduguðsþjónusta og páskaeggjaleit kl. 11. Sr. Steinunn Arnþrúður Björns- dóttir leiðir stundina ásamt starfsfólki barnastarfsins. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Föstudag- urinn langi. Kvöldvaka kl. 20.30. Sr. Pétur þjónar fyrir altari. Píslarsöguna les Hannes Guðrúnarson. Hlín Ein- arsdóttir sópransöngkona syngur úr Bach-passíum föstudagsins langa. Óháði kórinn syngur undir stjórn Krist- jáns Hrannars. Ólafur Kristjánsson tekur á móti öllum við kirkjudyrnar. Páskadagur. Guðsþjónusta kl. 8. Sr. Pétur predikar og þjónar fyrir altari. Messugutti er Petra Jónsdóttir. Hlín Einarsdóttir sópransöngkona syngur úr Bach-kantötu páskadags og Óháði kórinn syngur undir stjórn Kristjáns Hrannars. Ballett frá Ballettskóla JSB. Ólafur Kristjánsson tekur á móti öllum við kirkjudyrnar. Brauðbollur og heitt súkkulaði í maulinu á eftir. REYNIVALLAKIRKJA Í KJÓS | Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 14. Kirkjukór Reynivallaprestakalls syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Ósk- arssonar. Sóknarprestur þjónar. Sumardagurinn fyrsti 25. apríl. Messa kl. 14. Fermt verður í messunni. Kirkjukór Reynivallaprestakalls syngur undir stjórn Guðmundar Ómars Ósk- arssonar. Sóknarprestur þjónar. SELFOSSKIRKJA | Skírdagur. Ferm- ingarmessa kl. 11. Föstudagurinn langi. Pílagrímaganga sem hefst með stuttri helgistund kl. 9.45. Gengið verður til Laugardæla- kirkju og þar hefst helgistund kl. 11.45. Göngustjórar eru sr. Axel Árna- son Njarðvík og sr. Ninna Sif Svav- arsdóttir. Hægt er að sækja helgi- stundir á báðum stöðum þótt fólk taki ekki þátt í göngunni. Göngufólk er beð- ið að koma vel skóað, klætt eftir veðri og með nesti. Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 8. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Ester- ar Ólafsdóttur, prestur Guðbjörg Arn- ardóttir. Morgunverður í boði og um- sjón sóknarnefndar Selfosskirkju í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. SELJAKIRKJA | Skírdagur. Ferming- armessa kl. 13. Föstudagurinn langi. Guðsþjónusta kl. 11, píslarsagan lesin, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og Kór Selja- kirkju syngur. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 8, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar, Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel og Kór Seljakirkju syngur. Boðið verður upp á morgunverð að guðsþjónustu lokinni. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 11. SELTJARNARNESKIRKJA | Skírdag- ur. Altarisganga og borðhald í kirkjunni kl. 18. Helgihald og sameiginleg mál- tíð í kirkjuskipinu að danskri fyrirmynd. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Org- anisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Fé- lagar úr Kammerkórnum leiða almenn- an safnaðarsöng. Fólk þarf að láta vita um þátttöku fyrir fram í síma 899- 6979. Föstudagurinn langi. Seltirningar lesa alla Passíusálmana frá kl. 13 til 18. Tónlistaratriði á milli lestra og kaffi á könnunni í safnaðarheimilinu. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Þóra H. Passauer syngur einsöng. Org- anisti er Friðrik Vignir Stefánsson. Fé- lagar úr Kammerkór Seltjarnar- neskirkju syngja. Melkorka Briansdóttir leikur einleik á flygilinn. Morgunmatur í safnaðarheimilinu eftir athöfn. SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Föstu- dagurinn langi. Dagskrá í tali og tónum kl. 11. Píslarsagan lesin ásamt völd- um passíusálmum. Söngur og tónlist á milli lestra. Félagar úr kór Seyðis- fjarðarkirkju leiða söng. Organisti er Rusa Petriashvili. