Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 56
Það er ótal verk að vinna í Árbæjarsafni á sunnudaginn. Í gamla daga voru börn
landsins hlaðin störfum en samt
fundu þau sér tíma til að leika sér
og njóta sumars. Því er áhugavert
fyrir börn og fjölskyldur þeirra að
kynnast starfsháttum fyrri tíma
á viðburðinum Verk að vinna! í
Árbæjarsafni og sjá hvernig lífið
var fyrir tíma nútímaþæginda
eins og rennandi vatns úr krönum,
þvottavéla og ryksuga. Krakkar
eru hvattir til að mæta og prófa að
bera vatn eins og vatnsberi, sópa
með strákústi og sækja hrís til
eldiviðar.
Messað verður í fallegu safns
kirkjunni í Árbæjarsafni klukkan
14. Prestur verður séra Kristinn
Ágúst Friðfinnsson og organisti
Sigrún Steingrímsdóttir.
Safnið er opið frá klukkan 10 til
17 en smiðjurnar standa yfir frá
klukkan 13 til 16. Heitt verður á
könnunni í Dillonshúsi og heim
ilislegar veitingar.
Aðgangur er ókeypis fyrir börn,
eldri borgara, öryrkja og menn-
ingarkortshafa.
Verk að vinna!
Að bera vatn er góð skemmtun.
RVK Fringe Festival hefst í dag og stendur yfir til 6. júlí. Þetta er í annað sinn sem hátíðin
er haldin. Um það bil 100 sýningar
á yfir 17 stöðum í borginni verða
sýndar yfir 250 sinnum á meðan
á hátíðinni stendur. Dagskráin er
fjölbreytt, hún hefst formlega með
opnunarpartíi á Hlemmi Square
í kvöld. Á morgun verður skrúð
ganga niður Laugaveginn ásamt
listamönnunum sem koma fram
á hátíðinni. Boðið verður upp á
sirkuslistir, dragsýningu, ljóðalest
ur, uppistand, spunaleik, kabar
ett, danssýningar, listgjörninga,
tónleika af ýmsum toga og margt
margt f leira.
RVK Fringe Festival er fjöllista
hátíð þar sem jaðarlistahópar víða
úr heiminum sýna listir sínar. Í
ár er boðið upp á þá nýjung að
halda námskeið fyrir 13 til 19 ára
unglinga í leiklist, dansi, uppi
standi, trúðsleik, hönnun og
markaðssetningu. Námskeiðið
kallast Youth Fringe og er haldið
alla daga frá 1. til 5. júlí. Laugar
daginn 6. júlí verður svo sérstök
Youth Fringe sýning í Tjarnarbíói
sem er öllum opin.
Allar nánari upplýsingar um há-
tíðina er að finna á vefsíðunni
rvkfringe.is.
Fjöllistasýningar um alla borg
Borgarsögusafn Reykjavíkur býður upp á skemmtilega sögugöngu með Stefáni Páls
syni sagnfræðingi á sunnudag
sem ætlar að þramma með gesti
í þorpið á austurhluta Viðeyjar.
Þar var áður blómleg byggð og líf
og fjör í öllum húsum, sem kemur
mörgum á óvart því nú standa þar
húsarústir og fátt sem minnir á
hið iðandi líf fyrri tíma. Á þessum
hluta eyjarinnar var fyrsta haf
skipabryggja Faxaflóasvæðisins
reist og mikil fiskvinnsla kom í
kjölfarið svo fólk hafði þar næga
vinnu. Stefán fræðir göngugarpa
um þessa áhugaverðu sögu.
Siglt verður stundvíslega frá
Skarfabakka kl. 13.15. Þeim sem
vilja fá sér léttan hádegisverð í Við
eyjarstofu fyrir sögugönguna er
bent á að taka ferjuna kl. 12.15 en
einnig er upplagt að setjast þar inn
í kaffi að göngu lokinni.
Sögugangan er gestum að kostn-
aðarlausu en greiða þarf ferju-
gjaldið – 1.600 kr. fyrir fullorðna,
1.450 kr. fyrir eldri borgara og
nemendur og 800 kr. fyrir börn
7-17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6
ára og yngri sigla frítt.
Söguganga
í Viðey
Stefán Pálsson verður í
stuði sem fyrr.
Á hátíðinni verður trúðanámskeið.
NORDICPHOTOS/GETTY
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
4
-C
E
4
0
2
3
5
4
-C
D
0
4
2
3
5
4
-C
B
C
8
2
3
5
4
-C
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K