Morgunblaðið - 17.04.2019, Side 51
ÍÞRÓTTIR 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
Lítið sem ekkert heyrist af
áhuga eða vilja ríkisvaldsins fyrir
byggingu nýrrar þjóðarhallar fyr-
ir innanhússíþróttir. Handknatt-
leikssambandið (HSÍ) og Körfu-
knattleiksambandið (KKÍ)
ályktuðu nýlega á ársþingum
sínum um þá brýnu þörf að hafin
yrði bygging nýrrar íþróttahallar
sem fyrst. Blakmenn voru upp-
teknir vegna annarra mála á sínu
ársþingi á dögunum. A.m.k. sáu
þeir ekki ástæðu til þess að
leggjast á árarnar með KKÍ og
HSÍ. Skorað er á nýjan og dug-
mikinn formann BLÍ að leggja
málinu lið.
Framundan er íþróttaþing.
Athyglisvert verður að sjá hvort
málefni nýrrar íþróttahallar kom-
ist á dagskrá með kröftugum
hætti. Lítið hefur farið fyrir opin-
berum stuðningi ÍSÍ í þessu máli,
sem er miður. Vonandi er unnið
af þeim mun meiri krafti á bak
við tjöldin.
HSÍ og KKÍ hafa haldið um-
ræðunni gangandi ásamt Þórði
Má Sigfússyni skipulagsfræðingi
sem hefur verið ötull við að vekja
athygli á hversu brýnt er að ný
þjóðarhöll fyrir innanhússíþróttir
rísi sem fyrst. Þórður Már heldur
m.a. úti síðu á Twitter, Höllin er
úrelt, þar sem málefnalega er
velt upp ýmsum flötum málsins.
Eins og oft hefur komið fram á
þessum vettvangi þá er Laugar-
dalshöll fyrir löngu úr sér geng-
in. Hún stenst fáar kröfur sem al-
þjóðasambönd handknattleiks-
og körfuknattleiksfólks gera nú
til dags. Höllin hefur verið á
undanþágu um árabil. Sífellt erf-
iðara er að fá undanþágurnar.
Kannski væri mátulegt á okkur
að þær fengjust ekki einn góðan
veðurdag. Við gætum þá leikið
heimaleiki okkar í Danmörku
eins og frændur okkur Fær-
eyingar verða að gera eftir að
Handknattleikssamband Evrópu
setti þeim stólinn fyrir dyrnar.
BAKVÖRÐUR
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
HANDBOLTI
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ég hef sex sinnum farið í úrslitaleik
bikarkeppninnar með Kiel og alltaf
unnið. Það met verður ekki jafnað
eða slegið alveg á næstunni,“ sagði
Alfreð Gíslason, þjálfari nýkrýndra
bikarmeistara THW Kiel í Þýska-
landi, þegar Morgunblaðið sló á
þráðinn til hans í byrjun vikunnar.
Þá var Alfreð kominn til starfa á
ný eftir að hafa tekið sér nokkurra
daga frí í „austrinu“ eins og hann
kallar það þegar hann kúplar sig frá
daglegum skarkala á heimili sínu
skammt frá Magdeburg. Hversdags
býr Alfreð í Kiel þar sem hann hefur
þjálfað handknattleikslið borgar-
innar í áratug með framúrskarandi
árangri.
Gott að landa einum bikar
Kiel varð bikarmeistari fyrir
rúmri viku eftir sigur á Magdeburg,
28:24. Eftir það tók við vikuhlé frá
keppni hjá liðinu vegna leikja í und-
ankeppni Evrópumóts landsliða þar
sem flestir leikmenn Kiel voru í eld-
línunni með landsliðum sínum. „Það
var mjög gott að landa einum bikar á
árinu,“ sagði Alfreð sem kveður Kiel
eftir keppnistímabilið. Ekki er öll
nótt úti að fleiri verðlaun bætist í
safnið áður en Alfreð stimplar sig í
síðasta sinn út hjá THW Kiel. Fram-
undan er lokaspretturinn í EHF-
bikarnum en úrslitahelgi keppn-
innar verður í Kiel um miðjan næsta
mánuð auk þess sem enn er von í
keppninni um þýska meistaratitil-
inn. Kiel er í öðru sæti deildarinnar,
fjórum stigum á eftir Flensburg sem
hefur aðeins tapað einum leik á leik-
tíðinni.
Mögulegt að ná Flensburg
„Við einbeitum okkur aðeins að
okkar leikjum. Það er það eina sem
við getum gert í stöðunni. Flensburg
á eftir að mæta Rhein-Neckar Löw-
en og okkur áður en yfir lýkur.
