Fréttablaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 30
ÉG HÉLT AÐ ÉG VÆRI AÐ
KOMA Á STAÐ ÞAR SEM
YRÐU HUNDASLEÐAR,
ESKIMÓAR OG ÍSBIRNIR.
SVO KEM ÉG AÐ ÞESSARI
HÖFN OG HORFI Á HÖRPU.
ÉG HUGSAÐI BARA, ERTU
EKKI AÐ GRÍNAST?
Reykjavík er full af ónákvæmum frásögnum,“ segir Richard L. Friedman, forstjóri og aðaleigandi bandaríska f a s t e i g n a þ r ó u n a r
félagsins Carpenter & Company,
sem um þessar mundir vinnur að
því að reisa fimm stjörnu Marr i
ott Edition hótel við hlið Hörpu.
Hann og framkvæmdastjóri Edi
tionhótelanna, Daniel Flannery,
voru staddir hér á landi á dögunum.
Carpenter & Comp any fjár magnar
fram kvæmd ina ásamt Eggerti Dag
bjarts syni fjárfesti, sem er minni
hluta eig andi í Carpenter. Gerður
hef ur verið samn ing ur til fimm tíu
ára við Marriott Ed iti on sem mun
al farið sjá um rekst ur inn.
Nokkuð er til í þessum orðum
Richards, en ýmsar sögur hafa geng
ið um hótelið og hvernig verkefninu
vindur fram. Ljóst er að bygging
hótelsins hefur farið nokkuð fram
úr kostnaðaráætlunum, að minnsta
kosti 9 prósent í krónum talið. Upp
runalega stóð til að opna hótelið í
fyrra, en nú búast þeir Richard og
Daniel við að opna dyr hótelsins
næsta vor, tveimur árum seinna
en áætlað var. Blaðamaður tók þá
Richard og Daniel tali, og spurði út
í f leiri sögur sem um verkefnið hafa
f logið fjöllum hærra og verkefnið
almennt.
Á ekki að verða tilgerðarlegt
Richard: „Ég kom til Íslands að
beiðni íslensks manns, Eggerts Dag
bjartssonar, sem á hlut í einu hótel
inu mínu. Ég hélt að ég væri að koma
á stað þar sem yrðu hundasleðar,
eskimóar og ísbirnir. Svo kem ég að
þessari höfn og horfi á Hörpu. Ég
hugsaði bara, ertu ekki að grínast?
Þetta er svo fallegt, en þetta er líka
svo raunverulegt. Ekkert kjaftæði.
Það er líka það besta. Ég elska að
það sé fólk þarna að veiða og svo
Landhelgisgæslan við hliðina. Það
sem við viljum gera þarna er fimm
stjörnu hótel, en það á ekki að verða
tilgerðarlegt. Við viljum ungt fólk
sem veit hvað það vill. Við viljum fá
kúl fólk.“
Editionhótel hafa sprottið upp
víða undanfarin ár, meðal ann
ars í London og New York. Fram
kvæmdastjóri hótelanna segir hót
elið á Íslandi verða frábrugðið þeim.
Daniel: „Öll hótelin eru ólík.
Þannig eru boutiquehótel. Þetta er
eins og að gefa út tímarit. Það er allt
af eitthvert þema, eða DNA, en for
síðan breytist eftir því hvar þú ert
staddur. Við viljum aðlagast þeim
stað sem við erum að opna á. Við
myndum aldrei opna London Edi
tion í Tyrklandi. Hluti af ferlinu er
að skilja hvar við erum að opna og
reyna að leyfa DNA byggingarinnar
að njóta sín. í þessu tilfelli er þetta
ný bygging og þar af leiðandi höfum
við meira frelsi. Hótelið muna hafa
Editionfingraför, en verða ólíkt
öllum hinum.“
Á hótelinu verður meðal annars
klúbbur og heilsulind. „Heilsulind
in verður rosaleg, ég vil ekki segja
of mikið, en klúbburinn verður
magnaður, veitingastaðirnir og svo
verður þakbar.“ Hann vill ekki segja
meira um hvernig veitingastaður
inn kemur til með að verða. „Við
verðum í samstarfi sem við viljum
ekki greina frá að svo stöddu.“
Richard: „Við ætlum okkur að
vera með besta veitingastaðinn.
Þú getur sagt þér það sjálf að við
verðum ekki með mexíkóskan veit
ingastað í miðri Reykjavík heldur
viljum við sækja hráefnin í næsta
nágrenni og verðum með frægan
kokk sem við erum samt ekki til
búnir að greina frá hver verður.“
Rólegir yfir samkeppninni
Og verður allt klárt fyrir vorið?
Richard: „Á Íslandi er vorið til
21. júní svo að ég er alveg rólegur.“
Daniel stígur öllu varlegar til jarð
ar. „Við væntum þess í það minnsta
að vera búin að opna fyrir næsta
sumar, en við þurfum að sjá til.“
Þeir Daniel og Richard eru alveg
rólegir yf ir samkeppninni við
önnur hótel og spám um mögulega
fækkun ferðamanna. Þeir ætla að
f lytja inn fólk frá hótelum sínum
um heiminn til að þjálfa starfsfólk
upp og segja lítið um þjálfað starfs
fólk í hótelgeiranum fyrir á f leti.