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiðir stundina. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 9. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir al- mennan safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Rusa Petriashvili. Sr. Sig- ríður Rún Tryggvadóttir messar. Með- hjálpari er Jóhann Grétar Einarsson. Eftir stundina er morgunverður í safn- aðarheimili í umsjón fermingarbarna og foreldra þeirra. Hátíðarguðsþjón- usta á Fossahlíð hjúkrunardeild kl. 11. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa á skírdag kl. 20.30. Sr. Egill Hall- grímsson þjónar fyrir altari. Sr. Krist- ján Björnsson prédikar. Skálholtskór- inn syngur. Organisti Jón Bjarnason. Getsemanestund verður eftir mess- una Guðsþjónusta á föstudaginn langa kl. 16. Kristjan Björnsson Skálholts- biskup annast prestsþjónustuna ásamt Agli Hallgrímssyni sókn- arpresti. Skálholtskórinn flytur tónlist tengda deginum á milli lestra úr písl- arsögunni. Organisti Jón Bjarnason. Barnasamkoma á laugardaginn fyrir páska kl. 11. Umsjón hafa Bergþóra Ragnarsdóttir, djáknakandídat og Jón Bjarnason. Hátíðarmessa á páskadag kl. 8. Krist- ján Björnsson Skálholtsbiskup annast prestsþjónustuna. Jóhann I. Stef- ánsson leikur á trompet. Organisti Jón Bjarnason. Morgunverður í Skálholts- skóla eftir messuna. Hátíðarmessa kl. 14. Egill Hallgrímsson sókn- arprestur annast prestsþjónustuna. Skálholtskórinn syngur. Sungnir há- tíðasöngvar sr. Bjarna Þorsteins- sonar. Organisti Jón Bjarnason. SÓLHEIMAKIRKJA | Hátíðarguðs- þjónusta á páskadag kl. 14. Sr. Skírn- ir Garðarsson annast prestsþjón- ustuna. Organisti er Elísa Elísdóttir. STÓRA NÚPSKIRKJA | Hátíð- armessa á páskadag kl. 11. Kirkjukór- inn syngur undir stjórn Þorbjargar Jó- hannsdóttur. STRANDARKIRKJA | Föstudagurinn langi. Lesið úr Passíusálmum kl. 14. Guðmundur Brynjólfsson velur og stjórnar, Ester Ólafsdóttir spilar. TORFASTAÐAKIRKJA BISKUPS- TUNGUM. | Guðsþjónusta á föstu- daginn langa kl. 14. Prestur Egill Hall- grímsson. Organisti er Jón Bjarnason. ÚTHLÍÐARKIRKJA | Hátíðarguðs- þjónusta á páskadag kl. 16. Egill Hall- grímsson sóknarprestur annast prestsþjónustuna. Félagar úr Úthlíð- arkór syngja. Organisti er Jón Bjarna- son. Kaffisamsæti í Réttinni að messu lokinni. ÚTSKÁLAKIRKJA | Skírdagur. Messa með altarisgöngu kl. 17. Kór Hvalsnes- og Útskálasókna syngur undir stjórn Keith Reed. Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 8. Org- anisti: Kristín Jóhannesdóttir. Morg- unverður eftir messu. VILLINGAHOLTSKIRKJA Í FLÓA | Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 11. Söngkór Hraungerðis- og Villingaholts- sókna syngur undir stjórn Inga Heið- mars Jónssonar. Prestur Guðbjörg Arnardóttir. VÍDALÍNSKIRKJA | Skírdagur. Messa og afskrýðing altaris kl. 20. