Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.04.2019, Blaðsíða 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. APRÍL 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Glæsilegir skartgripir innblásnir af íslenskri sögu G U L L S M I Ð U R & S K A R T G R I PA H Ö N N U Ð U R Skólavörðustíg 18 – www.fridaskart.is Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Hluti af stefnu Sinfóníuhljóm- sveitar Norðurlands, er að laða að okkur heimsklassa stjórnendur og jafna kynjahlutfall stjórnenda. Ekki veitir af í karllægum heimi hljóm- sveitarstjóra,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitar Norður- lands og verkefnisins Sinfonia Nord. Sinfóníuhjómsveit Norður- lands heldur tvenna tónleika um páskana und- ir stjórn Önnu Maríu-Helsing „Við náum að tikka í tvö box með heimsókn hinnar finnsku Helsing sem stendur nú á há- tindi ferils síns. Það er ekkert sjálfgefið fyrir unga hljómsveit á nyrsta klaka við heimskautsbaug að fá heimsþekktan kvenn-stjórnanda til verka,“ segir Þorvaldur Bjarni en Helsing hefur stjórnað Sinfóníu- hljómsveit Íslands í nokkur skipti. Þorvaldur segir að önnur kona hafi stjórnað tónleikum hjá þeim á þessu starfsári. Hallfríður Ólafsdóttir sem stjórnaði tónleikum þar sem flutt voru þrjú verk eftir konur. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands verður með tvenna tónleika um páskana, aðra á Hofi á Akureyri á skírdag og hina á föstudaginn langa í Langholtskirkju í Reykjavík. „Sinfóníuhljómsveit Norðurlands ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Á tvennum stór- tónleikum flytur hún sálumessu Mozarts auk eins magnaðasta píanókonsert Mozarts, Píanókons- erts nr. 20 í d-moll,“ segir Þorvald- ur og bætir við að þar sem tónleik- arnir séu í dymbilviku séu verkin á tónleikunum dramatísk en bæði verkin sem flutt verða séu meðal þekktustu verka Mozart. Mozart á undan sinni samtíð „Margir halda að Píanókonsert í d-moll sé eftir Ludwig van Beet- hoven en ekki Mozart, enda lék Beethoven þennan píanókonsert oft og Mozart var langt á undan sinni samtíð,“ segir Þorvaldur Bjarni sem telur það hvergi meira viðeig- andi en að flytja Sálumessu Moz- arts í kirkju kl. 18 á föstudaginn langa „Við erum með úrval góðra flytj- enda í verkunum. Stórstjörnurnar Garðar Thór Cortes, Hanna Dóra Sturludóttur, Ágúst Ólafsson og hin norðlenska Helena Guðlaug Bjarna- dóttir sjá um sönginn. Allir eru þessir einstaklingar meðal eftirsótt- ustu einsöngvara á Íslandi og þó víða væri leitað. Einleikari á píanó verður vonarstjarna Norðlendinga í sígildri tónlist Alexander Edelstein, sem er að klára nám hjá Listahá- skóla Íslands eftir burtfararpróf frá Tónlistarskóla Akureyrar. Það er mikilvægt fyrir vaxandi tónlistar- menn eins og Alexander að fá tæki- færi til þess á lokasprettinum í námi hér heima að spila á alvöru sinfón- íutónleikum,“ segir Þorvaldur Bjarni og bætir við að Kammerkór Norðurlands og Söngsveitin Fíl- harmónía myndi 70 manna kór á tónleikunum. Kammerkór Norður- lands og Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands hafi átt gott samstarf að sögn Þorvaldar Bjarna og meðal annars hafi sinfónían og kórinn far- ið saman til Færeyja og frumflutt þrjú verk í menningarhúsi Fær- eyinga. „Um þessa ferð get ég ekki annað sagt en, geri aðrir betur. Í Reykja- vík hefur Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands átt í góðu samstarfi við Hljómeyki og Söngsveitina Fíl- harmoníu auk þess sem tónlistar- menn úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit Íslands spila reglulega í kvik- myndatónlistarverkefninu Sinfo- Nord sem teygir anga sína í allar áttir,“ segir Þorvaldur sem er ánægður með starfsemi Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands. „Ég er hugsi yfir stærð framlags ríkisins til Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Við fáum 3% af því framlagi sem Sinfóníuhljómsveit Íslands fær en störfum þar sem 10% þjóðarinnar búa. Þessi 10% eru afar dugleg að mæta á viðburði okk- ar fyrir norðan. Ef við fengjum hærra framlag gætum við haldið reglulega sinfóníska tónleika a.m.k. einu sinni á mánuði yfir vetrartím- ann og reglulegar æfingar. Það myndi tryggja að hljóm- sveitin væri alltaf í toppstandi fyrir hin fjölmörgu verkefni sem koma í gegnum kvikmyndatónlistarverk- efnið SinfoniaNord. 10% af því framlagi sem Sinfóníuhljómsveit Íslands fær myndu því breyta miklu, miklu meira en menn geta ímyndað sér í dag,“ segir Þorvaldur sem bendir á að hægt sé að kaupa miða á tónleikana bæði norðan og sunnan heiða á mak.is og tix.is Fjölhæf Sinfóníuhljómsveit Norðurlands kemur víða við. Hún leggur land undir fót og heldur tónleika um páskana bæði sunnan og norðan heiða þar sem flutt verða Sálumessa Mozarts og Píanókonsert nr. 20 í d-moll, eftir Mozart. Tvö dramatísk verk Hanna Dóra Sturludóttir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Ágúst Ólafsson Ljósmynd/ Auðunn Níelsson Vonarstjarna Alexander Edelstein, Norðlendingur sem stundar nám við Listaháskóla Íslansd og gleðja mun fólk með píanóleik um páskanna. Ljósmynd/Karper Dalkarl Einbeitt Anna María-Helsing, stjórnandi páskatónleikanna. Helena Guðlaug Bjarnadóttir Garðar Thór Corters  Sinfóníuhljómsveit Norðurlands leikur bæði í Hofi og Langholtskirkju um páskana  Með úrval góðra flytjenda Listakonan Ragnheiður Bjarnarson kom sér í gær fyrir í gluggum The Window Gallery í 10. hverfi Parísar til að fremja gjörninga. „Þessi eins manns gjörningahátíð mun standa til 20. apríl og verður í streymi á netinu. Verkin eru sýnd sem hluti af Polar, norrænni listahátíð sem á ári hverju flytur inn myndlistafólk, dansara, skáld, kvikmynda- og tónlistafólk til Parísarborgar,“ segir í tilkynningu. Ragnheiður er útskrifaður dansari frá LHÍ og kláraði meistaranám í list í almannarými við háskólann í Gautaborg. Hún er annar tveggja eigenda menningarrýmisins Midpunkt. The Window Gallery er rekið af danshöfundinum Catherine Bay. Streymt frá gjörningi Ragnheiðar í París Ragnheiður Bjarnarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.