Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.06.2019, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 01.06.2019, Qupperneq 30
ÉG HÉLT AÐ ÉG VÆRI AÐ KOMA Á STAÐ ÞAR SEM YRÐU HUNDASLEÐAR, ESKIMÓAR OG ÍSBIRNIR. SVO KEM ÉG AÐ ÞESSARI HÖFN OG HORFI Á HÖRPU. ÉG HUGSAÐI BARA, ERTU EKKI AÐ GRÍNAST? Reykjavík er full af óná­kvæmum frásögnum,“ segir Richard L. Fried­man, forstjóri og aðal­eigandi bandaríska f a s t e i g n a þ r ó u n a r ­ félagsins Carpenter & Company, sem um þessar mundir vinnur að því að reisa fimm stjörnu Marr i­ ott Edition hótel við hlið Hörpu. Hann og framkvæmdastjóri Edi­ tion­hótelanna, Daniel Flannery, voru staddir hér á landi á dögunum. Carpenter & Comp any fjár magnar fram kvæmd ina ásamt Eggerti Dag­ bjarts syni fjárfesti, sem er minni­ hluta eig andi í Carpenter. Gerður hef ur verið samn ing ur til fimm tíu ára við Marriott Ed iti on sem mun al farið sjá um rekst ur inn. Nokkuð er til í þessum orðum Richards, en ýmsar sögur hafa geng­ ið um hótelið og hvernig verkefninu vindur fram. Ljóst er að bygging hótelsins hefur farið nokkuð fram úr kostnaðaráætlunum, að minnsta kosti 9 prósent í krónum talið. Upp­ runalega stóð til að opna hótelið í fyrra, en nú búast þeir Richard og Daniel við að opna dyr hótelsins næsta vor, tveimur árum seinna en áætlað var. Blaðamaður tók þá Richard og Daniel tali, og spurði út í f leiri sögur sem um verkefnið hafa f logið fjöllum hærra og verkefnið almennt. Á ekki að verða tilgerðarlegt Richard: „Ég kom til Íslands að beiðni íslensks manns, Eggerts Dag­ bjartssonar, sem á hlut í einu hótel­ inu mínu. Ég hélt að ég væri að koma á stað þar sem yrðu hundasleðar, eskimóar og ísbirnir. Svo kem ég að þessari höfn og horfi á Hörpu. Ég hugsaði bara, ertu ekki að grínast? Þetta er svo fallegt, en þetta er líka svo raunverulegt. Ekkert kjaftæði. Það er líka það besta. Ég elska að það sé fólk þarna að veiða og svo Landhelgisgæslan við hliðina. Það sem við viljum gera þarna er fimm stjörnu hótel, en það á ekki að verða tilgerðarlegt. Við viljum ungt fólk sem veit hvað það vill. Við viljum fá kúl fólk.“ Edition­hótel hafa sprottið upp víða undanfarin ár, meðal ann­ ars í London og New York. Fram­ kvæmdastjóri hótelanna segir hót­ elið á Íslandi verða frábrugðið þeim. Daniel: „Öll hótelin eru ólík. Þannig eru boutique­hótel. Þetta er eins og að gefa út tímarit. Það er allt­ af eitthvert þema, eða DNA, en for­ síðan breytist eftir því hvar þú ert staddur. Við viljum aðlagast þeim stað sem við erum að opna á. Við myndum aldrei opna London Edi­ tion í Tyrklandi. Hluti af ferlinu er að skilja hvar við erum að opna og reyna að leyfa DNA byggingarinnar að njóta sín. í þessu tilfelli er þetta ný bygging og þar af leiðandi höfum við meira frelsi. Hótelið muna hafa Edition­fingraför, en verða ólíkt öllum hinum.“ Á hótelinu verður meðal annars klúbbur og heilsulind. „Heilsulind­ in verður rosaleg, ég vil ekki segja of mikið, en klúbburinn verður magnaður, veitingastaðirnir og svo verður þakbar.“ Hann vill ekki segja meira um hvernig veitingastaður­ inn kemur til með að verða. „Við verðum í samstarfi sem við viljum ekki greina frá að svo stöddu.“ Richard: „Við ætlum okkur að vera með besta veitingastaðinn. Þú getur sagt þér það sjálf að við verðum ekki með mexíkóskan veit­ ingastað í miðri Reykjavík heldur viljum við sækja hráefnin í næsta nágrenni og verðum með frægan kokk sem við erum samt ekki til­ búnir að greina frá hver verður.“ Rólegir yfir samkeppninni Og verður allt klárt fyrir vorið? Richard: „Á Íslandi er vorið til 21. júní svo að ég er alveg rólegur.“ Daniel stígur öllu varlegar til jarð­ ar. „Við væntum þess í það minnsta að vera búin að opna fyrir næsta sumar, en við þurfum að sjá til.“ Þeir Daniel og Richard eru alveg rólegir yf ir samkeppninni við önnur hótel og spám um mögulega fækkun ferðamanna. Þeir ætla að f lytja inn fólk frá hótelum sínum um heiminn til að þjálfa starfsfólk upp og segja lítið um þjálfað starfs­ fólk í hótelgeiranum fyrir á f leti. Richard: „Hugmyndin er ekki sú að keppa við Airbnb eða 101 hótel eða nokkuð þar á milli. Við lítum svo á að það verði gott fyrir alla í ferðabransanum að opna Edition hér. Við erum að fara eftir ferða­ mönnum sem hafa ekki verið að koma til Íslands. Við munum hafa mikið af stórum fundum og ráð­ stefnum, sem önnur hótel hafa ekki burði til sökum smæðar. Við ætlum að koma inn með nýja ferðamenn.