Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 30
Var þá mörgum
nóg boðið og
nokkrir krakkar fóru að
skæla.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Þriðja september árið 1919, aðeins 15 árum eftir að Wright bræður hófu sig til
f lugs fyrstir manna, fór f lugvél
af stað í Vatnsmýrinni í Reykja-
vík. Samkvæmt Morgunblaðinu
var sunnangola í Vatnsmýrinni
þennan dag, alskýjaður himinn
yfir Reykjavík og hiti um 14
gráður. Flugvélin Avro 504K hóf
sig svo á loft seinni partinn. Avro
504K flugvélar voru opnar tví-
þekjur sem gátu borið einn farþega
auk flugmanns og höfðu þriggja
tíma flugþol. Flughraðinn var um
100 kílómetrar á klukkustund.
Flugmaðurinn var Cecil Torben
Faber og var aðeins tvítugur.
Cecil var herflugmaður úr breska
hernum, sonur danska stjórnar-
ráðunautarins Haralds Fabers,
sem starfaði í Lundúnum.
„Vélin leið áfram um loftið eins
og risavaxinn fugl, stöðugri en
nokkur vagn á rennisléttum vegi,
sneri sér í krappar beygjur og
tyllti sér eftir dálitla stund aftur
á grassvörðinn,“ sagði í Morgun-
blaðinu daginn eftir. Þar segir enn
fremur að margt fólk hafi safnast
saman til að skoða vélina og sumir
borguðu 50 aura til að skoða
þennan furðugrip. Þegar Faber hóf
sig á loft í seinna skiptið klapp-
aði mannfjöldinn og hrópaði.
„Þegar hún losnaði við jörðina,
dundi við lófaklapp allra og köll
margra. Fjöldinn allur hafði aldrei
séð flugvél lyfta sér til f lugs áður
og það hefir einkennileg áhrif á
jarðbundnar verur. Ekki aðeins
mennina. Hestarnir á næsta túni
við flugvöllinn gláptu á þetta
furðuverk og voru stein-
hissa. Og einn hundur
ætlaði að tryllast.
Flugvélin smáhækkaði í lofti og
vatt sér í hringum upp í 500 metra
hæð og leið þar áfram. Öðru hvoru
stöðvaði f lugmaðurinn mótorinn,
steypti vélinni beint niður á
nokkra tugi metra og rétti við
aftur. Var þá mörgum nóg boðið
og nokkrir krakkar fóru að skæla,“
segir í frásögn Morgunblaðsins
1919.
146 ferðir
Fyrsti f lugfarþeginn á Íslandi var
Ólafur Davíðsson, útgerðarmaður
í Hafnarfirði. Tveimur dögum
síðar fór fyrsta konan um borð
og var það Ásta Magnúsdóttir,
sem síðar varð ríkisféhirðir. Alls
fór Avro-vélin 146 ferðir á sextán
flugdögum. Síðan var hún tekin í
sundur og geymd í skýli fram að
sumrinu 1920. Flugmálafélagið,
Þristavinafélagið og Isavia hafa
minnst þessara tímamóta síðustu
vikurnar.
Fyrst var því fagnað með komu
fjölmargra svonefndra Þrista,
véla af gerðinni Douglas DC-3,
sem komu hingað til lands á leið
100 ára
flugsaga
Íslands
Þann 3. september árið 1919 hóf
fyrsta flugvélin sig til lofts á Íslandi og
gerðist það í Vatnsmýrinni. Flugmála-
félagið, Þristavinafélagið og Isavia
hafa minnst þessara tímamóta en
fjölmenni var á hinum árlega flugdegi.
Avro 504K
flugvél, líkt og
kapteinninn
ungi, flaug yfir
höfuðborgina
í september
1919.
Um 1980, Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli. Stæða af bjór sem flugáhafnir gátu einungis keypt.
Mynd af Vought OS2U Kingfisher á leið til Íslands sem tekin var um borð í USS New York árið 1945. NORDICPHOTOS/GETTY
frá Bandaríkjunum til Bretlands
til þátttöku í minningarathöfn
vegna innrásarinnar í Normandí
í júní 1944. Almenningi var boðið
að skoða þær vélar á Reykjavíkur-
flugvelli í síðari hluta maímánaðar.
Fimmtudaginn 23. maí flutti Arn-
þór Gunnarsson sagnfræðingur, og
höfundur bókarinnar Saga flugvalla
og flugleiðsögu á Íslandi, erindi um
sögu Reykjavíkurflugvallar.
Fjallað var um flugvallargerðina
á árum síðari heimsstyrjaldar,
þróun flugvallarins og langvinnar
deilur um staðsetningu og starf-
semi Reykjavíkurflugvallar allt frá
því að Bretar gerðu flugvöllinn.
Kapteinn Faber
Í Morgunblaðinu síðar í september 1919 segir frá hinum unga Faber.
„Til vígstöðvanna fór capt. Faber í desember 1915 og tók þá til
óspilltra málanna. Tæpum tveim mánuðum síðar lenti hann í viður-
eign, sem nærri hafði riðið bonum að fullu. Hann fékk kúlu í fæturna
og brotnaði annar. Capt. Faber var þá við annan mann í vélinni. Þegar
hann varð fyrir skotinu, var hann í 7000 feta hæð. Hann missti sem
snöggvast meðvitundina af sársaukanum, en þegar hann rankaði við
sér aftur, voru ekki nema 1500 fet til jarðar.
Hann var staddur yfir vígstöðvum Þjóðverja og nál. 40 kílómetra
leið heim til herbúða Breta. Komst bann þó slysalaust heim, en var
veikur hér um bil heilt ár á eftir. I aprílmánuði 1918 særðist capt.
Faber aftur, en ekki eins stórvægilega. Var hann þá aleinn í vél sinni
með þrjár hríðskotabyssur og varð fyrir skoti neðan af jörðunni. Lá
hann þrjár vikur í sárum, en fór ekki í ófriðinn aftur. Hann gerðist þá
flugkennari í Bretlandi. Í ófriðnum skaut hann niður fimm þýzkar
flugvélar og þá sjöttu veit hann ekki um, hvort hún féll niður eða gat
bjargað sér undan, því hún hvarf sjónum.“
4 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RKEFLAVÍKURVÖLLUR
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
4
-E
2
0
0
2
3
5
4
-E
0
C
4
2
3
5
4
-D
F
8
8
2
3
5
4
-D
E
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K