Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 62
ÞAÐ ER EIRÍKUR FJALAR Í
FLESTUM. HANN LEYNIST
VÍÐA.
Laddi
ÞETTA ER Í ANNAÐ SKIPTI
SEM ÉG SIT Í VIÐTALI MEÐ
MIKILLI GOÐSÖGN SEM
VILL MEINA ÞAÐ AÐ HANN
HAFI GERT FYRSTA ÍS-
LENSKA RAPPLAGIÐ.
Króli
Söngleikurinn We will rock you verður settur upp hér á landi í fyrsta sinn og hefjast sýningar þann 9. ágúst nk. í Háskólabíói. Söngleikurinn var saminn
af Ben Elton í samstarfi við hljóm-
sveitina Queen og frumsýndur árið
2002 á West End í London. Söngleik-
urinn sló öll aðsóknarmet leikhúss-
ins Dominion Theatre og var sýndur
fyrir fullu húsi fram til ársins 2014.
We will rock you hefur verið
settur á svið á Broadway í New
York, í Ástralíu, á Spáni, í Rúss-
landi og víðar. Einvala lið leikara og
söngvara stígur á svið og gefur sig
hlutverkunum á vald. Ragnhildur
Gísladóttir fer með hlutverk Killer
Queen og á móti henni verður Björn
Jörundur Friðbjörnsson í hlutverki
Kashoggi. En einnig verða þarna
þeir Þórhallur Sigurðsson og Krist-
inn Óli Haraldsson, betur þekktir
sem Laddi, einn ástsælasti leikari
þjóðarinnar, og Króli, ein skærasta
poppstjarnan.
Þeir eru að hittast í fyrsta sinn
augliti til auglitis þegar blaðamann
ber að garði en hafa þó vissulega
vitað hvor af öðrum. Djúpar sam-
ræður um golf eru þó þegar hafnar
og fer vel á með þeim félögum.
Króli: „Ég sá þig reyndar á Gló
fyrir þremur vikum og ætlaði að
heilsa þér.“
Laddi: „Já, ég sá á eftir þér líka.
Ég hefði heilsað þér en ég sá bara
svona aftan á þig. En ég hef nú fylgst
nokkuð vel með þér. Ég held upp á
strákana.“
Króli: „Já, innilega sömuleiðis.
Við erum líka báðir Gaflarar.“
Og báðir spila þeir golf. Annar þó
meira en hinn.
Laddi: „Ég spila mikið og hef verið
í golfi undanfarin 30 ár og er að
keppa líka. Ég er í landsliði öldunga.“
Þegar viðtalið er tekið er Laddi
á leið til útlanda að keppa í golfi.
Hann segist lítið hafa verið í leikhúsi
undanfarin ár sem sé aðallega vegna
þess að sviðið skarast við golfið.
Hann segist frekar vilja vinna fyrir
sjálfan sig og finnst vont að vera fast-
ur. Golfið á hug hans og hjarta. En í
þetta sinn kallar söngurinn á hann.
Hvaða hlutverk farið þið með í
söngleiknum?
Laddi: „Tja, ég verð nú að segja
eins og er að ég hef ekki hugmynd
um það. Við fáum handritið f ljót-
lega og engar æfingar eru byrjaðar
eins og er.“
Króli: „Ég er svona hálfu skrefi á
undan þér. Ég er ekki kominn með
handrit en ég veit að ég fer með hlut-
verk Galíleós í sýningunni.
Laddi: „Það er eitt aðalhlutverkið,
skilst mér.“
Króli: „Jú, það er rétt og það er
mikill heiður.“
Hafið þið tekið þátt í söngleik
áður?
Laddi: „Já, ég hef gert það oft áður
og mér finnst það eitt það skemmti-
legasta sem maður gerir í leikhúsi,
skemmtilegra en að leika bara.“
Króli: „Enda ertu frábær söngvari.
Ég fékk símtal þegar ég var á leið til
London og var boðaður í prufu. Ég
er svona aðeins að skoða landslagið
í leiklist. Mig hefur alltaf langað til
þess að verða leikari. Ég er að hugsa
um að sækja um í skóla fyrir næsta
haust. Mig langar að vera erlendis í
leiklistarskóla og vonandi gengur
það eftir. Það væri alveg gott að
bæði taka smá frí frá Íslandi og að
prófa eitthvað nýtt. Ég er ótrúlega
spenntur fyrir því. En það er eigin-
lega fáránlegt að veita mér svona
stórt tækifæri. Ég vona bara að ég
bregðist engum.“
Sem Króli mun mjög ólíklega gera.
Samhliða því að vera tónlistarmað-
ur hefur Króli farið með hlutverk í
Óvitum sem sett var upp í Þjóðleik-
húsinu 2014 en einnig hefur hann
farið með hlutverk í þáttaröðinni
Ófærð, kvikmyndinni Georg Bjarn-
freðarson og áramótaskaupum svo
eitthvað sé nefnt.
Hvetur þú hann til þess Laddi?
Laddi: „Já, algjörlega. Ég fór í leik-
listarskóla í Los Angeles, UCLA og
það var mjög gaman. En ég staldraði
þó aðeins við í eina önn og kom svo
heim aftur. Þá sótti ég um í Félag
íslenskra leikara og var samþykktur
þar. Ég er ekki lærður leikari. En ég
er búinn að vinna í svo mörg ár með
alls konar leikstjórum og mótleik-
urum og það er lærdómurinn. Þar
lærir maður raunverulega leiklist,
eða mér var a.m.k. sagt það.“
Króli: „Talandi um ólærða en frá-
bæra leikara, þá varð ég hissa þegar
ég heyrði að Eggert Þorleifsson væri
ekki lærður leikari.“
Laddi: „Nei, einmitt. Við vorum
allir þarna á svipuðum tíma, Eggert
Þorleifs, Egill Ólafs og ég. Við vorum
teknir inn því við vorum búnir að
vinna mikið við leiklist. Maður lærir
afskaplega mikið á vettvangi.“
Eruð þið miklir Queen-aðdáendur?
