Fréttablaðið - 01.06.2019, Page 26

Fréttablaðið - 01.06.2019, Page 26
EF ÉG VERÐ EKKI VINUR NEMENDA MINNA GET ÉG EKKI LÆRT MEÐ ÞEIM. ÞAÐ GERIST EITTHVAÐ SEM ÁTTI EKKI ENDI- LEGA AÐ GERAST. EITTHVAÐ SMELLUR. Guðmundur Oddur Magnússon, rann-s ó k n a r p r ó f e s s o r v ið List a há skóla Íslands, alltaf kall-aður Goddur, er með vinnustofu sína í húsi við Seljaveg í Reykjavík sem er verið að rífa. Allt í kring eru kranar og vinnuvélar að rífa niður húsveggi. Rétt við inn- ganginn er risavaxið gat í gegnum alla bygginguna og blaðamaður þræðir sig í gegnum vinnusvæðið og veltir því fyrir sér hvort það hefði verið skynsamlegt að vera með hjálm. Eða hvort það er skynsam- legt að vera á svæðinu yfirhöfuð. En Goddur er sallarólegur. „Það á ekki að rífa niður þennan hluta hússins, fyrr en í byrjun júlí, ég treysti á að því seinki eitthvað eins og öllum framkvæmdum á Íslandi,“ segir hann. Hu ndu r inn hans Pippa er félagi hans þennan daginn á lit- ríkri vinnustofunni sem er hlaðin bókum, prentverki og plakötum. Goddur fékk fyrir ári úthlutaðan stóran rannsóknarstyrk frá Rann- ís, til tveggja ára, vegna verkefnis- ins „Sjónarfur í samhengi: notkun myndmáls í prentsögu Íslands frá 1844-1944“ og hann hefur ráðið fólk í rannsóknarvinnu. Síðar í sumar flytur hann vinnustofu sína í glæsi- legt húsnæði í Gufunesi. Landnemi í Gufunesi „Ég verð landnemi í Gufunesi og flyt í húsnæði með sjö metra lofthæð. Ég hlakka til því þetta verður magnað samfélag að starfa í. Við þurfum að fara héðan í júlíbyrjun,“ segir Goddur og segist ekki munu sakna þess að starfa í miðbænum. „Lífræn sköpunarstarfsemi í mið- bænum dó fyrir nokkrum árum. Listamenn leita að húsnæði þar sem eru ódýr pláss en þegar túrisminn hélt innreið sína voru allar fast- eignir keyptar upp í miðbænum af fasteignafélögum og þeim breytt í hótelíbúðir og f leira. Skapandi fólk f lykktist þá út á Granda og í austurborgina en nú er allt orðið of dýrt þar líka,“ segir hann og segir að það líti út fyrir að Reykjavíkur- borg munu styðja listsamfélagið í Gufunesi. „Borgin verður þarna með húsnæði með vinnustofum og styður þannig við samfélagið, þarna verður líka ylströnd og stöndug kvikmyndafyrirtæki, til dæmis RVK Studios hans Baltasars. Það er margt komið í deigluna nú þegar vegna þessa nýja samfélags. Við ætlum til dæmis að búa til aðstöðu fyrir 35 hönnunarnema sem koma frá heitasta hönnunarskóla Hol- lands (KABK) hingað til lands. Þeir fá aðstöðu í Gufunesi í nokkra daga og í LungA-skólanum á Seyðisfirði,“ segir Goddur frá. Lung A-skólinn er tilrauna- kenndur, alþjóðlegur listaskóli sem var stofnaður árið 2013 og tekur við nemendum víðsvegar að úr heim- inum og á öllum aldri. Þó að Goddur kenni ekki lengur við Listaháskóla Íslands hefur hann verið viðloðandi starf LungA-skólans. Kennarar séu vinir nemenda „LungA-skólinn er svo mikil fyrir- myndarstofnun að mínum smekk. Hann er ekki miðstýrður og þar er ekki áhugi á vandamálum fólks heldur eingöngu styrkleikum. Fólk fer í skólann af alls kyns ástæðum. Sem dæmi kom þarna kona sem var starfandi læknir en í strandi með líf sitt. Hún vaknaði upp við það einn daginn að hún hafði orðið læknir af því aðrir vildu það meira en hún sjálf. Foreldrar hennar voru læknar en hana langaði alltaf til þess að verða rithöfundur. Hún kom í skól- ann til þess að öðlast styrk til að breyta lífi sínu.“ Goddur tengir saman nám og sjálfsþekkingu. Bestu aðstæður til þess að laða fram styrkleika fólks séu krísur eða átök og hlutverk kennara í listum geti aldrei verið Goddur á skrif- stofu sinni á Seljavegi, hann verður einn landnema í Gufunesi í haust. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR Bíðum eftir sprengjunni Bestu aðstæður til þess að laða fram styrkleika fólks eru krísur eða átök og hlutverk kennara í listum má aldrei vera að leiða slíkt hjá sér, segir Guðmundur Oddur Magnússon rannsóknarprófessor sem segir listnám að þróast í ranga átt. að leiða slíkt hjá sér. Þeir eigi að aðstoða ungt fólk við að finna sjálft sig og styrkleika sína. Góðir kenn- arar eru alltaf að læra sjálfir. „Ef ég verð ekki vinur nem- enda minna get ég ekki lært með þeim. Það gerist eitthvað sem átti ekki endilega að gerast. Eitthvað smellur. Svoleiðis voru bestu kenn- arar mínir. Við bíðum stundum eftir þessu, bíðum eftir sprengj- unni. Þetta er gullgerðarlistin, að leysa í sundur til að setja saman,“ segir Goddur sem segist þekkja það vel sjálfur að eiga ekki beina línu í námi. „Ég er „droppát“ úr menntaskóla og það tók mig síðan þrjár tilraunir að komast inn í Myndlista- og hand- íðaskólann. Ég brotnaði ekki heldur tvíefldist og kláraði fornámið á einu ári í stað tveggja og fór svo áfram í grafíkdeild og síðar í nýlistadeild. Síðar fór ég til Vancouver í Bresku- Kólumbíu til að læra grafíska hönnun. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 1 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 7 F B 1 0 4 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 2 4 -7 2 B 4 2 3 2 4 -7 1 7 8 2 3 2 4 -7 0 3 C 2 3 2 4 -6 F 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 0 4 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.