Morgunblaðið - 17.04.2019, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 17.04.2019, Qupperneq 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 Elsku afi minn er látinn. „Afi doggy go home“ – ég var einungis um tveggja ára gömul þegar ég lét þessi fleygu orð falla við afa. Á þeim tíma bjuggum við fjölskyld- an á Englandi og amma og afi voru í heimsókn. Afi ætlaði held- ur betur að slá í gegn hjá barna- barninu og skreið um gólfið eins og hundur til að ganga í augun á mér en það gekk ekki betur en svo að ég sneri upp á mig og bað hann vinsamlegast um að fara heim með fyrrnefndri setningu. Oft átti afi eftir að rifja upp þessi ummæli síðar meir og raunar voru það síðustu orðin hans þeg- ar ég heimsótti hann í hinsta sinn um miðjan febrúar sl. Er ég var að ganga út úr herberginu heyrði ég hann segja „afi doggy go home“ og hlæja lágt. Já, afi var ótrúlegur karakter sem skipaði veigamikinn sess, ásamt ömmu heitinni, í barnæsku minni og fram á fullorðinsár. Heimili þeirra var ávallt opið fyrir fjöl- skyldumeðlimi og ófáar minning- ar úr eldhúskróknum hjá ömmu og afa á Hlíðarveginum og síð- Guðmundur Sigurðsson ✝ GuðmundurSigurðsson fæddist 25. apríl 1925. Hann lést 6. apríl 2019. Útför Guð- mundar fór fram 15. apríl 2019. ustu árin í íbúðinni þeirra við Kópa- vogsbraut. Og alltaf var boðið upp á dýr- indis veitingar með góðu spjalli. Bæði höfðu óskaplega gaman af að ræða um fyrri tíma, góða sem slæma, og því er óhætt að segja að ég og aðrir afkom- endur hafi haft góða innsýn í líf þeirra frá blautu barnsbeini. Afi var reyndar ekki mikið fyrir að sitja kyrr og hann þurfti alltaf að vera eitthvað að stússa, hvort sem það var í bíl- skúrnum að mála, í garðvinnu í fallega verðlaunagarðinum á Hlíðarveginum eða við að búa til flotta trékalla í geymslunni í íbúðinni við Kópavogsbraut sem urðu eftirsóknarverðir á meðal afkomenda. Afi var ekki bara verklaginn og listrænn, hann hafði líka mikl- ar skoðanir á samfélagsmálum en afi var jafnaðarmaður í húð og hár og tókst honum að sannfæra margan afkomandann um ágæti jafnaðarhugsjónarinnar með þrumuræðum við eldhúsborðið. Slíkur var áhuginn að hann átti jafnvel til að vekja ítrekað máls á framboði afkomenda til þings/ bæjarstjórnar sem hann taldi til þess fallna að bjóða sig fram. Afi var líka sparsamur með eindæmum sem gerði það að verkum að óhætt er að segja að hann hafi verið gott dæmi um ak- tívan umhverfissinna. Matarsó- un var lítil sem engin á heimilinu, hann ræktaði sitt eigið græn- meti, allur matarúrgangur fór á beðin úti í garði, hann passaði líka upp á smáfuglana í garðinum sínum og það gat verið meiri- háttar mál að fá hann til að klæð- ast nýrri flík. Oftast endaði hún í skápnum hans í nokkur ár áður en hann fékkst til að byrja að ganga í henni. En hvað stóð upp úr hjá afa þegar hann horfði yfir farinn veg undir lok ævikvöldsins? Það stóð ekki á svari hjá gamla manninum – það voru afkomendurnir og að hafa haft tækifæri til að ferðast en amma og afi voru dugleg að ferðast með góðum hópi vina frá miðjum aldri. Nú er afi doggy genginn á vit feðra sinna. Elsku afi, takk fyrir óteljandi