Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 8
Ekki skipta þér af kosningunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti Hitabylgjan hefur leitt til allnokkurra dauðsfalla í álfunni og er fólk varað við því að taka áhættu. Brúin sprengd Yfirvöld á Ítalíu sprengdu í gær upp Morandi-brúna í Genóa, það er að segja það sem eftir var af henni eftir að hluti hennar hrundi í miklu ofviðri á síðasta ári. Er brúin hrundi fórust 43 vegfarendur sem höfðu verið að fara yfir hana og tugir til viðbótar særðust. Sprenging gærdagsins var síðasti áfanginn í niðurrifi brúarinnar en síðustu fimm mánuði hefur verið unnið við að hluta hana í sundur. NORDICPHOTOS/AFP EVRÓPA Hitabylgja gerði Evrópu- búum áfram lífið leitt í gær og hættu- ástand hefur myndast í vestanverðri álfunni. Franska veðurstofan hefur til að mynda gefið út rauða viðvörun á fjórum svæðum í landinu vegna hitans. Hitamet var slegið í Frakklandi í gær. Það féll í bænum Gallargues- le-Monteux og var 45,9 stig. Fyrra hitamet var sett í hitabylgjunni 2003, 44,1 stig. Þúsundir létu lífið í þeirri hitabylgju og sagði Agnes Buzyn heilbrigðismálaráðherra í gær að „allir væru í hættu“ nú. Edouard Philippe forsætisráð- herra varaði íbúa við því að taka óþarfa áhættu í því skyni að kæla sig niður. Hann sagði að á hverjum degi drukknaði fólk sem reyndi að flýja hitann með því að stinga sér á kaf. Sömu sögu er að segja á Bret- landi og Spáni. Á Spáni geisa svo enn umfangs- miklir skógareldar, nánar tiltekið í Tarragona í Katalóníu. Eldarnir eru einir þeir verstu í tvo áratugi í héraðinu. Samkvæmt katalónska héraðsmiðlinum ACN hefur gengið erfiðlega í baráttunni við eldana, sérstaklega í ljósi þess að hiti er ekki farinn að lækka. Þótt hitabylgjur séu ekki nýjar af nálinni hafa loftslagsvísindamenn bent á að loftslagsbreytingar af mannavöldum geri ástandið mun verra. Veröldin sé nú um einni gráðu hlýrri en fyrir iðnbyltingu og því séu veðuröfgar orðnar algengari. „Þessi aukning í veðuröfgum er nákvæm- lega sú sem loftslagsvísindin hafa spáð og er afleiðing hamfarahlýn- unar. Hún er svo afleiðing aukins útblásturs gróðurhúsalofttegunda,“ hafði AP eftir Stefan Rahmstorf, loftslagsvísindamanni hjá loftslags- rannsóknastofnuninni PIK í Þýska- landi. – þea Mannskæð hitabylgja herjar enn á Evrópubúa AUSTURRÍKI Viðræður gærdagsins í Vín gerðu lítið til að slá á áhyggjur Íransstjórnar og stefnir því enn í að ríkið fari fram úr þeim tak- mörkum sem sett voru á söfnun auðgaðs úrans með gerð JCPOA- kjarnorkusamningsins árið 2015. Fulltrúar Írans hittu fulltrúa Breta, Þjóðverja, Frakka, Rússa, Kínverja og ESB í austurrísku höfuðborginni í gær til að ræða stöðu mála. Íransstjórn hafði áður sagst ætla að hætta að framfylgja samningn- um vegna þeirra nýju þvingana sem Bandaríkin lögðu gegn ríkinu eftir að Donald Trump forseti rifti samningnum af hálfu ríkis síns. Að því er Reuters hafði eftir Abbas Araqchi, varautanríkisráð- herra Írans og sendiboða Írana á fundinum, voru viðræðurnar skref í rétta átt en undir væntingum Íransstjórnar. Það væri undir yfirmönnum hans komið hvort hætt verði að framfylgja samningnum og sagði hann ólíklegt að viðræðurnar hefðu gert nokkuð til að telja þeim trú um að halda í plaggið. „Ákvörðunin um að draga úr skuldbindingum okkar hefur nú þegar verið tekin og við munum halda áfram á þeirri leið þangað til