Laddi: „Ég er meira Freddy Merc-
ury-aðdáandi en auðvitað Queen í
leiðinni. Freddy var bara náttúru-
lega einstakur maður.“
Króli: „Ég er meira Brian May
maður.“
Þeir hlæja.
Króli: „Nei, þeir eru allir flottir og
það verður ótrúlega erfitt að reyna
að syngja lögin þeirra.“
Laddi: „En það verður aldrei eins
og á ekkert að vera eins heldur.“
Króli: „Nei, nákvæmlega. Það
mun enginn geta gert það. Ég get
talað fyrir okkur báða þegar ég segi
að við munum ekki reyna að vera
hann. Við gerum þetta á okkar hátt.“
En talandi um tónlist. Hér höfum
við Króla sem er í hipphoppsenunni,
hvernig fílar þú svoleiðis tónlist
Laddi og rapp bara yfirhöfuð?
Laddi: „Ég er hrifinn af allri tón-
list í raun og veru. Það fer bara eftir
því hver gerir hana og hversu vel.
Rapp finnst mér mjög skemmtilegt.
Ég hef gert nokkur rapplög í gegnum
tíðina. Ég held ég hafi verið með
fyrsta rapplagið á Íslandi.“
Króli: „Þetta er í annað skipti sem
ég sit í viðtali með mikilli goðsögn
sem vill meina það að hann hafi gert
fyrsta íslenska rapplagið og það var
Bubbi. Bubbi vill meina það að árið
1994 hafi hann gert fyrsta íslenska
rapplagið með sænskum pródúser.
Þetta var á plötunni Þrír heimar.“
Getum við ekki afsannað þetta?
Laddi: „Jú, jú, ég get gert það! Ég
get bent á eitt lag, það heitir Björg-
úlfur bréf beri og ég samdi það ’82
eða ’83 og það kom á næstu plötu
sem var 1984. Ég var úti í Ameríku
þá, í UCLA, og skrifaði Halla bróður
bréf og þetta var svo skemmtilegt
bréf að ég rappaði það og gaf út. Svo
söng Þuríður Sigurðardóttir inn á
milli og Gunnar Þórðarson gerði
tónlistina. Ég kalla þetta rapp sko.“
Hvað er rapp?
Laddi: „Já, ég veit það ekki beint.“
Þeir hlæja.
Króli: „Ég pæli mjög mikið í
þessu, því að tónlistin sem við Jói P.
erum búnir að gera upp á síðkastið
verður seint kölluð rapp, allavega
af minni hálfu. Síðustu tvær plötur
hafa ekki verið rapp. En ég held að
fólk vilji f lokka alla urban-senuna,
sem er R&B, rokkað popp, hipphopp
og mjög venjulegt popp allt undir
sama hatt, hipphopp. Þessi áratugur
eða tískubylgja sem er í gangi núna
verði alltaf kallað „rapptíminn“ eða
„hipphopptíminn“. En þetta er svo
miklu meira og stærra. Ég hef hrein-
lega ekki rappað í örugglega heilt ár.
En fólk má kalla þetta það sem það
vill. Ég lít ekki á mig sem meiri rapp-
ara frekar en einhvern sem er að gefa
út popptónlist.“
Króli er við það að gefa út nýja
plötu ásamt Jóa P. og kemur nýtt
tónlistarmyndband út með þeim
núna 1. júlí nk. með laginu Tveir
koddar. Á plötunni koma fram
ýmsir gestir, margir sem þeir hafa
ekki unnið með áður. Án efa mikil
spenna fyrir gripnum meðal aðdá-
enda.
Króli, hver er uppáhalds karakt-
erinn þinn hjá Ladda?
Króli: „Ætli það sé ekki Eiríkur
Fjalar? Er það ekki sá fyrsti sem
allir muna eftir, þekkja ekki allir
einhvern Eirík Fjalar?“
Laddi: „Jú, hann er minn uppá-
halds líka. Það er Eiríkur Fjalar í
f lestum. Hann leynist víða. Hann
er sympatískur og hann er maður-
inn sem ætlar að verða eitthvað og
slá í gegn. Það er pínulítið af mér í
honum, má segja.“
En að lokum, hlakkið þið til sam-
starfsins?
Laddi: „Já, bara mjög svo.“
Króli: „Já, það verður mikill
heiður að deila sviðinu með þessum
manni. Þetta er eiginlega draumi
líkast. Líka allt fólkið sem við erum
að vinna með er algjörlega frábært.“
Báðir kunna þeir
að rappa …
Söngfuglarnir og skemmtikraftarnir Laddi og Króli hittust í fyrsta
sinn fyrir stuttu í viðtali við helgarblaðið. Senn þenja þeir radd-
bönd sín á sviðinu í Háskólabíói en þeir fara báðir með hlutverk í
söngleiknum We will rock you.
Laddi er einn ástsælasti leikari þjóðarinnar og Króla langar ekkert meira en að verða leikari. Þeir eru góð blanda af eldri og yngri kynslóðinni og mætast senn á sviði í söngleik. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
4
-C
9
5
0
2
3
5
4
-C
8
1
4
2
3
5
4
-C
6
D
8
2
3
5
4
-C
5
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K