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir alt- ari ásamt messuþjónum. Sigurbjörn Þorkelsson predikar. Særún Harð- ardóttir og Erla Björg Káradóttir syngja og organisti er Jóhann Baldvinsson. Páskadagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Sr. Bjarni Karlsson þjónar fyrir altari og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar. Kór Vídalínskirkju syngur og organisti er Jóhann Baldvinsson. Særún Harð- ardóttir syngur einsöng og Ármann Helgason leikur á klarínett. Morg- unverður að lokinni guðsþjónustu í safnaðarheimilinu. VÍÐISTAÐAKIRKJA Í HAFN- ARFIRÐI | Skírdagur. Ferming- armessa kl. 10.30. Kór Víð- istaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur Bragi J. Ingibergsson. Föstudagurinn langi. Guðsþjónusta kl. 11. Jóhann Schram Reed og Emily Reed syngja. Organisti: Helga Þórdís Guðmundsdóttir Prestur: Bragi J. Ingi- bergsson. Páskadagur. Hátíðarmessa kl. 10. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmunds- dóttur. Prestur Bragi J. Ingibergsson. Páskaeggjaleit fyrir börnin. Boðið verður upp á heitt súkkulaði og með- læti í safnaðarheimilinu að messu lokinni. ÞINGMÚLAKIRKJA | Hátíðarguðs- þjónusta á páskadag kl. 14. Kór Þing- múla- og Vallanessókna syngur og leiðir söng. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. ÞINGVALLAKIRKJA | Messa við sól- arupprás á páskadag, kl. 5.50. Ein- faldur morgunverður að messu lok- inni. Hátíðarmessa kl. 14. Sönghópur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur syngur Hátíðasöngva Bjarna Þor- steinssonar. Organisti Guðmundur Vil- hjálmsson. Kristján Valur Ingólfsson predikar og þjónar fyrir altari í báðum messunum. ÞORLÁKSKIRKJA | Skírdagur. Há- tíðarmessa kl. 13.30. Fjögur börn fermd. Organisti Ester Ólafsdóttir. Kór Þorlákskirkju. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson ✝ Petter Amand-us Tafjord fæddist 25. júlí 1942. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu við Ferjuvað 7 þann 7. apríl 2019. Hann var frum- burður hjónanna Helgu Bogeyjar Finnbogadóttur verkakonu, f. 17. apríl 1924, d. 8. mars 1990, og Arne Perry Tafjord, liðsmanns norsku skíðaherdeildarinnar og verkamanns, f. 28. október 1922, d. 23. ágúst 2014. Systir Petters og annað barn þeirra hjóna er Jóna Valdís Taf- jord Árnadóttir, f. 3. október 1945, maki Birgir Vilhjálmsson, f. 1. febrúar 1944. Önnur sam- mæðra systkini Petters eru Guð- mundur R. J. Guðmundsson, f. 19. september 1954, maki Sól- veig Þórðardóttir, f. 30. desem- ber 1955, og Helga Andrea Guð- mundsdóttir, f. 31. janúar 1957. Samfeðra systkini eru: Per Ove Tafjord, f. 30. apríl 1947, maki Inge Lise; Knut Arve Tafjord, f. 20. mars 1949, maki Björg Ma- rit; Vigdis Vassbotn, f. 16. des- ember 1950, maki Helge Jörgen, og Frode Tafjord, f. 13. júní 1958, maki Linda Tafjord. Petter átti fimm börn, það elsta er Sigurrós Petra Tafjord, f. 21. janúar 1961, maki Ármann Þór Baldursson, f. 2. júní 1956, hana eignaðist hann með Guð- mundu Guðrúnu Björgvins- dóttur, f. 23. júní 1942. Eigin- kona Petters var Hallbjörg Jóhannsdóttir, f. 10. október 1945, d. 27 janúar 2018. Börn þeirra hjóna eru: Jóhann Árni Tafjord, f. 6. janúar 1964, maki Elín Svana Jónbjörnsdóttir, f. 17. apríl 1971; Kristján Helgi Tafjord, f. 28. janúar 1966, maki Jarþrúður Bjarnadóttir, f. 6. október 1960; Birna Tafjord, f. 3. júní 1967, maki Birgir Kristjáns- son, f. 26. febrúar 1966; Pétur Smári Tafjord, f. 9. mars 1979, maki Þórey Svana Þórisdóttir, f. 14. mars 1984. Barnabörnin eru 17 talsins og barna- barnabörnin 22. Petter fæddist í Sandgerði og bjó fyrstu árin með foreldrum sín- um hjá