Fréttablaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 20
F Ó T B O LT I L e i k m a n n a h ó p u r
íslenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu fyrir næstu leiki íslenska
liðsins í undankeppni EM 2020 var
opinberaður í gær. Erik Hamrén
og Freyr Alexandersson fóru yfir
mikilvægi leikjanna, eiginleika
verðandi andstæðinga Íslands og
leikmannahóp íslenska liðsins á
blaðamannafundi sem haldinn var
í höfuðstöðvum KSÍ.
Þar var Hamrén tíðrætt um að
hann gæti ekki lofað sex stigum en
sagði að það væri klárlega stefnan
og hann vildi að íslenska þjóðin
sameinaðist um að skapa góða
stemmingu sem myndi hjálpa við
að sigla stigunum í land. Það voru
enn um það bil 2.000 miðar á fyrri
leikinn í þessum legg sem er gegn
Albaníu og fram fer laugardaginn
eftir slétta viku eða 8. júní og 1.500
miðar á seinni leikinn sem er gegn
Tyrklandi. Þá eru sirka 200 ársmið-
ar ósóttir á hvorn leik.
Markmiðið að næla í sex stig
Freyr segir Albani vera með þétt
og vel skipulagt lið að ítalskri
fyrirmynd en síðustu þrír þjálfarar
liðsins hafa verið ítalskir. Christian
Panucci var látinn taka pokann
sinn eftir 2-0 tap gegn Tyrklandi í
síðustu umferð undankeppninnar
en við kef linu tók samlandi hans
Edoardo Reja sem er gamalreyndur
þjálfari sem hefur þó enga reynslu
af þjálfun landsliðs. Þetta sé lið sem
hafi líkt og það íslenska náð góðum
úrslitum síðustu árin þó gefið hafi
á bátinn í viðureignum við sterka
andstæðinga síðustu misserin.
Tyrkland væri hins vegar að
ganga í gegnum kynslóðaskipti
og þetta lið sem íslenska liðið
gjörþekkir, eftir að hafa leikið við
það oft undanfarin ár, sé nokkuð
breytt frá undankeppni HM 2018
þar sem Ísland vann sannfærandi
sigur í fyrri leiknum á Laugar-
dalsvellinum og steig stórt skref
í átt að sæti í lokakeppninni með
glæsilegum sigri í Eskisehir. Þessi
kynslóðaskipti eru leidd áfram
af Senol Günes sem stýrði liðinu
áður frá 2000 til 2004 og nældi
þá í bronsverðlaun bæði á heims-
meistaramótinu árið 2002 og Álfu-
keppninni árið eftir.
Skorið niður um tvo
leikmenn í vikunni
Að þessu sinni voru valdir 25
leikmenn í hópinn en landsliðs-
þjálfararnir voru í samskiptum
við lækna hvað varðar stöðu
mála hjá nokkrum leikmönnum í
hádeginu í dag eða skömmu áður
en hópurinn var tilkynntur með
það í huga að fá grænt ljós á að þeir
væru leikfærir.
Var þar líklega um að ræða Kol-
beinn Sigþórsson sem lítið hefur
leikið með AIK í Svíþjóð en Hamrén
segir hann leikfæran og Jón Daða
Böðvarsson sem lék ekkert með
Reading síðustu mánuði en hefur
hafið æfingar og gæti verið í hópn-
um í þessum mikilvægu leikjum.
Þessir tveir leikmenn taka sæti
Alfreðs Finnbogasonar sem verður
fjarverandi í þessum verkefnum
vegna meiðsla.
Það var einnig athyglisvert að
heyra að Hamrén var ekki eins stað-
fastur og var mun loðnari í svörum
þegar kom að því hver mun standa
á milli stanganna í þessum leikjum.
Hannes Þór Halldórsson var fyrsti
kostur og Hamrén nánast staðfesti
að hann yrði í markinu í undanfara
fyrstu leikjanna í undankeppn-
inni gegn Andorra og Frakklandi.
Orð Hamrén á blaðamannafund-
inum gætu hins vegar blásið von í
brjóst Rúnars Alex Rúnarssonar og
Ögmundar Kristinssonar um að fá
traust þjálfarana og kallið í þessa
leiki.
hjorvaro@frettabladid.is
Nokkrir leikmenn mæta í verkefnið
með misalvarleg eymsli í farteskinu
Fram undan eru lykilleikir í leiðangri íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í átt að öruggu sæti í undankeppni Evrópumótsins
sem haldið verður víðs vegar um Evrópu sumarið 2020. Erik Hamrén og Freyr Alexandersson, þjálfarar íslenska liðsins, völdu
25 leikmenn í hópinn en það er spurning hvort sumir leikmannanna verði leikfærir þegar á hólminn verður komið.
Erik Hamrén hélt hressilega tölu á blaðamannafundi sem haldinn var vegna leikja Íslands í undankeppni EM 2020 um miðjan júní. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HANDBOLTI Ísland fékk slæman skell
þegar liðið mætti Spáni í gær í fyrri
viðureign sinni í rimmu liðanna um
laust sæti á heimsmeistaramótinu
sem fram fer í Japan í desember síðar
á þessu ári. Leikurinn í gær fór fram í
Malaga á Spáni og úrslitin ráðast svo
þegar liðin mætast í seinni leiknum í
Laugardalshöllinni á fimmtudaginn
kemur.