samverustundir og góðar minn- ingar síðustu 45 árin, takk fyrir umhyggjuna og endalausa upp- sprettu hrósyrða í minn garð og takk fyrir skemmtilegu sér- viskuna sem einkenndi þig og raunar fleiri úr Njálsgötuætt- inni. Minning þín lifir. Anna Jörgensdóttir. Elsku afi. Þú varst algjör garðálfur á Hlíðarveginum. Þar undir þú þér best við að rækta garðinn þinn. Aspirnar stækkuðu með hverju barnabarninu sem bættist í hóp- inn og öll voru þau velkomin að hjálpa til. Þú varst með fimm liti af lúpínum, ræktaðir rifsber, gul- rætur, kartöflur, rabarbara, graslauk og sólber. Þá er ónefnt blómabeðið og garðurinn sem var bæjarprýði og þú varst verð- launaður fyrir. Þú týndir gull- hringnum þínum í kartöflugarð- inum eitt sinn og þá vorum við Gummi og Siggi fengnir til að hjálpa við að stinga garðinn upp og leita með málmleitartæki en fundum bara gamlar skrúfur og nagla. Aspirnar í garðinum fengu framhaldslíf þegar þú byrjaðir að skera út trékarlana og ekki vantaði upp á nýtnina, ýmislegt drasl var skrúfað eða límt á fallegu karlana. Það var virkilega gaman að setja upp sýningu með þér og körlunum þó að þér hafi ekkert litist á hug- myndina til að byrja með. Þú varst vanur að hlýða Ólöfu Dóm- hildi svo ég fékk þig út í þessa vitleysu eins og þú orðaðir það. Fréttir um bensínhækkanir höfðu alltaf veruleg áhrif á þig. Þá dreifst þú þig út og fylltir á bílinn fyrir miðnætti. Smjör keyptir þú á útsölu og svolgraðir í þig súran rjómaafgang frekar en að henda. Þú passaður upp á að ganga um húsið og slökkva öll ljós, lækka hitann á ofnunum þegar þið amma fóruð í ferðalag, safn- aðir lífræna úrganginum, hentir engu sem gæti nýst og gafst fuglunum matarafgangana. Þú nýttir allt sem hægt var. Það var þitt mottó. Það var reyndar kvartað svolítið yfir nýtninni þegar þú fluttir í Sunnuhlíð og þú hentir matarafgöngum fram af svölunum fyrir fuglana. Þú vildir gera vel við alla í kringum þig. Þú keyptir Spur cola og appelsín í flösku fyrir okkur krakkana, áttir alltaf Tóp- as í vasanum til að bjóða upp á og suðusúkkulaði í skúffunni inni í stofu sem við laumuðumst í. Hins vegar var alltaf stutt í nýtnina. Þú varst staðinn að því að hella RC cola yfir á ½ l Coca-Cola- flöskur til að reyna að spara nokkrar krónur og gleðja barna- börnin. Amma skammaði þig þá og skipaði þér að sækja nýtt kók. Þú sagðir Sigga hafa kennt þér þetta góða ráð og eftir það gekk þessi drykkur undir nafninu Siggakók í fjölskyldunni. Það má segja að þú hafir verið langt á undan þinni samtíð í um- hverfisvernd en þú gekkst til vinnu og notaðir bara bílinn um helgar og þá gjarnan til að bjóða okkur í ísbíltúr á Dairy Queen vestur í bæ. Þú vílaðir ekki fyrir þér að ganga í fötum af ömmu sem hún var hætt að nota til þess að nýta þau til fullnustu, við gerðum mikið grín að því. Við vorum svo heppin að eiga svona litríkan afa, alltaf varstu svo kátur og glaður að sjá þitt fólk. Það var alltaf gott að koma til ykkar ömmu á Hlíðarvegi, amma í eldhúsinu að baka pönnukökur og þú að stússast eitthvað. Í seinni tíð var vinsælt hjá barnabarnabörnunum að kíkja við hjá þér enda var faðm- urinn alltaf