Fréttablaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 78
124 leikir hafa verið spil-
aðir í Meistaradeildinni.
364 mörk hafa verið
skoruð.
2,94 mörk að meðaltali.
65 mörk komu á 76.-90. mínútu.
22 mörk hafa Liverpool
skorað.
22 sinnum hefur Sadio Mane
brotið af sér – oftast
af öllum.
5 lið hafa unnið allar Evrópukeppnir.
Tottenham getur orðið
það sjötta.
4 sinnum hafa bæði lið tapað í
Meistaradeildinni.
6 sinnum hafa lið frá sama
landi mæst í úr-
slitaleiknum.
7 lið frá Eng-
landi hafa
komist í
úrslitaleik inn.
Tottenham er það
áttunda.
170 sinn-
um hafa liðin
mæst í öllum
keppnum. Liver-
pool hefur unnið
79 gegn 48 sigrum
Tottenham. 43
sinnum hefur
leikur endað
með jafntefli.
1982 mættust liðin í
úrslitaleik í deildar-
bikarnum á Wembley.
Liverpool vann þann
leik 3:1.
19 sinnum tapaði Tottenham í ár.
12 stoðsendingar gaf Trent Alex-
ander-Arnold í ensku
deildinni í vetur. Það
mesta sem varnamaður
hefur gefið á einu tíma-
bili.
6 fyrrverandi leik-menn Southamp-
ton gætu spilað leikinn.
Paulo Gazzaniga,
Victor Wanyama, Dejan
Lovren, Virgil van Dijk,
Sadio Mané og Adam
Lallana.
Salah fær ljón að launum frá Mane
Sadio Mane hefur ákveðið að gefa
Mo Salah ljón skori hann í úrslita-
leiknum. Senegalinn Sadio Mane
og Egyptinn Mo Salah hafa verið
tveir af betri mönnum Liverpool
í allan vetur. Senegalinn hefur
sagt að ef Salah skori mark
verði hann að fara með sig til
píramídanna. En ef Mane skori
fái Salah nýtt gæludýr.
„Ef ég skora mun ég gefa
honum ljón,“ sagði Mane í
viðtali við OurAfricanFootball.
com. Framlína Liverpool,
Salah og Mane ásamt Bobby
Firmino hefur skorað 12
sinnum í Meistara-
deildinni í vetur. Jafn
mörg mörk og Lionel
Messi. Mane hefur
skorað 13 mörk í
síðustu 16 leikjum
Liverpool.
Pressan
er öll á
Liverpool
Úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni fer
fram í dag en hann er af mörgum talinn
stærsti knattspyrnuleikur hvers árs. Liver-
pool getur bætt sínum sjötta titli í safnið á
meðan Tottenham leitar eftir sínum fyrsta.
LEIKVANGURINN
Ef einhver hefði sagt við mig í upphafi tímabilsins: Tottenham á eftir að tapa 19 leikjum í ár en samt vinna Meistaradeildina hefði
ég hent viðkomandi út,“ sagði
Graeme Souness, knattspyrnu
sérfræðingur BBC og fyrrverandi
leikmaður Liverpool.
Margir geta tekið undir þau orð.
Það bjuggust fáir við að Totten
ham myndi enda í úrslitaleiknum
en liðið er komið þangað og á
raunhæfa möguleika á að lyfta
bikarnum með stóru eyrun.
Bikarnum sem alla dreymir
um, sjálfum Meistaradeildar
bikarnum.
Souness telur þó að Liver
poolmenn séu sigurstranglegri,
en í fótbolta sé alltaf möguleiki.
Það geri íþróttina að þeirri bestu
í heimi. „Liverpool hefur betri
hóp og betri leikmenn. Í átta af
hverjum 10 leikjum vinnur liðið
sem hefur betri mannskap. Auð
vitað á Totten ham möguleika en
ég tel að þetta sé 60/40 fyrir Liver
pool,“ bætti Sounees við.