By rjunin var brösugleg hjá
íslenska liðinu en leikmönnum gekk
illa að skapa sér opin færi í uppstillt-
um sóknarleik. Þegar glufa fannst
á varnarleik Spánverja var gamla
brýnið Silvia Navarro svo í bana-
stuði í spænska markinu. Navarro
varði um það bil sex skot á upphafs-
mínútum leiksins og í kjölfarið á
vörslum hennar brunuðu leikmenn
Spánar í bakið á þeim íslensku og
refsuðu þeim með mörkum.
Þegar tæpar tíu mínútur voru
liðnar af leiknum var staðan 6-1
Spáni í vil og það blés ekki byrlega
hjá lærimeyjum Axels Stefánssonar.
Hann tók þá leikhlé og í slagtogi við
Óskar Bjarna Óskarsson aðstoðar-
mann sinn freistaði hann þess að
stappa stálinu í leikmenn sína.
Staðan versnaði hins vegar þrátt
fyrir leiðbeiningar Axles og Óskars
Bjarna og þeir brugðu á það ráð að
taka annað leikhlé þegar tæpar 20
mínútur voru búnar. Þá var staðan
13-5 Spáni í vil og 5-1 vörn íslenska
liðsins ansi götótt og þar af leiðandi
lítil markvarsla hjá Hafdísi Renötu-
dóttur. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
leysti hana af hólmi og kláraði fyrri
hálfleikinn í marki Íslands.
Spænsku leikmennirnir héldu
áfram að leika á als oddi og mun-
urinn í hálf leik var 14 mörk, 21-7
og útlitið vægast sagt ansi svart í
kvöldsólinni í Malaga. Þegar upp
var staðið fór spænska liðið með níu
marka sigur af hólmi. Íslenska liðið
sýndi betri leik í seinni hálfleik og
meiri kraftur var í sóknaraðgerðum
liðsins, leikmenn komu sér í betri
færi og skotin vandvirkari og hnit-
miðaðri. Það er synd að leikmenn
liðsins hafi ekki leikið af sama eld-
móði allan leikinn. Þeir sýndu hvað
í þeim býr á köflum í seinni hálfleik.
Það er verkefni Axels og Óskars
Bjarna að lyfta andanum hjá leik-
mönnum íslenska liðsins, finna
svör við spænska varnarleiknum
og stoppa í götin í varnarleiknum.
Þá þurfa leikmenn Íslands að berja
í sig trú á verkefninu en það skorti
tilfinnanlega sjálfsöryggi í aðgerðir
þeirra í sóknarleiknum í gær.
Eftir hæga en stöðuga fram-
þróun síðustu ára eru það töluverð
vonbrigði að sjá hversu mörgum
sk ref u m a f t ar íslensk a liðið
var því spænska í þessum leik. Nú er
það íslensku leikmannanna að sýna
það í verki í fimmtudaginn að þessi
leikur hafi verið slys en ekki merki
um gæðamuninn á liðunum. - hó
Erfitt verkefni að snúa taflinu við
Axel Stefánsson getur verið ánægður með íslenska liðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FIMLEIKAR Heimsbikarmót Alþjóða-
fimleikasambandsins hófst í Sló-
veníu á fimmtudaginn var með
undanúrslitum á gólfi, bogahesti og
hringjum. Alls voru 34 keppendur
skráðir til keppni á gólfi og þar mátti
sjá mörg fræg nöfn verðlaunahafa
stórmóta undanfarin ár.
Valgarð Reinhardsson stökk sig
inn í úrslitin sem fram fara í dag og
skildi hann meðal annars Evrópu-
meistara á gólfi eftir. Valgarð er þar
með annar fimleikamaðurinn til að
komast í úrslit á heimsbikarmóti
en einungis Rúnar Alexandersson
hefur gert það. Valgarð er fyrsti fim-
leikamaðurinn til að komast í úrslit
á gólfi.
Martin Bjarni Guðmundsson
keppti einnig á gólfinu, en hann er
að koma upp úr unglingaflokki og
tekur sín fyrstu skref í fullorðins-
flokki. Arnþór Daði Jónasson keppti
á sínu öðru heimsbikarmóti á boga-
hesti og sótti sér dýrmæta reynslu.
Seinni undanúrslitadagur fór
svo fram í gær, þar sem keppt var í
stökki, tvíslá og svifrá. Valgarð
var hársbreidd frá því að tryggja sér
sæti í úrslitum í tvíslá en hann er í
fyrsta varamannasætinu þar. Martin
Bjarni Guðmundsson varð í 14. sæti
á svifrá með glæsilegar æfingar. - hó
Sögulegur
árangur hjá
Valgarði Undankeppni HM 2019
Spánn 35-26 Ísland
(21-7)
Mörk Íslands: Þórey Rósa Stefáns-
dóttir 6, Karen Knútsdóttir 4,
Steinunn Björnsdóttir 3, Sigríður
Hauksdóttir 3, Eva Björk Davíðs-
dóttir 3, Helena Rut Örvarsdóttir
2, Thea Imani Sturludóttir 2.
Varin skot: Elín Jóna Þorsteins-
dóttir 10 skot og Hafdís Renötu-
dóttir 2 skot.
1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
1
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
4
-5
0
2
4
2
3
2
4
-4
E
E
8
2
3
2
4
-4
D
A
C
2
3
2
4
-4
C
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
0
4
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K