Fréttablaðið - 01.06.2019, Blaðsíða 98
annars færir á mis við inni í eigin
ramma,“ segir Björn Jörundur.
Síðast stóð hann á leiksviði í Gull
eyjunni sem sýnd var í Borgarleik
húsinu og hjá Leikfélagi Akureyrar.
„Það gætu verið fimm á síðan, það
er bara enginn að telja,“ segir hann
léttur.
„Ég hlakka til að vinna með Ragn
hildi, hún er húmoristi og kjölfestu
listamaður í samfélaginu. Ég eins og
aðrir er alinn upp við tónlist Queen
en hef ekki skráð mig í neinn aðdá
endaklúbb enn þá, best að gera það
strax eftir helgi,“ bætir hann við.
Ragga segir að þetta sé í fyrsta sinn
sem þau vinni saman. „Við Bjössi
þekkjumst vel en höfum ekki unnið
saman fyrr. Hann er einn skemmti
legasti maður á Íslandi svo mikið er
víst. Það hatar enginn að hlæja með
honum.
Ég hef ekki misst af þessari tón
list frekar en annað fólk í heiminum
en hef satt að segja ekki legið yfir
henni. Nú er komið að því hjá mér,
sem sagt stuð fram undan! Ég verð
þessi með Queenlögin í karókíinu.“
Þá segir hún að söngvarar þurfi
að vera í góðu formi til að syngja
lögin sem Queen gerði fræg. „Ég
held áfram að hlaupa, teygja og æfa
tennis, það er gaman. Ég kannski
finn einhverja viðbót við það í til
efni þessa verkefnis. Bogfimi? Væri
það eitthvað?“
Prufur fyrir kór og dansara fara
fram þann 5. júní og fyrir önnur
hlutverk 6. júní. Allar frekari upp
lýsingar um áheyrnarprufurnar
verður að finna á Facebooksíðu
söngleiksins: „We will rock you –
Ísland“. benediktboas@frettabladid.is
ÉG HEF EKKI MISST AF
ÞESSARI TÓNLIST
FREKAR EN ANNAÐ FÓLK Í
HEIMINUM EN HEF SATT AÐ
SEGJA EKKI LEGIÐ YFIR HENNI.
NÚ ER KOMIÐ AÐ ÞVÍ HJÁ MÉR.
Ragnhildur GísladóttirTónlistin er kraftmikil og f lott og það verður spennandi að f lytja hana með þessu flinka fólki sem verður þarna í öllum deildum. Ég
hlakka mikið til og það getur ekki
orðið annað en gaman þarna,“ segir
Ragnhildur Gísladóttir en þau Björn
Jörundur Friðbjörnsson munu leika
aðalhlutverkin í söngleiknum We
will rock you sem settur verður á
svið í Háskólabíói.
Söngleikurinn er eins og f lestir
vita gerður úr lögum hljómsveit
arinnar Queen sem hefur notið
gríðarlegra vinsælda síðustu miss
eri eftir sýningu kvikmyndarinnar
Bohemian Rhapsody.
Listrænir stjórnendur verða
þau Vignir Rafn Valþórsson sem
mun leikstýra, Karl Olgeirsson er
titlaður tónlistarstjóri og Chan
telle Carey er danshöfundur. Axel
Hallkell Jóhannesson hannar
sviðsmynd, Rebekka Jónsdóttir
hannar búninga, ljósahönnun er
í höndum Freys Vilhjálmssonar
og um hljóðhönnun sér Aron Þór
Arnarsson. Ragga fer með hlutverk
Killer Queen í sýningunni og á móti
henni, í hlutverki Kashoggi, verður
Björn Jörundur.
„Mér var boðið að vera með og
tímasetningin hentaði heppilega
inn í dagskrána hjá mér. Einnig
er hollt fyrir mann að taka svona
tarnir til að vinna með fólki sem þú
We Will Rock
You á svið í
Háskólabíói
Söngleikurinn We Will Rock You verður
settur á svið í Háskólabíói í ágúst. Söng-
leikurinn var saminn af Ben Elton í sam-
starfi við hljómsveitina Queen. Þau Björn
Jörundur og Ragga Gísla þenja raddböndin
í anda Freddy Mercury, forsprakka Queen.
Björn Jörundur og Ragnhildur Gísladóttir snúa bökum saman í fyrsta sinn þótt þau hafi þekkst lengi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Chantelle Carey danshöfundur, Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri og Karl
Olgeirsson tónlistarstjóri eru listrænir stjórnendur sýningarinnar.
Queen
Hljómsveitin Queen var stofnuð
árið 1971 og var skipuð þeim
Brian May, Roger Taylor, John
Deacon og Freddie Mercury.
Tveimur árum síðar skrifuðu
liðsmenn sveitarinnar undir
samning við útgáfufélagið EMI.
Það sama ár kom platan Queen
út ásamt því að hljómsveitin fór
í sína fyrstu stóru tónleikaferð
um Bretland. Hljómsveitin gaf
út sína þriðju plötu árið 1975, A
Night At The Opera, en á henni
var að finna lagið Bohemian
Rhapsody. Lagið, sem er 5
mínútur og 55 sekúndur, þótti
ekki líklegt til að fá mikla spilun
í útvarpi en varð að einu vin-
sælasta lagi allra tíma og sat í
fyrsta sæti breska vinsælda-
listans í níu vikur. Ári síðar gaf
hljómsveitin út plötuna A Day
At The Races og hélt í kjöl-
farið opna tónleika í Hyde Park
í London sem talið er að allt að
200.000 manns hafi mætt til
að sjá. A Day At The Races naut
mikilla vinsælda og seldust til
að mynda um 500.000 eintök í
forsölu. Árið 1977 gaf Queen út
plötuna News Of The World þar
sem var að finna lögin We Are
The Champions og We Will Rock
You. Hljómsveitin var síðan
fyrsta stóra rokkhljómsveitin til
að halda í tónleikaferðalag um
Suður-Ameríku og spilaði meðal
annars fyrir rúmlega 130.000
manns í Sao Paulo og voru þeir
lengi taldir stærstu tónleikar
sögunnar. Frammistaða hljóm-
sveitarinnar á Live Aid tónleik-
unum í London árið 1985 var af
mörgum talinn hápunktur tón-
leikanna og markaði tímamót á
ferli Queen.
Árið 2002 var söngleikurinn
We Will Rock You frumsýndur
á West End í London og sýndur
þar til ársins 2014. Þar að auki
hefur söngleikurinn verið
sýndur í Japan, Ástralíu, Banda-
ríkjunum, Rússlandi, á Spáni og
víðar.
Árið 2005 héldu Brian og
Roger í fyrstu tónleikaferð
Queen síðan 1986 og komu þeir
lengi vel fram með söngvar-
anum Paul Rodgers. Síðan 2012
hefur söngvarinn Adam Lam-
bert komið fram með hljóm-
sveitinni.
1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R58 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
1
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:3
7
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
4
-6
8
D
4
2
3
2
4
-6
7
9
8
2
3
2
4
-6
6
5
C
2
3
2
4
-6
5
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
0
4
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K