Fréttablaðið - 01.06.2019, Page 68

Fréttablaðið - 01.06.2019, Page 68
Karel Ingvar Karelsson hefur verið umsjónarmaður sjó-mannadagsins í Hafnarfirði áratugum saman, en hann hefur tekið þátt síðan árið 1958, þegar hann reri fyrst með unglingasveit í kappróðrinum. Hann segir að hátíðahöldin séu möguleg vegna þess að svo margir leggjast á eitt. „Það er frábært fólk í þessu og það má segja að í Hafnarfirði sé sam- félagslegt átak til að gera daginn sem bestan,“ segir Karel. „Við fáum ómældan stuðning frá óramörgum og það er ástæða til að þakka vel fyrir alla þessa hjálp, það er hún sem gerir þessa hátíð svo góða.“ Karel segir að dagskráin verði þétt og fjölbreytt. „Lúðrasveit Hafn- arfjarðar spilar alltaf við Hrafnistu klukkan tíu á morgnana og svo spilar hún líka á hátíðasvæðinu síðar um daginn. Klukkan hálf- ellefu leggja svo sjómannsekkjur blómsveig við Víðistaðakirkju til minningar um horfna sjómenn,“ segir Karel. „Síðan verður messa í Hafnarfjarðarkirkju, en einnig verða nítján börn fermd í Frí- kirkjunni. Það verður líka boðið upp á skemmtisiglingu í boði Hafnar- fjarðarhafnar milli eitt og fimm,“ segir Karel. „Svo er alltaf haldinn kappróður, sem er ekki lengur í Reykjavík. Þetta er gömul hefð frá því um 1950 sem við höfum haldið í heiðri og í ár ætla níu sveitir að róa, sem er mesta þátttaka sem hefur verið í langan tíma. Við ætlum líka að heiðra fjóra sjómenn, en eftir það höfum við alls heiðrað 217 sjómenn, ásamt konum sem hafa tekið öflugan þátt í starfi Slysavarnafélagsins,“ segir Karel. Klukkan fjögur fara svo úrslitin í aflraunakeppninni Sterkasti maður Íslands fram, en þetta er í fyrsta sinn sem þau eru hluti af sjó- mannadagshátíðinni í Hafnarfirði,“ segir Karel. „Sigurvegarinn hlýtur titilinn „sterkasti maður á Íslandi“ og keppir á stórmótum erlendis fyrir hönd Íslands. Svo verður björgunarsveitin með björgunarsýningu og Hafrann- sóknastofnun sýnir furðufiska, ásamt ýmsu öðru,“ segir Karel. Karel segir að sjómannadags- hátíðin hafi breyst í gegnum tíðina að því leyti að nú taki miklu færri sjómenn þátt í hátíðahöldunum. Þannig sé sjómannadagurinn frekar orðinn bæjar- eða hafnar- hátíð. „Fólkið sem er að róa í kapp- róðrinum núna er til dæmis allt fólk sem kemur úr öðrum áttum en sjómennsku,“ segir hann. Karel vonast eftir góðu veðri, góðri þátttöku og að dagurinn takist vel. „Við vonum að fólki líki það sem við erum að gera,“ segir hann. „Árangurinn ræðst líka að miklu leyti af þátttökunni. Aðal- atriðið er að fá fólkið, því annars verður engin hátíð.“ Dagskrá sjómannadagsins í Hafnarfirði er að finna á heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar. Engin hátíð án fólksins Á sjómannadaginn verða glæsileg hátíðarhöld í Hafnarfirði. Það verða ýmsir viðburðir og skemmtiatriði, en umsjónarmaður hátíðarinnar segir að samfélagslegt átak geri daginn góðan. Karel þakkar öllum sem styðja Sjómannadagshátíðina í Hafnarfirði. Hann segir að öll hjálpin sé það sem geri há- tíðina góða. Samfélagslegt átak er í Hafnarfirði til að gera daginn sem bestan, segir hann.FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Kappróðurinn er gömul hefð frá því um 1950. Barátta fyrir betra lífi Effekt hönnun slf. Kaupvangsstræti 23 // Listagilið // 600 Akureyri www.effekt.is Þórhallur Kristjánsson - grafískur hönnuður, FÍT gsm 893 3262 // halli@effekt.is Uppfærsla á merki Landssamtaka lífleyrissjóða Landslagsútgáfa (landscape) Línum einungis ætlað að sýna samspil leturs og tákns: 1/2 09.05.2019 2 0 1 9 1 9 3 9 Sjómannadagurinn Bolungarvík Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis Sendum íslenskum sjómönnum árnaðaróskir á Sjómannadaginn 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 0 1 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :3 7 F B 1 0 4 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 4 -A 4 1 4 2 3 2 4 -A 2 D 8 2 3 2 4 -A 1 9 C 2 3 2 4 -A 0 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 3 1 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.