Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 43
Störf í boði hjá Reykjanesbæ Aðstoðarmaður bæjarstjóra Reykjanesbær auglýsir starf aðstoðarmanns bæjarstjóra laust til umsóknar. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Teymishugsun, samstarfsvilji, lipurð og hæfni í samskiptum einkenna aðstoðarmann bæjarstjóra ásamt skipulagshæfileikum, sveigjanleika og víðsýni. Starf aðstoðarmanns felur í sér að aðstoða bæjarstjóra við dagleg verkefni. Aðstoðarmaður undirbýr fundi og viðburði sem bæjarstjóri tekur þátt í sem og ýmis verkefni og samskipti. Aðstoðarmaður tekur á móti og greinir ýmis erindi sem berast bæjarstjóra og kemur í réttan farveg. Vinnutími aðstoðarmanns er sveigjanlegur og búast má við tímabundnum sveiflum í álagi. Starfssvið: ■■ Vinna að samhæfingu og eftirfylgni verkefna sem bæjarstjóri felur honum. ■■ Fylgja eftir stefnumótun Reykjanesbæjar og verkefnum. ■■ Aðstoða við ritun bréfa, greinargerða og ávarpa. ■■ Umsjón með dagbók bæjarstjóra og bókun funda og viðburða. ■■ Svarar fyrirspurnum um málefni sem bæjarstjóri felur viðkomandi. ■■ Vinnur að samhæfingu og eftirfylgni verkefna sem bæjarstjóri felur honum. Menntunar- og hæfniskröfur: ■■ Háskólamenntun sem nýtist í starfi. ■■ Reynsla af stjórnun verkefna æskileg. ■■ Þekking og reynsla af starfsumhverfi sveitarfélaga og opinberri stjórnsýslu. ■■ Mjög góð tölvukunnátta. ■■ Góð íslensku- og enskukunnátta og geta til að tjá sig í ræðu og riti. Lýðheilsufræðingur Reykjanesbær auglýsir starf lýðheilsufræðings laust til umsóknar. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Teymishugsun, samstarfsvilji, lipurð og hæfni í samskiptum einkenna lýðheilsufræðing ásamt skipulagshæfileikum, sveigjanleika og víðsýni. Lýðheilsufræðingur sinnir verkefnum á sviði forvarna og lýðheilsumála hjá Reykjanesbæ og vinnur að uppbyggingu heilsueflandi samfélags í samræmi við lýðheilsustefnu. Hlutverk lýðheilsufræðings er að vinna að forvarnarmálum í sinni breiðustu mynd í góðu samstarfi við aðra starfsmenn, svo sem íþrótta-og tómstundafulltrúa. Starfssvið: ■■ Stýrir innleiðingu lýðheilsu- og forvarnarstefnu. ■■ Heldur utan um tölfræðileg gögn á sviði lýðheilsumála í samtarfi við hagdeild. ■■ Vinnur með hagsmunaaðilum á sviði heilsueflingar, bæði innan og utan starfsemi Reykjanesbæjar. ■■ Ber ábyrgð á upplýsingagjöf og hvatningu til íbúa ■■ Ber ábyrgð á gerð starfsáætlunar fyrir sín verkefni í samstarfi við sviðsstjóra. Menntunar- og hæfniskröfur: ■■ Háskólamenntun í lýðheilsufræðum. ■■ Reynsla af stjórnun lýðheilsuverkefna æskileg. ■■ Þekking og reynsla af starfsumhverfi sveitarfélaga og opinberri stjórnsýslu. ■■ Mjög góð tölvukunnátta. ■■ Góð kunnátta í íslensku og ensku og geta til að tjá sig í ræðu og riti. Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu. Umsóknarfrestur um öll störfin er til 8. júlí. Sótt er um á www.reykjanesbaer.is undir Laus störf. Umsókn fylgi starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Laun eru skv kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélags viðkomandi. Nánari upplýsingar veitir Kristinn Óskarsson, mannauðsstjóri Reykjanesbæjar, kristinn.oskarsson@reykjanesbaer.is eða í síma 421-6700 Fjármálastjóri Reykjanesbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og kraftmikinn fjármálastjóra til að starfa í öflugu teymi starfsmanna á fjármálaskrifstofu bæjarins. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Fjármálastjóri þarf að búa yfir forystuhæfni, færni í samskiptum og hafa styrk til að taka ákvarðanir. Þá skal viðkomandi hafa góða greiningarfærni, lausnamiðaða hugsun og geta unnið undir álagi. Markmið starfs: Að stýra fjármálaskrifstofu Reykjanesbæjar, styðja bæjarráð við framlagningu, samþykkt og framkvæmd fjárhagsáætlunar, gerð og kynning viðauka við fjárhagsáætlun og leiða umbætur og styrkingu á umgjörð fjármála Reykjanesbæjar. Þá undirbýr fjármálastjóri greiningar og gagnaöflun vegna undirbúnings þeirrar stefnumótunar sem unnin er undir forystu bæjarráðs á sviði fjármála. Starfssvið: ■■ Hefur yfirumsjón með