komið er til móts við okkur. Ég held að árangurinn hér í dag sé ónógur til þess að stöðva þetta ferli en ákvörðunin verður tekin í Teheran,“ sagði Araqchi enn fremur. – þea Viðræðurnar árangurslausar Þessi hundur reyndi að kæla sig niður í gosbrunni. NORDICPHOTOS/AFP JAPAN Eins og svo oft vill verða þá voru allra augu á Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, þegar leið- togar G20-ríkjanna komu til fundar í Japan í gær. Þar ræddi forsetinn til að mynda við Vladímír Pútín, forseta Rússlands, en í dag á hann bókaðan fund með Xi Jinping, for- seta Kína. Fundur Trumps og Pútíns var sá fyrsti frá því Robert Mueller, sérstakur saksóknari bandaríska dómsmálaráðuneytisins, birti nið- urstöður sínar og sagði rannsókn hafa sýnt fram á að Rússar hefðu ráðist á bandarískt lýðræði með óeðlilegum afskiptum af forseta- kosningunum 2016. Trump þóttist þar af leiðandi skamma Pútín. Þegar blaðamaður spurði Trump hvort hann myndi segja Rússanum að skipta sér ekki af næstu kosningum sneri Trump sér til hliðar, veifaði fingri sínum að Pútín og sagði: „Ekki skipta þér af kosningunum.“ Pútín svaraði ekki sérstaklega heldur glotti. Sá rússneski byrjaði sinn dag á því að birta grein í Financial Times þar sem hann tjáði sig um stöðuna í alþjóðamálum. Þar sagði hann frjálslyndisstefnuna hafa beðið skipbrot og lofaði uppgang popúl- ismans í Evrópu og Bandaríkjunum. Fór fögrum orðum um Trump, sem hann sagði hæfileikaríkan. Pútín átti einnig fund með Ther- esu May, fráfarandi forsætisráð- herra Breta, þar sem þau ræddu eiturárásina á Sergeí Skrípal, rúss- neska fyrrverandi gagnnjósnarann, og þá ræddi Emmanuel Macron Frakklandsforseti um að þörf væri á sameiginlegri yfirlýsingu leiðtoga um loftslagsmálin. Mest er þó eftirvæntingin fyrir fyrrnefndum fundi Trumps og Xi. Mikið er undir enda er þetta fyrsti fundur leiðtoganna tveggja frá því viðræðum um nýjan fríverslunar- samning var slitið í maí. Síðan þá hefur tollastríð ríkjanna harðnað. Að því er Reuters hafði eftir Larry Kudlow, efnahagsmálaráðgjafa Trumps, hafa Bandaríkjamenn ekki skuldbundið sig til neins í aðdrag- anda fundarins. Trump hefur ekki dregið til baka hótanir um frekari tolla og ekki heldur gefið í skyn að Bandaríkjamenn séu viljugir til þess að draga þær kröfur í land sem Kín- verjar hafa hafnað. Kröfurnar eru sagðar snúast um aðgang banda- rískra fyrirtækja að kínverskum markaði og verndun bandarískra hugverka. thorgnyr@frettabladid.is Allra augu á Trump G20 ríkin Argentína Ástralía Brasilía Kanada Kína Evrópusambandið Frakkland Þýskaland Indland Indónesía Ítalía Japan Mexíkó Rússland Sádi-Arabía Suður-Afríka Suður-Kórea Tyrkland Bretland Bandaríkin Trump og Pútín áttu fund í Japan í gær. NORDICPHOTOS/AFP Fundur G20-ríkjanna hófst í Japan í gær. Don- ald Trump sagði Vlad- ímír Pútín að skipta sér ekki af kosningum. Trump á fund með Xi Jinping í dag um tolla- stríð ríkjanna og nýjan fríverslunarsamning. Fleiri myndir frá Evrópu má sjá á +Plús síðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er eingöngu í Fréttablaðs-appinu eða í PDF-útgáfu blaðsins sem er aðgengileg á frettabladid.is. +PLÚS 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 3 F B 0 8 0 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 4 -B A 8 0 2 3 5 4 -B 9 4 4 2 3 5 4 -B 8 0 8 2 3 5 4 -B 6 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.