Morgunblaðið - 17.04.2019, Qupperneq 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019
icewear.is
Dömu og herra regnkápur
Dögg og Daði kr. 11.990.-
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Róm, ítalska borgin eilífa, er sívin-
sæll áfangastaður ferðamanna. Þar
lyktar allt af sögu og hvert sem litið
er má sjá ummerki um mannlíf lið-
inna alda og í raun árþúsunda. Þar
ber urmull rústa vitni um valdatíma
Rómverja og aðrar um uppgang
kristninnar og kaþólskunnar með
hundruðum merkilegra kirkna og
Vatíkaninu; þá eru minjar um blóma-
skeið endurreisnarinnar, um barokk-
tímabilið og aðrar sem segja sögur af
risi og falli fasismans á síðustu öld.
Gestir í borginni njóta dásemda
ítalskrar matargerðarlistar og millj-
ónir manna sækja heim merkustu
söfnin ár hvert, misáhugasamir, en
þar eru þó fjölmargir gripir og verk
sem full ástæða er til að hvetja fólk
til að skoða vandlega, enda oft um að
ræða einstakar gersemar í
menningarsögu mannkynsins alls.
Fyrir áhugafólk um listir þá eru
meistaraverk Michelangelos í Sixt-
usarkapellunni þekktustu verkin
sem hægt er að sjá í Rómaborg. Af
öllum undrum Rómar togaði þó ekk-
ert jafn sterkt í undirritaðan í fyrstu
ferðinni til borgarinnar og sú stað-
reynd að þar má sjá í hinum ýmsu
kirkjum, söfnum og stofnunum 23
málverk eftir Caravaggio, einn
mesta og mikilvægasta listamann
lokaskeiðs endurreisnarinnar og
upphafs barokksins, og í raun ger-
vallrar listasögunnar. Og það er með
ólíkindum hvað þessi verk eru mörg,
ef litið er til þess að í dag eru aðeins
til rúmlega sextíu viðurkennd lista-
verk meistarans frá tveggja áratuga
ferli. Í Róm má því sjá rúman þriðj-
ung þeirra, sum þar sem þeim var
komið fyrir af málaranum sjálfum í
byrjun sautjándu aldar, og kapp-
samir listunnendur geta náð að sjá
þau öll á einum degi, þótt ráðlegra sé
að taka tvo eða þrjá daga í leiðang-
urinn. En það er leiðangur sem
óhætt er að mæla með, því þótt
Caravaggio hafi verið vafasamur
karakter, eins og ítarlega hefur verið
fjallað um í ýmsum verkum, eru
bestu myndverk hans svo undur-
samleg og áhrifarík að þau geta haft
mannbætandi áhrif og breytt sýn
fólks á listina, lífið og söguna.
Sá besti í borginni
Myndlistarmaðurinn Michel-
angelo Merisi (1571-1610) kenndi sig
við fæðingarbæ sinn, Caravaggio á
Norður-Ítalíu. Hann hlaut þjálfun á
sviði myndlistarinnar í Mílanó en
flúði árið 1592 til Rómar eftir deilur
og átök, og það var ekki í síðasta sinn
sem hann lenti í útistöðum. Róm var
annars rétti staðurinn fyrir
metnaðarfullan listamann, miðstöð
kristninnar og von á vel borguðum
opinberum verkefnum við skreyt-
ingu kirkna og hefðarsetra. Og Cara-
vaggio vakti strax athygli og fékk
stuðning auðugra safnara sem hrif-
ust af einstökum frásagnarstílnum
sem listamaðurinn ungi þróaði, ag-
aður og einbeittur. Verk Cara-
vaggios vöktu ekki síður athygli ann-
arra listamanna enda kom hann með
merka nýjung inn í myndgerðina,
svokallað chiaroscuro þar sem
dramatísk lýsing fellur á fyrirsætur
og myndefni úr einni átt, að ofan, og
dregur á kontrastmikinn og drama-
tískan hátt aðalatriðin út úr annars
dimmum myndfletinum. Og nýjung-
arnar voru fleiri, sem vöktu athygli
og ögruðu, meðal annars hvernig
Caravaggio notaði óbreytt alþýðu-
fólk sem fyrirsætur helgra manna –
jafnvel sat vændiskona fyrir sem
María mey, og hann sýndi skítuga
fætur fólksins og sorgarrendur undir
nöglum. Þetta raunsæi var nýtt og
merkilegt og beitt á einstakan hátt í
veraldlegum sem trúarlegum mynd-
um. Enn eitt sem var einstakt við
verklagið er að hann gerði aldrei
teikningar eða skissur heldur vann
ætíð beint á strigann.
Caravaggio var ódæll og ögrandi
og komst nokkrum sinnum í kast við
lögin fyrir átök og árásir á fólk; í
nokkur skipti sat hann inni og þurftu
velgjörðarmenn hans að koma til
bjargar. Illt umtalið og hrár raun-
veruleikinn í verkunum urðu líklega
þess valdandi að Caravaggio fékk
ekki verkefni hjá páfanum eða í rík-
ustu kirkjunum, þótt kollegar velkt-
ust ekki í vafa um, þegar kom fram
undir 1600, að hann væri snjallasti
málarinn í Róm. Hann fékk þó verk-
efni við að skapa nokkur verk í minn-
ingarkapellur í kirkjum og þar eru
flest þeirra enn og vekja undrun og
hrifningu, þótt öðrum trúarverkum,
eins og af Maríu mey látinni, hafi
verið hafnað sem altaristöflum – þess
stórkostlega verks njóta gestir í
Louvre í París.
Caravaggio var á flótta síðustu
fimm ár ævinnar, eftir að hafa drepið
mann í bardaga árið 1605, en lést 38
ára á leið aftur til Rómar að taka við
fyrirgefningu úr hendi páfans. En
hægt er að njóta 23 merkra verka
hans á ýmsum stöðum í miðborg
Rómar; undursamlegt er að ganga
fram á þau í kirkjum, sjá sum í lista-
söfnum eða á fyrrverandi heimilum
auðmanna sem keyptu verkin – eða
Með Caravaggio í Rómaborg
Í kirkjum og söfnum í Róm má sjá
meira en þriðjung allra málverka sem
til eru eftir snillinginn Caravaggio
Morgunblaðið/Einar Falur
Meistaraverk Þrjú stór málverk eftir Caravaggio eru í hinni litlu Contarelli-kapellu í San Luigi dei Francesi-
kirkjunni og fjalla öll um Matteus. Til vinstri er eitt stórbrotnasta verk málarans, Boðun heilags Matteusar (1600),
og við hlið þess Uppljómun heilags Matteusar (1602). Þriðja verkið, Píslarvætti heilags Matteusar (1600), sést ekki.
Madonnan Í Sant’Agostino er Ma-
donna frá Loreto (1604); María mey
er þar sýnd sem alþýðukona.
Greftrunin Í glæstu safni Vatíkansins er Greftrunin (1603), eitt af hinum
áhrifamiklu málverkum Caravaggios sem fjalla um atburði í sögu Krists.