Fréttablaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 90
St rok k var tett inn Sig g i hefur gefið út sinn fyrsta geisladisk, South of the Circle, hjá Sono Luminus. Í kvartettinum eru: Una Sveinbjar nardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðlur, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóla og Sigurður Bjarki Gunnarsson selló. „Við stofnuðum kvartettinn árið 2012 í kringum Ung nordisk musik hátíðina í Reykjavík og á fyrstu tón- leikum okkar spiluðum við í Lista- safni Reykjavíkur. Við höfðum öll verið í kammertónlistarhópum og kvartettum en þarna small eitt- hvað saman og við ákváðum að halda samstarfinu áfram,“ segir Una. Spurð um Sigga-nafnið segir Una: „Sigurður Bjarki, félagi okkar, er mjög lítillátur maður og fannst alveg ómögulegt að kvartettinn héti Siggi en það vorum við konurnar sem tókum ráðin af honum.“ Fimm nútímaverk Óhætt er að segja að kvartettinn hafi notið velgengni. Hann var val- inn Flytjandi ársins á Íslensku tón- listarverðlaununum 2018 og hefur hlotið mikið lof fyrir f lutning sinn þar á meðal fyrir leik sinn í Philip Glass útsetningum á diski Víkings Heiðars Ólafssonar hjá Deutsche Grammophon. Á nýjum geisladiski kvartetts- ins eru fimm íslensk nútímaverk: Stillshot eftir Daníel Bjarnason, Nebraska eftir Valgeir Sigurðsson, Fair flowers eftir Mamiko Dís Ragn- arsdóttur, Serimonia eftir Hauk Tómasson og Opacity eftir Unu. „Opacity er kvartett sem ég skrifaði og var frumfluttur árið 2014,“ segir Afar spennandi að taka þátt í sköpunarferlinu Strokkvartettinn Siggi gefur út geisladisk og heldur útgáfutónleika. Diskurinn geymir fimm íslensk nútímaverk. „Við í kvartettinum finnum fyrir miklum áhuga á nýrri tónlist,“ segja Una og Sigurður Bjarki. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is NÝ ÍSLENSK TÓNLIST STJÓRNANDI Veigar Margeirsson Kaldalón Hörpu HÖFUNDAR Eiríkur Rafn Stefánsson Hafdís Bjarnadóttir Haukur Gröndal Ingibjörg Azima Sigmar Þór Matthíasson Sigurður Flosason Úlfar Ingi Haraldsson Veigar Margeirsson 3. júní kl. 20.00 Hárið Stóra sviðið Fös 14/6 kl. 19:30 U Lau 15/6 19:30 Ronja Ræningjadóttir Stóra sviðið Þjóðleikhúsið 551 1200 • leikhusid.is Brúðkaup Fígarós Stóra sviðið Lau 07.09 kl. 19:30 Ö Sun 15.09 kl. 19:30 Fös 20.09 kl. 19:30 Lau 21.09 kl. 19:30 Lau 28.09 kl. 19:30 Lau 05.10 kl. 19:30 Sun 2.6 kl. 13:00 Au Sun 2.6 kl. 16:00 Au Lau 8.6 kl. 13:00 Au Lau 8.6 kl. 16:00 Au Elly Stóra sviðið Lau 08.06 Kl. 20:00 U Lau 15.06 Kl. 20:00 UL Borgarleikhúsið 568 8000 • borgarleikhus.is Kæra Jelena Litla sviðið Sýningin sem klikkar Stóra sviðið Bæng! Nýja sviðið Fim 06.07 Kl. 20:00 Ö Fös 07.07 Kl. 20:00 Ö Lau 15.06 Kl. 20:00 ÖL Lau 01.06 Kl. 20:00 U Fim. 06.06 Kl. 20:00 ÖL Matthildur Stóra sviðið Sun 02.06 Kl 19:00 U Mið 05.06 Kl 19:00 U Fim 06.06 Kl 19:00 Ö Fös 07.06 Kl 19:00 U Mán 10.06 Kl 19:00 Ö Fim 13.06 Kl 19:00 Ö Fös 14.06 Kl 19:00 U Sun 16.06 Kl 19:00 U Una. „Hann byggist á fiðluetíðu sem ég skrifaði fyrir margt löngu sem upphitunaræfingu fyrir fiðlu- leikara í tímaþröng. Fyrsti kaflinn More er skrifaður út frá þessari æfingu. Annar kaf linn er tileink- aður sellóinu og er hryggjarstykkið í verkinu. Síðan kemur lítil elegía, sorgarlag fyrir víóluna og síðasti hlutinn heitir Less og er í knöppum stíl. Hann er spuni að hluta og leikur að tímasetningum.“ Hrifning í Tókýó Una segir nútímaverkum eins og þeim sem séu á diskinum vera gríðarlega vel tekið. „Í nóvember spiluðum við í Tókýó og það var fullt út úr dyrum. Á efnisskrá voru verkið mitt og Nebraska, verkið hans Valgeirs. Við í kvartettinum finnum fyrir miklum áhuga á nýrri tónlist.“ Kvartettinn hefur unnið náið með tónskáldum og frumflutt fjölda nýrra verka. „Okkur finnst spennandi að búa til og taka þátt í sköpunarferlinu með því að fá að spila verk í fyrsta skiptið. Sumum tónlistarmönnum finnst það erfitt en okkur finnst það einna skemmti- legast,“ segir Una. Kvartettinn heldur útgáfutón- leika í Mengi föstudaginn 7. júní klukkan 17. „Þar spilum við lögin af diskinum og hugsanlega eitthvað meira,“ segir Sigurður Bjarki selló- leikari. „Við erum að fara í ýmis verkefni, þar á meðal upptökur á Ísafirði á tónlist eftir Halldór Smárason fyrir Sono Luminus en við höfum frumflutt tvo kvartetta eftir Halldór. Svo verðum við með tónleika í Salnum í september þar sem við f lytjum íslensk og erlend verk sem eru öll eftir konur.“ 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 1 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 7 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 4 -3 2 8 4 2 3 2 4 -3 1 4 8 2 3 2 4 -3 0 0 C 2 3 2 4 -2 E D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.