opinn, hrósaðir og hvattir þau í því sem þau eru að gera. Við erum heppin að hafa feng- ið að hafa þig hjá okkur í svona mörg ár og minningin mun lifa. Hvíl í friði, elsku afi, Sigurður (Siggi), Guðmundur (Gummi) og Ólöf. Elsku afi Gummi. Okkur þykir svo vænt um allar minningarnar sem koma upp í hugann þegar við hugsum um þig. Hversu gott það var alltaf að koma á Hlíðar- veginn (og síðar í Sunnuhlíð) til þín og ömmu. Hjartahlýja ein- kenndi þig alla tíð og hvernig þú sýndir væntumþykju þína gagn- vart þínum nánustu óspart, alltaf var tekið á móti manni með brosi og innilegu faðmlagi. Þú fylgdist svo áhugasamur með öllu því sem við systkinin vorum að gera hverju sinni og alltaf þegar við hittumst spurðir þú hvað væri að frétta af hinu og þessu hjá okkur, allt fram á síðasta dag. Það er svo gott að hugsa til þess að þú fékkst að halda koll- inum þokkalega heilum alveg fram á síðasta dag. Það er líka gott að hugsa til þess hvað þér leið vel í Sunnuhlíðinni síðustu mánuðina. Í heildina litið áttirðu gott ævikvöld þótt það hafi verið höggvið stórt skarð í það þegar amma Lilla fór. Það er því fyrst og fremst þakklæti sem kemur upp í hug- ann þegar við lítum yfir farinn veg saman. Þakklæti fyrir að hafa átt svona góðan afa og þakklæti fyrir allar minningarn- ar. Og svo núna þegar þú ert far- inn þá er huggun í því að þú fáir loksins að hitta ömmu aftur. Afi, þú varst einstakur maður; hjartahlýr, góður, örlátur, stund- um svolítið sérvitur, listrænn og duglegur. Á margan hátt fyrir- mynd fyrir okkur systkinin. Það er dýrmætt að eiga ótal minningar um allar góðu sam- verustundirnar okkar í gegnum árin. Takk fyrir öll faðmlögin, skil- yrðislausu ástina og endalausu trúna sem þú hafðir á okkur, elsku afi. Guðmundur Dagur, Unnar og Berta. ✝ Sigríður Brynj-úlfsdóttir fædd- ist 16. mars 1947. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Skógarbæ í Reykja- vík 2. apríl 2019. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Pétursdóttir frá Hergilsey, f. 23.8. 1905, d. 19.7. 1959, og Brynjúlfur Dagsson héraðslæknir frá Gaul- verjabæ, f. 9.9. 1905, d. 23.2. 1963. Seinni kona Brynjúlfs og stjúpmóðir Sigríðar var Ingi- björg Jónsdóttir, f. 13.6. 1900, d. 19.4. 1967. Systkini Sigríðar voru: 1) Dagur, f. 12.4. 1934, d. 14.8. 1978, 2) Guðrún, f. 3.11. 1938, d. 29.3. 1951, 3) Þórlaug, f. 15.6. 1940, d. 15.9. 1980, 4) Unnur, f. 10.5. 1942, d. 2.1. 1966. Hálf- systkini Sigríðar voru Pétur sammæðra og Hulda samfeðra. Arnfríður Kristrún, f. 1983. Maki Magnús Gabriel Haralds- son. Börn þeirra eru Gabriel, Sólon og nýfædd stúlka. Sigríður fæddist á Hvamms- tanga og ólst þar upp til átta ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan í Kópavog þar sem faðir hennar var læknir. Þar gekk hún í barnaskóla og lauk síðan gagn- fræðaprófi frá Reykjaskóla í Hrútafirði. Rúmlega tvítug flutti Sigríður ásamt fyrri manni sín- um til Danmerkur og dvaldi þar í fimm ár. Árið 1975 hóf hún nám í Fósturskóla Íslands og útskrif- aðist sem leikskólakennari 1978. Sigríður starfaði við fag sitt meðan heilsan leyfði. Hún var um árabil forstöðumaður á skóladagheimili sem