Mauricio Pochettino, knatt
spyrnustjóri Tottenham, sagðist
í viðtölum í vikunni vera að æfa
andlega þáttinn sérstaklega þar
sem tilfinningar geta skorið úr
um sigurvegara að hans mati.
Tottenham hefur aldrei spilað í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar
en Liverpool, bæði félagið og leik
mennirnir, þekkja það svið. „Þetta
snýst mikið um tilfinningar. Fót
bolti er samhengi af tilfinningum.
Leikurinn verður ekki um mig
gegn Klopp eða taktíkina heldur
um tilfinningar sem leikmenn
upplifa. Það lið sem ræður betur
við sínar tilfinningar mun verða
skrefi nær titlinum.“
Annar knattspyrnuspekingur,
Jamie Carragher, settist niður
með Anfield Wrap í vikunni en
hann segir að þessi langa bið eftir
úrslitaleiknum henti Tottenham
betur. „Enginn hefur getað útskýrt
það fyrir mér af hverju úrslita
leikurinn er þremur vikum eftir
að deildinni lauk. Ég held að það
henti Tottenham betur því þeir
hafa verið að bíða eftir Harry
Kane,“ sagði varnarjaxlinn fyrr
verandi.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Imagine Dragons
byrjar partíið
Hljómsveitin Imagine Dra-
gons mun keyra upp stuðið
fyrir leik í boði Pepsi. Lögin
Believer, Radio active og
Thunder hafa skilað
þeim Grammy-verð-
launum og er sjón-
varpsframleiðslan
nokkuð sem hefur
aldrei verið
gert áður
samkvæmt
fréttum
UEFA. Að
minnsta
kosti ekki í
Evrópu segir
á vef UEFA.
Kalla eftir fleiri miðum
Tottenham og Liverpool fengu
16.613 miða hvort félag eða rúmlega
helming af miðunum sem í boði eru
á úrslitaleikinn. Þeir vilja meira og
hafa sent neyðaróp til stuðnings-
aðila.
Stuðningsmönnum liðanna
finnst súrt að fá ekki fleiri miða og
hafa stuðningsmannafélög beðið
stuðningsaðila að láta eftir miðana
sína fyrir alvöru stuðningsmenn.
„Við biðjum Nissan, Playstation,
Gazprom, PepsiCo, Banco Santander,
Mastercard, Heineken og Expedia
Group að skila inn miðum svo fleiri alvöru stuðnings-
menn geti séð þennan leik,“ segir í sameiginlegri yfir-
lýsingu. „Margir hafa fylgt liðunum sínum frá upphafi
tímabilsins en missa nú af stærsta leik ársins,“ segir
enn fremur. Fimm stuðningsmenn Liverpool og þrír
frá Tottenham hafa verið gripnir við að endurselja
miðana sína og gætu fengið lífstíðarbann frá völlum
síns liðs sem refsingu. Miðarnir á úrslitaleikinn fara á
allt að 4.500 pund, um 790 þúsund krónur.
Skomina með
völdin á vellinum
Dómari leiksins verður Sló-
veninn Damir Skomina sem
Íslendingar kannast
ágætlega við en
hann dæmdi
viðureign Íslands
og Englands á
EM 2016 sællar
minningar. Hol-
lendingurinn Danny
Makkelie
verður á
skjánum
og passar
upp á
VAR-
dóm-
gæsluna.
Mo Salah
Fæddur:
15. júní 1992
Hæð: 175 cm
Númer: 11
Mörk: 4
n Salah hefur
skorað tvisvar áður
gegn Tottenham
í Evrópukeppni.
Einu sinni með
Basel og einu sinni
með Fiorentina.
Harry Kane
Fæddur:
28. júlí 1993
Hæð: 188 cm
Númer: 10
Mörk: 5
n Þetta verður
50. Evrópuleikur
Kanes. Hann hefur
ekki spilað síðan
hann var straujaður
gegn Man. City.
1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R38 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
1
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
4
-6
3
E
4
2
3
2
4
-6
2
A
8
2
3
2
4
-6
1
6
C
2
3
2
4
-6
0
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K