móðurömmu og afa. Hann fluttist tvívegis til Noregs eða þegar hann var á þriðja aldursári með foreldrum sínum og aftur um fermingu þar sem hann dvaldi hjá föðurfjölskyldu sinni í Álasundi. Hér heima bjó hann lengst af á Suðurnesjum þar sem hann gekk í barnaskóla Keflavíkur. Þegar Petter var á 19. aldursári kynntist hann Hall- björgu Jóhannsdóttur og hófu þau búskap skömmu síðar. Þann 26. október 1963 fór svo gifting þeirra fram. Framan af bjuggu þau hjónin ásamt börnum í Ytri- Njarðvík eða til ársins 1975 þeg- ar þau fluttu aftur til Reykjavík- ur. Frá árinu 1981-1995 bjuggu Petter og fjölskylda í Breiðholt- inu og svo aftur frá árinu 2003 til ársins 2018. Hallbjörg and- aðist í ársbyrjun 2018 og síðla sama ár flutti Petter í Norð- lingaholt í Reykjavík þar sem hann bjó síðustu mánuði lífs síns. Petter gegndi ýmsum störf- um um ævina. Starfaði hann meðal annars sem kokkur til lands og sjós, var bílstjóri og rak meðal annars eigið rútufyrir- tæki, starfaði í klúbbnum „Top of the Rock“ á Miðnesheiði, vann á skautasvellinu í Laugar- dal og hjá Gámaþjónustunni. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 17. apríl 2019, klukkan 13. Elsku pabbi, ég vildi bara þakka þér fyrir allan þann vís- dómsauð sem þú lést mér í té, allar samverustundirnar, og sím- tölin á kvöldin, ráðleggingarnar sem alltaf reyndust réttar, að vera alltaf til staðar, koma mér til manns, og vera mestur allra feðra. Hvílið í friði, elsku pabbi og mamma, nú eruð þið sameinuð á ný. Hjálp Gull- og silfurdyngjur stórar hef ég aldrei átt, og ekki er heldur viti til að dreifa; en feginn vildi’ ég hjálpa þeim, sem eiga eitthvað bágt, allt, sem mínir veiku kraftar leyfa. (KN) Takk fyrir allt. Pétur Smári Tafjord, Þórey Svana Þórisdóttir. Elsku afi. Mikið sem ég á eftir að sakna þess að koma í heimsókn til þín og spjalla klukkustundunum saman, í heimsókn sem átti nú bara að vera nokkrar mínútur. Þú hafðir alltaf lausnir við öllu og við gátum rætt allt milli himins og jarðar sem endaði oftast með gömlum sögum ofan af velli, hjá Kananum, sem við bræðurnir höf- um alltaf gert mikið grín að, í smá einkahúmor. Ein uppáhalds minningin mín af okkur er í Lada Sport-bílnum þínum sem ég gat samt aldrei sagt rétt og skírði ég hann þá bara Afa Sport, því það hentaði mér miklu betur og hét hann því nafni alla tíð eftir það. Ég vildi óska þess að þú hefðir ekki kvatt okkur svo skjótt. En minningarnar okkar lifa að eilífu og ég veit að þú ert kominn á betri stað núna hjá ömmu. Birgir Steinar. Elsku afi. Ég er ennþá að reyna að átta mig á þessu, þú fórst svo skyndi- lega frá okkur. Ég er svo þakklátur fyrir allar minningarnar sem ég á með þér og ömmu, t.d. Spánarferðirnar frægu og Noregsferðina þar sem við fórum á þínar heimaslóðir. Það var alltaf svo gott að tala við þig um allt og ekkert. Þú hafði svör við öllu og áttir hafsjó af sögum. Þú varst vanur að biðja mig um að gefa þér plástur (faðmlag) sem gerði svo mikið fyrir okkur báða. Við áttum svo góða stund saman rétt áður en þú kvaddir seint á laugardagskvöldi. Þá sagðir þú mér svo margt sem þú hefur ekki sagt mér áður og það finnst mér mjög dýrmætt. Ég veit að núna ertu kominn til elsku ömmu og þið kannski farin að fá ykkur KFC saman. Þinn plástur Hallur. Petter Amandus Tafjord Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.