Landakots- spítali rak, var leikskólakennari á leikstofu Barnaspítala Hrings- ins og í ýmsum leikskólum í Reykjavík. Sigríður var áhugamanneskja um söng og tónlist og lék bæði á píanó og gítar. Lestur bóka, dag- bókarskrif og ýmislegt grúsk, m.a. draumar og þýðing þeirra, var henni einnig hugleikið. Útför Sigríðar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 17. apríl 2019, klukkan 11. Þau eru bæði látin. Á gamlársdag 1967 giftist Sigríð- ur æskuvini sínum Jóni Vattnes Krist- jánssyni rafsuðu- manni, f. 22.7. 1945, d. 26.1. 1982. For- eldrar hans voru Lovísa Helgadóttir og Kristján Vattnes Jónsson. Árið 1979 ættleiddu Sigríður og Jón systurson Sigríðar, Dag Thomas Vattnes Jónsson, f. 4.7. 1978. Börn hans eru Marinó og Kamilla og hennar sonur er Mikael Andri. Árið 1989 giftist Sigríður Sveini Viðari Stefáns- syni húsasmíðameistara, f. 24.9. 1949, d. 17.10, 2010. Foreldrar hans voru Arnfríður Kristrún Sveinsdóttir og Stefán Guð- mundsson. Börn Sveins eru: 1) Óskar, f. 1967. Maki Ásta María Traustadóttir. 2) Rakel, f. 1974. Sonur hennar er Eiður Darri, 3) Elsku Sigga mín. Fyrir tilviljun settumst við hlið við hlið og þar með hófst ævilöng vinátta. Það var í september 1975, báðar að hefja nám til að verða leikskólakennar- ar. Við komum hvor úr sinni átt- inni, ólíkar sem dagur og nótt en smullum strax saman. Ég sveita- stelpan að koma beint úr mennta- skóla, þú borgarbarnið úr skóla lífsins. Ég átti fjölmenna fjöl- skyldu, en margir þínir nánustu voru fallnir frá. Mér fannst mín reynsla litlaus miðað við það sem þú hafðir þá þegar gengið í gegn um, en við bættum hvor aðra upp, Sigga Bé og Bagga Bja. Það heill- aði mig hvað þú varst hress og hæfileikarík, spilaðir á gítar og pí- anó, samdir vísur og lög, raddaðir söng og stjórnaðir skemmtiatrið- um ef því var að skipta. Árin í skólanum voru skemmti- leg og áhyggjulaus. Við lærðum saman, studdum hvor aðra í nám- inu, unnum svo saman í eitt ár og bjuggum saman um tíma. Við djömmuðum líka saman og það var oft glatt á hjalla og mikið fjör. Þú varst stuðbolti og elskaðir að hafa margt fólk í kring um þig, hrókur alls fagnaðar annaðhvort við pí- anóið eða með gítarinn. Eflaust helgaðist það af því að nánasta fjöl- skylda þín var ekki til staðar en það markaði líf þitt alla tíð. Þú öf- undaðir mig fyrir að eiga foreldra, mörg systkini og börn. Mitt fólk varð á vissan hátt þitt fólk fannst mér. Þú hafðir einlægan áhuga á fjölskyldu minni, fylgdist með og spurðir frétta. Börnin mín minnast Siggu vinkonu með hlýju. Fyrir nokkrum árum baðstu mig um að vera mamma þín og kallaðir mig stundum „mömmu“. Við grínuð- umst oft með þetta en að baki var samt sem áður nokkur alvara. Þú tókst á við áföll í bernsku og einnig á fullorðinsárum. Það var mikið reiðarslag þegar Nonni dó, þá dró ský fyrir sólu. Andlegur heilsubrestur setti mark sitt á þig eftir það, stundum mikið en á milli komu góð tímabil. Þegar Svenni dó lét líkamleg heilsa líka undan og gaf sig að lokum. Það sem á þig var lagt var ómannlegt og nær ótrúlegt að upp reistu aftur og aft- ur. Þú varst lágvaxin og nett, en samt stór. Þú varst