Möguleikinn er fyrir hendi ef við
klúðrum ekki okkar leikjum. Við eig-
um til dæmis framundan erfiðan leik
í Berlin á fimmtudaginn,“ sagði Al-
freð og bætti við. „Við höfum til
dæmis tapað tvisvar fyrir Magdeurg
í deildinni í vetur. Ef ég fengi að
velja þá myndi ég sannarlega vilja
skipta við Magdeburg á bikarmeist-
aratitlinum fyrir sigur í báðum leikj-
unum í deildinni.“
Alfreð segist ekkert leiða hugann
að því að það styttist í síðasta vinnu-
daginn hjá Kiel. Að þessari leiktíð
lokinni verði tíu ára vinnutörn hjá
félaginu lokið. Hann segir einbeit-
ingu sína vera fullkomlega á þeim
leikjum sem liðið á eftir, bæði í deild-
inni þar sem átta umferðir eru
óleiknar, og að í EHF-keppninni þar
sem stefnt er á sigur eins alltaf. „Ég
leiði ekkert hugann að því að ég
hætti brátt en skal alveg viðurkenna
að það verður kærkomið að taka sér
frí frá handboltanum eftir annasam-
an tíma,“ segir Alfreð sem hefur ver-
ið þjálfari í Þýskalandi í 22 ár, fyrst
hjá Hameln, síðan hjá Magdeburg,
þá hjá Gummersbach og loks síðasta
áratuginn hjá Kiel.
Ekkert landslið í sigtinu
Fyrir skömmu sagði Alfreð í sam-
tali við þýska fjölmiðla að hann væri
opinn fyrir að taka að sér þjálfun
landsliðs þegar vinnudeginum væri
lokið hjá THW Kiel. Alfreð segir það
vera rétt. Hann hafi hinsvegar ekk-
ert landslið í sigtinu og ekki standi
til að rasa um ráð fram í þeim efnum.
„Ég ætla að taka mér hálfs árs frí
til að byrja með áður en ég skoða
framhaldið varðandi þjálfun. Ég
forðast að pæla of mikið í framhald-
inu því þá verður maður strax kom-
inn á fulla ferð aftur sem ég ætla
mér ekki. Að þessu sinni ætla ég að
kúpla mig frá handboltanum, taka
gott frí og sjá svo til. Þegar ég hætti
hjá Magdeburg á sínum tíma, fyrir
um hálfum öðrum áratug, ætlaði ég
heldur betur að taka mér frí frá þjálf-
un um skeið og hlaða rafhlöðurnar og
njóta lífsins. Áður varði ég búinn að
taka að mér þjálfun landsliðs Íslands
og skömmu síðar var ég líka orðinn
þjálfari Gummersbach. Það var al-
gjört kjaftæði. Ég ætla ekki að
brenna mig á sama soðinu tvisvar
heldur standa við það að þessu að
taka mér ærlegt frí að loknum síð-
asta vinnudegi hjá Kiel í sumar,“
sagði Alfreð Gíslason, einn sigursæl-
asti handknattleiksþjálfari sögunnar.
Ætlar ekki að brenna sig
á sama soðinu tvisvar
Alfreð Gíslason ætlar í langt frí þegar hann hættir störfum hjá Kiel í sumar
Ljósmynd/THW Kiel
Sigursæll Alfreð Gíslason hefur átt einstakri sigurgöngu að fagna með Kiel. Undir hans stjórn frá árinu 2008 hefur liðið tvisvar unnið Meistaradeild
Evrópu, sex sinnum orðið þýskur meistari og sex sinnum þýskur bikarmeistari. Alfreð hefur fimm sinnum verið þjálfari ársins í Þýskalandi.
Íslenskir blakmenn unnu í gær og í fyrradag til brons-
verðlauna með liðum í sínum í dönsku úrvalsdeildinni.
Unnur Árnadóttir og samherjar hennar í Elite Volley
Aarhus unnu í gær Team Køge í oddaleik um bronsið
með þremur hrinum gegn engri en leikið var á heima-
velli Unnar og samherja í Árósum. Elite Volley Aarhus
vann öruggan sigur í öllum hrinum leiksins. Unnur, sem
hefur leikið með liðinu vetur, kom lítið við sögu í odda-
leiknum.
Ævarr Freyr Birgisson og félagar í Boldklubben
Marienlyst unnu Middelfart VK í tveimur viðureignum
um bronsverðlaunin í úrvalsdeild karla. Síðari leikurinn
var í fyrrakvöld og vann Marienlyst þrjá hrinum en tapaði einni eins og í
fyrri viðureign liðanna. Marienlyst léku með tvo frelsingja í leiknum í og sá
Ævarr um vörnina á meðan hinn frelsinginn sá um móttökuna eftir því sem
fram kemur í frétt blakfretta.is. iben@mbl.is
Íslendingar fá bronsverðlaun
Ævarr Freyr
Birgisson
Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða.
Enzymedica býður uppá öflugustu meltingar-
ensímin á markaðnum en einungis eitt hylki
með máltíð getur öllu breytt.
l Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og öll efnaskipti líkamans.
l Betri melting, meiri orka, betri líðan!
l 100% vegan hylki.
l Digest Basic hentar fyrir börn
Gleðilega meltingu
Meltingarónot, uppþemba,
vanlíðan, röskun á svefni og
húðvandamál eru algengir
fylgifiskar þegar gert er vel
við sig í mat og drykk.