Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 64
Útför
Herdísar Maríu
Jóhannsdóttur
fer fram frá Víðistaðakirkju
miðvikudaginn 3. júlí klukkan 15.00.
Guðný Harðardóttir Guðjón Ármann Jónsson
Guðrún Auður Harðardóttir
Erla Ruth Harðardóttir
barnabörn og langömmubörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Lára Árnadóttir,
umsjón útfara
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Gunnsteinn Ólafsson er listrænn stjórnandi Þjóðlagahátíðarinnar á Siglufirði. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bluegrass-hljómsveitin Strá-kurr er meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni.
Árlega er haldin tónlistar-hátíð á Siglufirði sem hefur það að markmiði að kynna þjóðlagaarf ólíkra þjóða og þjóðar-brota. Á hátíðinni hefur
tónlist fjölmargra þjóða verið kynnt
auk þess sem íslensk þjóðlög sitja ætíð
í öndvegi. Hátíðin stendur frá miðviku-
degi til sunnudags fyrstu heilu vikuna í
júlí ár hvert.
Gunnsteinn Ólafsson hefur verið list-
rænn stjórnandi hátíðarinnar frá upp-
hafi. Hann segir hátíðina vera í undir-
búningi árið um kring. Helstu drættir
dagskrár liggja fyrir um áramót þótt
þungi undirbúnings sé á vordögum.
„Markmið hátíðarinnar er að hvetja
ungt fólk til að takast á við þjóðlagaarf
ólíkra þjóða og þjóðarbrota. Það þarf að
gefa þeim færi á að koma fram og koma
þeim á sporið,“ segir Gunnsteinn.
Hann segir að í ár sé margt efnilegt
fólk á ferðinni. Listamenn frá Banda-
ríkjunum, Noregi, Þýskalandi og Finn-
landi koma fram á hátíðinni auk fjöl-
margra íslenskra listamanna. Á meðal
flytjenda eru Gyða Valtýsdóttir tónskáld
sem nýlega var tilnefnd til Tónlistarverð-
launa Norðurlandaráðs, Bjarni Thor
Kristinsson bassasöngvari, þjóðlaga-
sveitin Umbra og bluegrass-hljómsveitin
Strá-kurr. Frá Noregi koma góðir gestir.
Þjóðlagasveitin Felaboga (fiðlubogi á
norsku) leikur saknaðarsöngva norskra
innflytjenda í Bandaríkjunum og söng-
konan Johanna Zwaig og fiðluleikarinn
Ragnar Heyerdahl leika og syngja ástar-
og baráttusöngva úr öllum heimshorn-
um. Ný íslensk kórtónlist verður flutt af
kórnum Klið, en hann er einkum skip-
aður söngelskum tónskáldum. Vikivaka-
dansar verða kenndir og slegið verður
upp bandarísku sveitaballi. Þá leikur
Steiney Sigurðardóttir sellókonsert Dvo-
ráks með Sinfóníuhljómsveit unga
fólksins á tónleikum í Siglufjarðarkirkju
undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar, list-
ræns stjórnanda hátíðarinnar.
Auk ýmissa tónleika er boðið upp á
margs konar námskeið fyrir börn og
fullorðna auk þjóðlagaakademíunnar
þar sem kennd er íslensk og erlend þjóð-
lagatónlist. Á stökum námskeiðum
kennir Jelena Ćirić serbneska þjóðlaga-
tónlist, bandaríski söngvarinn Paul
Kirby heldur námskeið í bandarískri
bluegrass-tónlist og Tómas Manoury
opnar heim yfirtónasöngs fyrir gestum
hátíðarinnar. Örlygur Kristfinnsson
heldur námskeið um húsin á Siglufirði
og loks stendur Anna Jónsdóttir söng-
kona fyrir þjóðlaganámskeiði fyrir börn
á aldrinum 5-11 ára.
Gunnsteinn segir að áætla megi að um
tvö þúsund miðar verði seldir. Margir
þeir sem sækja tónlistarhátíðina séu að
sækja fleiri en eina tónleika, jafnvel alla.
Nánari upplýsingar eru á vef hátíðar-
innar er www.siglofestival.com.
david@frettabladid.is
Tónveisla á Siglufirði
Ástkær eiginmaður minn,
Hafsteinn Steinsson
rennismiður
frá Hrauni á Skaga, síðast til heimilis
að Suðurlandsbraut 58,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
þriðjudaginn 25. júní sl.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
5. júlí kl. 13.
Kristín Þórdís Davíðsdóttir
Ást og uppreisn er þema
tuttugustu þjóðlaga-
hátíðarinnar á Siglufirði
sem haldin verður dagana
3.-7. júlí.
1561 Eiríkur 14. er krýndur konungur Svíþjóðar.
1613 Leikhús Shakespeares, The Globe í London, brennur til kaldra
kola eftir að neisti barst úr fallbyssu við sýningu á Hinriki 8.
1632 Gísli Oddsson er kjörinn Skálholtsbiskup á Alþingi.
1700 Friðriki 5. konungi unnir trúnaðareiðar á Alþingi.
1802 Fyrsti dómur Landsyfirréttar er kveðinn upp.
1912 Nýja bíó í Reykjavík hefur kvikmyndasýningar á Hótel Íslandi.
1941 Flutningaskipinu Heklu sökkt á leið frá Íslandi til Banda-
ríkjanna. Talið var að þýskur kafbátur hefði verið að verki. Fjórtán
manns fórust en sex björguðust eftir tíu sólarhringa hrakninga á
fleka.
1952 Ásgeir Ásgeirsson var kjörinn forseti Íslands.
1974 Isabel Perón verður forseti Argentínu eftir lát eiginmanns
síns, forsetans Juans Perón.
1976 Seychelleseyjar fá sjálfstæði frá Bret-
landi.
1980 Vigdís Finnbogadóttir er kjörin for-
seti Íslands, fyrst allra kvenna í heiminum
til að verða þjóðkjörinn þjóðhöfðingi.
1996 Ólafur Ragnar Grímsson er
kjörinn forseti Íslands.
2006 Konur fá kosningarétt í
Kúveit.
2007 Snjallsími Apple, iPhone,
kemur á markað í Bandaríkjunum.
Merkisatburðir
1612 Eldgos brýst út í Kötlu.
1890 Landshöfðingi vígir fyrsta síma sem lagður var á Íslandi á
milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Í Fjallkonunni er fyrirbærið kallað
„málþráður“.
1902 Landakotsspítali er tekinn í notkun, hann er reistur og rekinn
af Sankti Jósefssystrum.
1923 Walt Disney stofnar Disney-fyrirtækið ásamt bróður sínum
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
4
-C
4
6
0
2
3
5
4
-C
3
2
4
2
3
5
4
-C
1
E
8
2
3
5
4
-C
0
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K