Morgunblaðið - 17.04.2019, Page 50
50 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Japanskt
meistaraverk
Landsins mesta
úrval af píanóum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.
Meistaradeild karla
8-liða úrslit, seinni leikir:
Barcelona – Manchester United............ 3:0
Lionel Messi 16., 20., Philippe Coutinho 61.
Barcelona áfram, 4:0, samanlagt.
Juventus – Ajax........................................ 1:2
Cristiano Ronaldo 28. – Donny van de Beek
34., Matthijs de Ligt 67.
Ajax áfram, 3:2, samanlagt.
England
Brighton – Cardiff................................... 0:2
Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 55
mínúturnar með Cardiff.
Staðan:
Liverpool 34 26 7 1 77:20 85
Manch.City 33 27 2 4 86:22 83
Tottenham 33 22 1 10 64:34 67
Arsenal 33 20 6 7 66:40 66
Chelsea 34 20 6 8 57:36 66
Manch.Utd 33 19 7 7 63:44 64
Leicester 34 14 5 15 46:45 47
Wolves 33 13 8 12 41:42 47
Everton 34 13 7 14 46:44 46
Watford 33 13 7 13 47:48 46
West Ham 34 12 6 16 42:52 42
Bournemouth 34 12 5 17 49:61 41
Cr. Palace 34 11 6 17 40:46 39
Burnley 34 11 6 17 42:60 39
Newcastle 34 10 8 16 32:43 38
Southampton 33 9 9 15 39:54 36
Brighton 33 9 6 18 32:53 33
Cardiff 34 9 4 21 30:63 31
Fulham 34 5 5 24 32:76 20
Huddersfield 34 3 5 26 19:67 14
Cardiff á eftir: Liverpool, Fulham, Crys-
tal Palace og Manchester United.
Brighton á eftir: Wolves, Tottenham,
Newcastle, Arsenal og Man. City.
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit kvenna, oddaleikur:
Blue-höllin: Keflavík – Stjarnan (2:2). 19.15
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 2. umferð:
Framvöllur: Fram – Ýmir ........................ 19
Leiknisvöllur: Leiknir R. – Fjölnir.......... 19
Ásvellir: KÁ – Berserkir........................... 20
BLAK
Fjórði úrslitaleikur kvenna:
Fagrilundur: HK – KA (1:2) ................ 19.30
Í KVÖLD!
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, 8-liða úrslit, 2. leikur:
Philadelphia – Brooklyn .................. 145:123
Staðan er 1:1.
Vesturdeild, 8-liða úrslit, 2. leikur:
Golden State – LA Clippers ............ 131:135
Staðan er 1:1.
KÖRFUBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Barcelona og Ajax eru komin í und-
anúrslitin í Meistaradeild Evrópu í
fótbolta eftir að hafa slegið Man-
chester United og Juventus út úr
keppninni í gærkvöld. Barcelona
vann öruggan 3:0 sigur gegn enska
liðinu á Camp Nou og 4:0 samanlagt
en Ajax vann frækinn útisigur, 2:1, á
Juventus í Tórínó og einvígið þar
með 3:2 samanlagt.
Manchester United byrjaði vel á
Camp Nou því Marcus Rashford átti
sláarskot eftir aðeins 40 sekúndur.
En Lionel Messi sló fljótlega á allar
vonir enska liðsins. Hann skoraði
með fallegu skoti á 16. mínútu og
aftur fjórum mínútum síðar, með
lausu skoti sem David de Gea hefði
átt að verja auðveldlega.
Þar með voru úrslitin ráðin og
Philippe Coutinho innsiglaði sigur-
inn með þriðja markinu snemma í
síðari hálfleik.
Eftir jafntefli í Amsterdam, 1:1,
var Juventus mun sigurstranglegri
aðilinn gegn Ajax á sínum heima-
velli, og ekki dró úr því þegar Cristi-
ano Ronaldo skoraði á 28. mínútu,
1:0 fyrir Juventus.
