Fréttablaðið - 01.06.2019, Page 10

Fréttablaðið - 01.06.2019, Page 10
KÍNA Tíbeska frelsishreyfingin er enn á lífi þótt breyttar aðstæður hafi dregið úr sýnileika hennar. Þetta segir John Jones, verkefna- stjóri baráttusamtakanna Free Tibet, í samtali við Fréttablaðið. Reglulega var fjallað um stöðu Tíbet í kringum aldamótin. Stór- stjörnur á borð við Richard Gere, Paris Hilton, Steven Seagal og Lisa Simpson hrópuðu „free Tibet!“ og listamenn og hljómsveitir eins og Björk, Beck, Beastie Boys, Radio- head og Pavement komu fram á stórtónleikum í nafni frelsis svæðis- ins og þjóðarinnar sem það byggir. Síðan þá hefur hreyfingin hins vegar svo gott sem horfið af sjónar- sviðinu. Utanríkismálaritið The Diplomat rakti þá þróun fyrr á árinu og sagði að lítill hópur aðgerða sinna hefði drifið hreyfinguna áfram. Menn á borð við Gere hefðu með tíð og tíma farið að einbeita sér að öðru á meðan andlát Adams Yauch úr Beastie Boys dró verulega úr krafti tónlistarinnar í baráttunni. Einn- ig varar blaðamaður ritsins við því að gera lítið úr þeim þætti að tvær Hollywood-myndir um Tíbet komu út á þessum tíma. Tibet-Kundun og Seven Years in Tibet. Þá er ótalinn vaxandi áróðurs- armur kínverskra stjórnvalda. Kína hefur hingað til lagst gegn því að Tíbet öðlist sjálfstæði en svæðið varð að fullu hluti af kommúnista- ríkinu þegar Dalai Lama undir- ritaði sáttmála þess efnis árið 1951 eftir innrás. Kínverjar innlimuðu Tíbet á Yuan-tímanum á 13. öld og gera því tilkall til svæðisins sem var sjálfstætt keisaraveldi fyrir inn- limunina. Benda má á að Tíbetar sjálfir hafa mótmælt Kínverjum af krafti undanfarin ár. Frá árinu 2012 hefur verið greint frá því að 38 tíbeskir munkar og nunnur hafi kveikt í sér í mótmælaskyni. Þetta hefur þó ekki borið árangur. Einnig er vert að Gefast ekki upp á baráttu fyrir Tíbet Enn er barist fyrir frelsi Tíbet þótt dregið hafi verulega úr sýnileika frelsishreyfingarinnar. Verkefnastjóri hjá Free Tibet ræðir við Fréttablaðið og segir aukinn mátt Kínverja hafa þaggað niður í frelsissinnum. Stjörnur sætt banni fyrir að tjá sig og styðja Tíbet. Tíbeska þjóðfrelsishreyfingin var öllu meira áberandi á árum áður. NORDICPHOTOS/GETTY Frá árinu 2012 hafa 38 tíbeskir munkar og nunnur kveikt í sér í mótmælaskyni. minnast á óeirðir og mótmæli ársins 2008 þegar hundruð særðust. Að sögn Jones hefur upprisa Kína á alþjóðasviðinu og valdbeiting Kínverja haft mikil áhrif á tíbesku frelsishreyfinguna. „Leikarar og tónlistarmenn sem styðja Tíbet hafa sætt banni í Kína og það leitt til ákveðinnar sjálfritskoðunar.“ Jones segir hins vegar að hreyf- ingin hafi aðlagað sig breyttum veruleika. „Aukið vald Kínverja hefur leitt til þess að Vesturlönd funda ekki lengur með Dalai Lama og eru myrk í máli um stöðu Tíb- ets. Til dæmis ákváðu Bretar árið 2008 að hætta að viðurkenna tíb- eska sjálfstjórn. Þetta gerir verk- efni hreyfingarinnar mun erfiðara. Mannréttindabrotin sem eiga sér stað í Tíbet má rekja beint til ólög- legs hernáms Kínverja og þeim linn- ir ekki fyrr en pólitísk lausn finnst.“ Hins vegar vekur það upp von, samkvæmt Jones, að ríki á borð við Bandaríkin og Kanada fjarlægjast nú Kína. „Í þessu felst tækifæri til þess að benda á að Tíbet er sögulegt, sjálfstætt ríki og Tíbetar eiga rétt á sjálfstæði.“ Jones segir mannréttindabrot Kínverja vega þyngst í frelsis- baráttunni. „Frá árinu 2008 hefur Tíbet orðið að einu lokaðasta og kúgaðasta svæði jarðar. Kínverski kommúnistaf lokkurinn einbeitir sér að „stöðugleika“ í Tíbet og nýtir lögleg og ólögleg verkfæri til að ná því markmiði, til dæmis of beldi, hömlur á tjáningarfrelsi og sam- eiginlegar refsingar,“ segir hann og bætir við að Kínverjar hafi hand- tekið Tíbeta fyrir að f lagga fána sínum, eiga myndir af Dalai Lama, ræða við blaðamenn. Þeir hafi verið fangelsaðir án dóms og laga og sæti pyntingum. Þá nefnir Jones árásir á tíbeska náttúru og hefðbundna lifnaðar- hætti í dreif býli. „Tíbeskir hirðingj- ar hafa verið fjarlægðir og komið fyrir í skipulagðri byggð. Þannig hefur aldagömul menning verið lögð í rúst.“ thorgnyr@frettabladid.is Létu sig flakka úr Eiffel-turninum Það er líklega ekki á allra færi að f ljúga af stað á svokallaðri aparólu niður af annarri hæð Eiffel-turnsins á 90 kílómetra hraða, en þetta létu ofur- hugar í Frakklandi sig hafa í vikunni. Eiffel-turninn fagnar 130 ára afmæli sínu í ár og af því tilefni bauð Perrier vinningshöfum í leik fyrirtækisins upp á þetta einstaka ferðalag. Ferðin er um 800 metra löng og veitir alveg ótrúlegt útsýni yfir borg ástarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA NORÐUR- KÓRE A K im Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, er sagður hafa skipað aftöku hóps háttsettra embættismanna lands- ins. Ástæðan er sögð vera niður- staða fundar einræðisherrans við Donald Trump Bandaríkjaforseta sem fram fór í Víetnam í febrúar. Á fundinum hafnaði Trump kröfum Norður-Kóreumanna um afnám þvingana í skiptum fyrir kjarnorkuafvopnun. Einn þeirra sem sagður er hafa verið tekinn af lífi er Kim Hyok- Chol, y f ir maðu r samninga- nefndarinnar sem fór fyrir sam- skiptunum á fundinum. Hann ásamt fjórum öðrum embættis- mönnum er sagður hafa stundað njósnir fyrir Bandaríkin. Emb- ættismennirnir fjórir hafa einn- ig verið teknir af lífi. Frá þessu er greint í suðurkóreska blaðinu Chosun Ilbo. – bdj Embættismenn teknir af lífi í Norður-Kóreu Donald Trump og Kim Jong Un á fundi í febrúar. NORDICPHOTOS/AFP 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 1 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 7 F B 1 0 4 s _ P 0 9 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 4 -6 8 D 4 2 3 2 4 -6 7 9 8 2 3 2 4 -6 6 5 C 2 3 2 4 -6 5 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 0 4 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.