sannkölluð hvunndagshetja. Góður húmor og léttlyndi þitt hafði þar mikið að segja. Síðustu árin voru þó strembin, þú einangraðir þig smátt og smátt, valdir einfalt líf og fáeina vini til að umgangast. Við ræddum oft um tilgang lífs- ins og dauðann. Við vorum sann- færðar um að næsta líf hlyti að verða þér hliðhollara. Samveran sem við áttum síðustu nóttina þína var mér afar dýrmæt og fyrir hana og allar okkar stundir er ég þakklát. Farðu í friði elsku Sigga mín. Ég hugsa til þín í Sumarland- inu og veit að þar líður þér vel um- kringd ástvinum þínum. Guð geymi þig. Þín vinkona Björg Bjarnadóttir (Bagga). Sigríður Brynjúlfsdóttir janúar 1955 og sinnti þar bú- skap á Geithellum um skeið. Árið 1980 fluttu Ólafur og kona hans Jóna Benedikta Júlíus- dóttir til Vopnafjarðar, heima- bæjar hennar, þar sem þau eignuðust og ólu upp börnin sín Júlíönnu Þórbjörgu, Rannveigu Hrund og Hafliða Frey. Ólafur var fróðleiksfús og bókelskur. Hann var virkur í félagsmálum og gaf sig gjarnan að þeim. Hann var í kirkjukór, karlakór og samkór Vopna- fjarðar og dofnaði heldur yfir tenórnum ef Óla vantaði á æf- ingu. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum s.s. for- mennsku í Rauðakrossdeild Vopnafjarðar, varamennsku í sveitarstjórn, hann var for- maður sóknarnefndar í Vopna- fjarðarkirkju, fulltrúi Aust- fjarðaprófastsdæmis á kirkjuþingi og gegndi nú síðast formennsku í stjórn Héraðs- skjalasafns Austurlands fyrir Vopnafjarðarhrepp. Hann var fulltrúi sjómanna í verkalýðs- hreyfingunni á Austurlandi enda togarasjómaður um ára- bil. Lengst af var hann starfs- maður og umsjónarmaður hinn- ar víðfrægu og vel staðsettu Sundlaugar í Selárdal og var þar fastur liður í tilverunni. Þeir sem lærðu sund í Sund- lauginni í Selárdal sem börn muna vel eftir Óla, enda minnisstæður og vinalegur og ævinlega tilbúinn að leysa börnin út með kremkexi sem margir vita ekki betur en heiti „Ólakex“. Ferðamenn sem komu reglu- lega til Vopnafjarðar voru komnir í kunningsskap við Ólaf og áttu í kumpánlegum sam- skiptum við hann í heimsóknum sínum í laugina. Það er mikill missir að Ólafi Valgeirssyni, sem var stór hluti af hversdeginum á Vopnafirði og starfsmaður sveitarfélagsins til áratuga. Fyrir hönd starfsfólks Vopnafjarðarhrepps votta ég fjölskyldu og vinum Ólafs okk- ar dýpstu samúð. Þór Steinarsson sveitarstjóri. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GYLFI LÁRUSSON húsasmíðameistari frá Stykkishólmi, lést miðvikudaginn 10. apríl. Útför hans fer fram frá Lindakirkju, Kópavogi, mánudaginn 29. apríl klukkan 13. Ólöf Jónsdóttir Helena Gylfadóttir Inga Lára Gylfadóttir Hilmar Baldur Baldursson Eiður Örn Gylfason Margrét Róbertsdóttir Malin Karlsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR RUNÓLFSSON, Sólvöllum, Eyrargötu 26, Eyrarbakka, lést af slysförum föstudaginn 12. apríl. Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 20. apríl klukkan 13. Rúnar Eiríksson Auður Hjálmarsdóttir Jón S. Eiríksson Þórdís Þórðardóttir Emma G. Eiríksdóttir Hafþór Gestsson Þórður Eiríksson Erla Karlsdóttir barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.