undirbúningi stefnumótunar og þróun umbóta á sviði fjármála Reykjanesbæjar. ■■ Hefur yfirumsjón með fjárreiðum Reykjanesbæjar og B-hluta stofnana. ■■ Hefur yfirumsjón með starfsemi launadeildar, reikningshalds og hagdeildar. ■■ Hefur yfirumsjón með skýrslugerð um fjármál og kynningu þeirra fyrir kjörnum fulltrúum og opinberum aðilum. ■■ Hefur yfirumsjón með gerð fjárhagsáætlana og gerð viðauka í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. ■■ Hefur umsjón með rekstrareftirliti og þróun þess. ■■ Styður við stjórnendur og kjörna fulltrúa á sviði reksturs og fjármála. ■■ Gerð ársreiknings. Menntunar- og hæfniskröfur: ■■ Háskólamenntun á sviði fjármála-, viðskipta-, hagfræði eða sambærileg menntun. Meistarapróf æskilegt. ■■ Þekking og reynsla af stjórnun fjármála skilyrði. ■■ Góð þekking og reynsla í gerð reikningsskila, stjórnendaupplýsinga ásamt greiningu á rekstrarafkomu sviða. ■■ Þekking á Navision og ferlum því tengdu nauðsynleg. ■■ Mjög góð íslensku- og enskukunnátta. ■■ Sjálfstæð og öguð vinnubrögð. Forstöðumaður Súlunnar Reykjanesbær auglýsir starf forstöðumanns Súlunnar. Súlan er ný skrifstofa þar sem ýmsir málaflokkar heyra undir m.a. atvinnumál, menningarmál, markaðs- og kynningarmál, ferðamál, safnamál og verkefnastjórnun. Hjá Súlunni starfa sérfræðingar viðkomandi málaflokka en Súlan starfar þvert á svið til að auka þjónustu og bæta lífskjör bæjarbúa Reykjanesbæjar og gesta þeirra. Þá er forstöðumanni ætlað að innleiða aðferðir verkefnastjórnunar til starfsmanna Reykjanesbæjar. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Teymishugsun, samstarfsvilji, lipurð og hæfni í samskiptum skulu einkenna forstöðumann ásamt skipulagshæfileikum, sveigjanleika og víðsýni. Starf forstöðumanns Súlunnar felur í sér ábyrgð á stjórnun, stefnumótun og þjónustu þeirra stofnana sem undir Súluna heyra. Forstöðumaður er talsmaður Súlunnar og ber ábyrgð á því að starfsemi skrifstofunnar sé í samræmi við gildandi lög og reglugerðir. Starfssvið: ■■ Ber ábyrgð á innleiðingu verkefnastjórnunar sem stjórnunaraðferð í starfsemi Reykjanesbæjar. ■■ Ber ábyrgð á innleiðingu og vinnu með stefnumótun Reykjanesbæjar á verkefnasviði Súlunnar og fylgir eftir verkefnum. ■■ Ber ábyrgð á því að efla og samræma kynningar- og markaðsmál Reykjanesbæjar. ■■ Ber ábyrgð á framkvæmd þjónustusamninga Reykjanesbæjar við ytri aðila á verkefnasviðum Súlunnar. ■■ Hefur umsjón með og vinnur að gerð fjárhagsáætlana Súlunnar í samstarfi við fagnefnd og aðra starfsmenn. ■■ Ber ábyrgð á gerð starfsáætlunar fyrir þau verkefni sem heyra undir Súluna. Menntunar- og hæfniskröfur: ■■ Háskólamenntun sem nýtist í starfi. ■■ Menntun og reynsla á sviði verkefnastjórnunar er skilyrði. ■■ Þekking og reynsla af þeim málaflokkum sem undir starfið heyra. ■■ Þekking og reynsla af starfsumhverfi sveitarfélaga og/eða opinberri stjórnsýslu. ■■ Þekking á lögum og reglugerðum er varða starfsemina. ■■ Mjög góð tölvukunnátta. ■■ Góð kunnátta í íslensku og ensku og geta til að tjá sig í ræðu og riti. HÖ NN UN : V ÍK UR FR ÉT TIR Reykjanesbær er fjórða stærsta sveitarfélags landsins með um 19 þúsund íbúa. Hjá Reykjanesbæ starfar samhentur hópur starfsmanna sem hefur það að leiðarljósi að þjónusta við íbúa bæjarfélagsins sé eins og best verður á kosið hverju sinni. Við bjóðum góða starfsaðstöðu, jákvætt andrúmslof og tækifæri til starfsþróunar. Framtíðarsýn Reykjanesbæjar; Fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, virðingu og eldmóði. Við óskum eftir að ráða til okkar öflugt fólk til að ganga til liðs við stjórnendahóp bæjarins sem býr yfir frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Það sem einkennir lykilstarfsfólk Reykjanesbæjar er teymishugsun, samstarfsvilji, lipurð og hæfni í samskiptum ásamt skipulagshæfileikum, sveigjanleika og víðsýni. 2 9 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 3 F B 0 8 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 4 -E B E 0 2 3 5 4 -E A A 4 2 3 5 4 -E 9 6 8 2 3 5 4 -E 8 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.