“ Daniel: „Marriott­meðlimaklúbb­ urinn hefur 120 milljón meðlimi. Þeir eru allir að leita sér að áhuga­ verðum áfangastöðum.“ Richard: „Það er mikil breyting að verða á markaðnum. Ferða­ mannaiðnaðurinn hér var byggður upp á ódýru f lugi til Evrópu, en er orðinn áfangastaður út af fyrir sig. Þið munuð ekki missa ferðamenn­ ina. Fall WOW air mun ekki hafa mikil áhrif. Ég held að þið fáið öðru­ vísi ferðamenn. Ég man þegar ég kom hingað í fyrsta sinn, þá gisti ég á 101 hótel. En ég var pínu hræddur, og ég sem er ekki hræddur við neitt, er villtur maður. Ég vissi ekki hvar ég átti að gista, ég þekkti ekki hót­ elin. Fólk þekkir Marriott. Þegar ég segi frá því að ég sé að opna hótel á Íslandi eru allir áhugasamir. Núna er það þannig að þú gengur um bæinn, og maður skyldi ætla að ferðamennirnir haldi allir að þeir séu að fara á suðurpólinn. Þannig klæða þeir sig. Búnir að kaupa sér bomsur og húfur. Ísland er dásam­ legt land. Þetta er spurning um að fá öðruvísi ferðamenn hingað. Það þarf að búa til meiri lúxus, ég þoli reyndar ekki það orð, lúxus, en ég verð að nota það. Meiri gæði.“ Daniel: „Við finnum mjög mik­ inn áhuga á verkefninu. Við fórum á eina f lottustu ferðabransaráð­ stefnu í heimi, á vegum Virtuoso, á dögunum. Hana sækja um það bil 6.000 fagmenn, sem selja lúxusferð­ ir. Virtuoso er bókunarsíða fyrir lúxusferðir. Ég veit ekki til þess að önnur íslensk hótel séu inni í þeirra prógrammi, en þegar þú ert kom­ inn þangað inn ertu nokkuð vel settur. Tækifærin í kringum Mar­ riott­meðlimina eru líka mikil.“ Richard: „Við komum til með að hjálpa til við að fylla hin hótelin líka. Ég á til dæmis hótel í Cam­ bridge í Massachusetts. Hinum megin við götuna er mótel. Mót­ elið lifir af hótelinu mínu. Fólk er kannski á hótelinu mínu, vill ekki endilega greiða svo hátt verð fyrir herbergi, svo það tekur herbergi á mótelinu á móti; sem meira að segja rukkar of hátt verð. Ég held að við munum ekki rústa neinni sam­ keppni, bara efla bransann.“ Ekki dýrast í Evrópu Líkt og áður segir hefur Richard á orði að hann hafi aldrei komið til bæjar þar sem jafn mikið er slúðrað, eins og í Reykjavík. Mikið hefur verið rætt um verðmiðann á hótelinu, en byggingin hefur farið nokkuð fram úr áætlunum. Á síð­ asta ári var áætlað að verkið færi að minnsta kosti 9 prósent fram úr upprunalegum áætlunum í krónum talið og myndi kosta 17 og hálfan milljarð íslenskra króna. Er það rétt sem hefur verið f leygt, að hótelið sé orðið það dýrasta að byggja í Evrópu? Richard hlær. „Það eru fals­ fréttir.“ Hvað kemur það til með að kosta? „Ég get ekki sagt þér það. Út af bönkunum,“ segir Richard og hlær. „En það eru ekki milljón dollarar per herbergi, eins og einhverjir hafa sagt. Miklu minna.“ Richard segir að bygging fimm stjörnu hótela feli í sér áskoranir og því hafi erlendir sérfræðingar verið kallaðir til starfa með hinum íslensku. „Íslenskir verktakar hafa ekki byggt fimm stjörnu hótel áður. Það gefur augaleið. Það er allt öðru­ vísi en að byggja íbúðablokk eða skrifstofubyggingu. Þannig að það hefur verið áskorun. Við redduðum því með því að fá inn ráðgjafa frá Evrópu og frá New York. Marriott er líka þannig vörumerki að það eru miklar kröfur sem þarf að uppfylla.“ Þeir eru brattir, þrátt fyrir tafir og kostnaðarauka. „Þegar allt kemur til alls hef ég ekki áhyggjur.“ Það er slúðrað mest í Reykjavík Þetta er eins og að gefa út tímarit, en forsíðan breytist eftir því hvar þú ert staddur, segir framkvæmdastjóri Marriott Edition hótelanna. Mikil leynd hvílir yfir byggingunni og því hafa margar sögur komist á kreik. Daniel Flannery og Richard L. Friedman eru aðalsprauturnar bak við byggingu Edition-hótelsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Svona mun framhlið Edition-hótelsins í borginni líta út. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 1 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 4 -4 B 3 4 2 3 2 4 -4 9 F 8 2 3 2 4 -4 8 B C 2 3 2 4 -4 7 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 0 4 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.