Richard: „Hugmyndin er ekki sú
að keppa við Airbnb eða 101 hótel
eða nokkuð þar á milli. Við lítum
svo á að það verði gott fyrir alla í
ferðabransanum að opna Edition
hér. Við erum að fara eftir ferða
mönnum sem hafa ekki verið að
koma til Íslands. Við munum hafa
mikið af stórum fundum og ráð
stefnum, sem önnur hótel hafa ekki
burði til sökum smæðar. Við ætlum
að koma inn með nýja ferðamenn.“
Daniel: „Marriottmeðlimaklúbb
urinn hefur 120 milljón meðlimi.
Þeir eru allir að leita sér að áhuga
verðum áfangastöðum.“
Richard: „Það er mikil breyting
að verða á markaðnum. Ferða
mannaiðnaðurinn hér var byggður
upp á ódýru f lugi til Evrópu, en er
orðinn áfangastaður út af fyrir sig.
Þið munuð ekki missa ferðamenn
ina. Fall WOW air mun ekki hafa
mikil áhrif. Ég held að þið fáið öðru
vísi ferðamenn. Ég man þegar ég
kom hingað í fyrsta sinn, þá gisti ég
á 101 hótel. En ég var pínu hræddur,
og ég sem er ekki hræddur við neitt,
er villtur maður. Ég vissi ekki hvar
ég átti að gista, ég þekkti ekki hót
elin. Fólk þekkir Marriott. Þegar ég
segi frá því að ég sé að opna hótel á
Íslandi eru allir áhugasamir. Núna
er það þannig að þú gengur um
bæinn, og maður skyldi ætla að
ferðamennirnir haldi allir að þeir
séu að fara á suðurpólinn. Þannig
klæða þeir sig. Búnir að kaupa sér
bomsur og húfur. Ísland er dásam
legt land. Þetta er spurning um að
fá öðruvísi ferðamenn hingað. Það
þarf að búa til meiri lúxus, ég þoli
reyndar ekki það orð, lúxus, en ég
verð að nota það. Meiri gæði.“
Daniel: „Við finnum mjög mik
inn áhuga á verkefninu. Við fórum
á eina f lottustu ferðabransaráð
stefnu í heimi, á vegum Virtuoso, á
dögunum. Hana sækja um það bil
6.000 fagmenn, sem selja lúxusferð
ir. Virtuoso er bókunarsíða fyrir
lúxusferðir. Ég veit ekki til þess að
önnur íslensk hótel séu inni í þeirra
prógrammi, en þegar þú ert kom
inn þangað inn ertu nokkuð vel
settur. Tækifærin í kringum Mar
riottmeðlimina eru líka mikil.“
Richard: „Við komum til með að
hjálpa til við að fylla hin hótelin
líka. Ég á til dæmis hótel í Cam
bridge í Massachusetts. Hinum
megin við götuna er mótel. Mót
elið lifir af hótelinu mínu. Fólk er
kannski á hótelinu mínu, vill ekki
endilega greiða svo hátt verð fyrir
herbergi, svo það tekur herbergi á
mótelinu á móti; sem meira að segja
rukkar of hátt verð. Ég held að við
munum ekki rústa neinni sam
keppni, bara efla bransann.“
Ekki dýrast í Evrópu
Líkt og áður segir hefur Richard
á orði að hann hafi aldrei komið
til bæjar þar sem jafn mikið er
slúðrað, eins og í Reykjavík. Mikið
hefur verið rætt um verðmiðann á
hótelinu, en byggingin hefur farið
nokkuð fram úr áætlunum. Á síð
asta ári var áætlað að verkið færi
að minnsta kosti 9 prósent fram úr
upprunalegum áætlunum í krónum
talið og myndi kosta 17 og hálfan
milljarð íslenskra króna.
Er það rétt sem hefur verið f leygt,
að hótelið sé orðið það dýrasta að
byggja í Evrópu?
Richard hlær. „Það eru fals
fréttir.“
Hvað kemur það til með að kosta?
„Ég get ekki sagt þér það. Út af
bönkunum,“ segir Richard og hlær.
„En það eru ekki milljón dollarar
per herbergi, eins og einhverjir hafa
sagt. Miklu minna.“
Richard segir að bygging fimm
stjörnu hótela feli í sér áskoranir
og því hafi erlendir sérfræðingar
verið kallaðir til starfa með hinum
íslensku. „Íslenskir verktakar hafa
ekki byggt fimm stjörnu hótel áður.
Það gefur augaleið. Það er allt öðru
vísi en að byggja íbúðablokk eða
skrifstofubyggingu. Þannig að það
hefur verið áskorun. Við redduðum
því með því að fá inn ráðgjafa frá
Evrópu og frá New York. Marriott
er líka þannig vörumerki að það eru
miklar kröfur sem þarf að uppfylla.“
Þeir eru brattir, þrátt fyrir tafir og
kostnaðarauka. „Þegar allt kemur
til alls hef ég ekki áhyggjur.“
Það er slúðrað mest í Reykjavík
Þetta er eins og að gefa út tímarit, en forsíðan breytist eftir því hvar þú ert staddur, segir framkvæmdastjóri
Marriott Edition hótelanna. Mikil leynd hvílir yfir byggingunni og því hafa margar sögur komist á kreik.
Daniel Flannery og Richard L. Friedman eru aðalsprauturnar bak við byggingu Edition-hótelsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Svona mun framhlið Edition-hótelsins í borginni líta út.
Ólöf Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
1
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
4
-4
B
3
4
2
3
2
4
-4
9
F
8
2
3
2
4
-4
8
B
C
2
3
2
4
-4
7
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K