En hollensku meistararnir eru
með mikið sjálfstraust, eins og þeir
sýndu í útisigrinum magnaða gegn
Real Madrid í sextán liða úrslit-
unum. Donny van de Beek jafnaði
metin aðeins sex mínútum síðar og
það var síðan miðvörðuinn Matthijs
de Ligt sem skoraði sigurmarkið um
miðjan síðari hálfleik. Þá þurfti Ju-
ventus tvö mörk og það var of mikið
fyrir Ronaldo og félaga sem eru
fallnir úr keppni.
Annað útivallarafrek hjá Ajax
Sigruðu Juventus í Tórínó og fara ásamt Barcelona í undanúrslitin
AFP
Sigurmarkið Matthijs de Ligt fagnar sigurmarki Ajax ásamt Daley Blind en Cristiano Ronaldo er ekki skemmt.
Fjórði úrslitaleikur HK og KA um
Íslandsmeistaratitil karla í blaki fór
fram í Fagralundi í Kópavogi í gær-
kvöld og var ekki lokið þegar blað-
ið fór í prentun.
HK var 2:1 yfir eftir þrjá fyrstu
leikina og gat því orðið Íslands-
meistari með sigri í gærkvöld.
HK vann fyrstu hrinuna í gær-
kvöld eftir upphækkun, 26:24, en
KA jafnaði metin með sigri í þeirri
næstu, 25:19. HK svaraði fyrir sig
með sigri í þriðju hrinu, 25:22.
Ítarlega umfjöllun um leikinn er
að finna á mbl.is/sport.
HK stóð vel að
vígi í Fagralundi
Morgunblaðið/Hari
Fagrilundur Barátta við netið í við-
ureign HK og KA í gærkvöld.
Aron Einar Gunnarsson og félagar
í Cardiff City eiga enn þokkalega
möguleika á að halda sæti sínu í
ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu
eftir gríðarlega mikilvægan úti-
sigur á Brighton í gærkvöld, 2:0.
Allt bendir til þess að annað þess-
ara liða falli ásamt Fulham og
Huddersfield, Cardiff er enn í fall-
sætinu en er nú aðeins tveimur stig-
um á eftir Brighton, sem á hins-
vegar leik til góða. Aron lék fyrstu
55 mínúturnar með Cardiff og spil-
aði mjög vel en lið hans mætir næst
Liverpool á heimavelli. vs@mbl.is
Cardiff vann fall-
slaginn í Brighton
AFP
Cardiff Aron Einar Gunnarsson og
félagar gætu bjargað sér frá falli.
Handknattleiksþjálfarinn Hannes
Jón Jónsson hefur samið til tveggja
ára við þýska 1. deildar liðið Bietig-
heim. Þetta verður opinberað í dag,
eftir því sem heimildir Morgun-
blaðsins herma. Ráðning Hannesar
Jóns kemur í framhaldi af slitum
hans á samningi við handknatt-
leikslið Selfoss sem greint var frá
um liðna helgi.
Hannes Jón tók við þjálfun Bie-
tigheim, sem er í Stuttgart, í byrjun
febrúar. Hann hafði þá þegar skrif-
að undir samning við forráðamenn
Selfoss um að taka við þjálfun
karlaliðs félagsins í sumar. Upp-
haflega stóð til að Hannes Jón yrði
aðeins í þjálfarastólnum hjá Bietig-
heim út keppnistímablið í júní. For-
ráðamenn Bietigheim lögðu hins-
vegar hart að honum að skrifa
undir lengri samning sem varð ofan
á eftir að forráðamenn Selfoss
komu til móts við óskir Hannesar
Jóns um að samningurinn við þá
tæki ekki gildi. iben@mbl.is
Ljósmynd/Heimasíða Bietigheim
Þjálfari Hannes Jón Jónsson verður áfram á hliðarlínunni hjá Bietigheim.
Verður hjá Bietig-
heim næstu tvö ár