Fréttablaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 2
Veður
Norðaustlæg átt 5-13 m/s, en
heldur hvassara með suðaustur-
ströndinni. Skýjað með köflum
sunnan til á landinu og sums staðar
skúrir, einkum síðdegis. Léttskýjað
að mestu vestanlands, en skýjað
og úrkomulítið norðaustan- og
austanlands. SJÁ SÍÐU 48
Kræfir kassabílakappar
Það var mikið um dýrðir þegar þessir kátu krakkar tóku þátt
í kassabílarallíi nokkurra frístundaheimila í Reykjavík í gær.
Áhorfendur skemmtu sér ekki síður vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
LÝÐHEILSA „Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem við höldum Egils Gull
mótið og þessi gagnrýni hefur
alveg komið áður. Við auðvitað
fylgjum, ásamt Ölgerðinni, þeim
lögum og reglum sem gilda um
áfengisauglýsingar á Íslandi.“ Þetta
segir Haukur Örn Birgisson, forseti
Golfsambands Íslands, aðspurður
um gagnrýni sem beinist að sam
bandinu frá Foreldrasamtökum
gegn áfengisauglýsingum.
Foreldrasamtök in gagnr ý na
umgjörð Egils Gull mótsins sem
haldið var um síðastliðna helgi.
Mótið er ætlað fullorðnum en ung
menni geta unnið sér þar inn þátt
tökurétt. Mótið er styrkt af Ölgerð
inni sem framleiðir meðal annars
Egils Gull, bjór og léttbjór.
Öll umgjörð mótsins var tileink
uð Egils Gulli og samkvæmt For
eldrasamtökunum var um áfeng
isauglýsingu að ræða. En samkvæmt
lögum eru hvers konar auglýsingar
á áfengi og einstökum áfengisteg
undum bannaðar á Íslandi.
Foreldrasamtökin segja um
gjörðina óboðlega og ekki í takt
við uppeldis og forvarnarmark
mið íþróttahreyfingarinnar. Einn
ig segja þau Golfsambandið brjóta
lög um rétt barna og ungmenna til
þess að vera laus við áfengisáróður
og vísa til 20. greinar áfengislaga.
Haukur segir GSÍ og Ölgerðina
fara eftir þeim lögum og reglum
sem ríkja á Íslandi og segir aug
lýsingunum ekki beint að börnum.
„Mótið er ekki ætlað börnum og
unglingum, þetta er fullorðinsmót.
Ungmennum er ekki bönnuð þátt
taka í mótinu en auglýsingum er
ekki beint að þeim,“ segir Haukur.
Sigurvegari mótsins í karla
flokki var sextán ára gamall piltur
en í kvennaf lokki var það átján
ára stúlka. Á heimasíðu GSÍ má sjá
ljósmynd af sigurvegurunum með
blaktandi Egils Gull fána í bak
sýn. Á fánanum standa slagorðin
„Okkar tími – okkar bjór“. Eins og
gefur að skilja er hvorugt sigur
vegaranna með aldur til þess að
kaupa áfengi og telst pilturinn enn
vera barn.
Haukur segir ekkert athugavert
við það að auglýsa Gull á íþrótta
móti þar sem börn eru þátttak
endur eða að taka mynd af ung
mennunum við fánann.
„Þau eru sigurvegarar í mótinu
og eðlilegt er að tekin sé mynd af
þeim með samstarfsaðilann í bak
sýn. Uppfylli samstarfsaðilinn skil
yrðin sem lögin setja um merkingar
í slíkum auglýsingum þá sé ég ekk
ert athugavert við það. Samkvæmt
lögum er ekki um bjór að ræða,“
segir Haukur.
birnadrofn@frettabladid.is
Bjórauglýsingar á
golfmóti fyrir börn
Forseti Golfsambands Íslands ver þá ákvörðun að halda mót styrkt af Öl-
gerðinni undir merkjum Egils Gull. Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum
gagnrýndu GSÍ harðlega. Farið að lögum og reglum, segir forsetinn.
Egils Gull mótið fór fram á Þorlákshafnarvelli. Bjórauglýsingar voru um allt.
Samkvæmt lögum
er ekki um bjór að
ræða.
Haukur Örn Birgis-
son, forseti Golf-
sambands Íslands
595 1000
Ítalía
Lignano & Bibione
13. júní í 11 nætur
Flug frá kr.
49.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri
Frá kr.
139.995
VOGAR Nágrannar fyrirhugaðs
frisbívallar í Vogum á Vatnsleysu
strönd óttast ónæði af honum.
Málið var tekið fyrir í skipulags
nefnd Voga sem samþykkti gerð
vallarins.
„ Nef nd i n sý n i r á hyg g ju m
nágranna skilning en telur þó ólík
legt að ágangur vegna vallarins
valdi nágrönnum ónæði,“ bókaði
nefndin. Mikilvægt sé að hvetja
til notkunar almenningsrýma og
hreyfingar. Þessu fylgi lítið rask og
framkvæmdin afturkræf. – gar
Óttast ónæði
af frisbívelli
Fleiri kassabílamyndir er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Frétta-
blaðið +Plús er í Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
Keppt í folfi. NORDICPHOTOS/GETTY
VINNUMARKAÐUR Icelandair sagði í
gær upp 45 f lugmönnum. Í tilkynn
ingu frá félaginu kom fram að um
væri að ræða 21 nýliða. Þeir hefðu
hafið störf sem f lugmenn á Boeing
737 MAXvélum félagsins í sumar.
Flugfélagið tilkynnti uppsagnirnar
á fundi með hópi f lugmanna í
þjálfun. Þá var einnig ráðningar
samningum slitið við 24 f lugmenn
sem hófu þjálfun á MAXvélarnar
síðasta haust.
Ákvörðunin var tekin í ljósi þess
að félagið gerir ekki ráð fyrir MAX
vélunum í f lugáætlun sinni fyrr en
um miðjan september næstkom
andi, eins og fram kom í tilkynn
ingu frá félaginu þann 24. maí
síðastliðinn.
„Það er þungbært að þur fa
að grípa til þessarar sársauka
fullu aðgerðar en við teljum það
nauðsynlegt í ljósi þeirra erfiðu
aðstæðna sem komnar eru upp
vegna kyrrsetningar Boeing 737
MAX vélanna,“ segir Bogi Nils
Bogason, forstjór i Icelandair
Group, í tilkynningu.
„Kyrrsetningin hefur talsverð
neikvæð áhrif á rekstur félagsins
og við verðum að leita allra leiða
til að hagræða og draga úr kostn
aði. Við vonumst þó til að geta
gefið þessum f lugmönnum kost á
starfi hjá fyrirtækinu á ný þegar
undirbúningur fyrir næsta sumar
fer af stað en það kemur betur í
ljós þegar málin skýrast varðandi
MAXvélarnar.“
Icelandair mun bjóða aðstoð við
atvinnuleit í samstarfi við ráðn
ingastofu. – smj
Flugmenn
látnir fjúka
Bogi Nils
Bogason, for-
stjóri Icelandair.
1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
1
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
7
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
4
-3
2
8
4
2
3
2
4
-3
1
4
8
2
3
2
4
-3
0
0
C
2
3
2
4
-2
E
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K