Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 52
góðum árangri. Marta Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Kadeco, segir
að þar fari f lugvöllurinn Schiphol
í Amsterdam fremstur í f lokki.
„Þeim hefur tekist rosalega vel
upp. Þessi hugmyndafræði hefur
líka verið til grundvallar á öðrum
stöðum þar sem gríðarlega vel
hefur tekist til, til dæmis í Frank
furt, Seattle, Hong Kong og fleiri
stöðum, en hvert land þarf að meta
eigin samkeppnishæfni og skipu
leggja flugborgina út frá sínum
styrkleikum.
Þar kemur Kadeco inn sem fékk
það hlutverk af hendi ríkissjóðs
að sinna þróun landsvæðisins.
Kadeco var stofnað árið 2006 eftir
að varnarlið Bandaríkjahers yfir
gaf Keflavíkurflugvöll. Samkvæmt
lögum gegnir félagið tvíþættum
tilgangi. Annars vegar er það að
selja fasteignir varnarliðsins og
koma í borgaralega notkun, hins
vegar að þróa landsvæðið við flug
stöðina. Félagið hefur lokið við
sölu allra fasteigna á svæðinu og
hafa því kaflaskil orðið í rekstr
inum.
Þá beri félaginu að stefna að
jákvæðum samfélagslegum
áhrifum við sitt verkefni og halda
neikvæðum áhrifum í lágmarki.
Kadeco sér um samskipti og
ákvarðanatöku gagnvart sveitar
stjórnum og öðrum stjórnvöldum
vegna eigna á svæðinu. Félagið
annast þar að auki rannsóknir
á umfangi jarðvegsmengunar á
svæðinu og nauðsynlega hreinsun
á því.
Við höfum unnið
eftir þessari hug-
myndafræði frá árinu
2009. Þannig að við
erum nú þegar byrjuð að
innleiða hana.
Hlutverk Kadeco er
að draga innlend
sem alþjóðleg fyrirtæki
að svæðinu sem eiga það
sammerkt að þau myndu
njóta góðs af nálægð við
Keflavíkurflugvöll.
Undir viljayfirlýsinguna skrifuðu fjármálaráðherra, fulltrúar frá Isavia, Reykja
nesbæ og Suðurnesjabæ eins og
segir í tilkynningu frá Kadeco, Þró
unarfélagi Keflavíkurflugvallar
ehf. Svæðið sem félagið hefur til
umsýslu er eitt verðmætasta land
svæðið í eigu ríkissjóðs.
Stefnan sem Kadeco vinnur eftir
grundvallast á hugmyndafræði Dr.
John Kasarda sem kallast Aerotro
polis eða flugborg. Hugmynda
fræðin byggir á því „að skapa
megi mikil verðmæti úr landi við
flugvöll,“ eins og segir í tilkynn
ingunni. Í f lugborginni má segja
að flugvöllurinn sé segullinn sem
laðar að mismunandi starfsemi,
f lugtengda sem ótengda. Sem
dæmi má nefna gagnaver, hótel,
hátækniiðnað, menntastofnanir,
dreifingarmiðstöðvar og fríversl
unarsvæði, sem hagnast af nálægð
við góðar flugtengingar og starf
semi sem tengist f lugvellinum með
einum eða öðrum hætti.
Hlutverk Kadeco er að draga
innlend sem alþjóðleg fyrirtæki
að svæðinu sem eiga það sam
merkt að þau myndu njóta góðs
af nálægð við Keflavíkurflugvöll.
„Flugvellir sem hafa rými til að
vaxa laða að fjölbreytta atvinnu
starfsemi. Þá styrkir öflugur
flugvöllur með góðum tengingum
innlenda starfsemi með auknum
viðskiptatækifærum og atvinnu
möguleikum,“ segir jafnframt í
tilkynningunni.
Erlendis hefur verið unnið eftir
þessari hugmyndafræði með
Þróa flugborg við Keflavíkurflugvöll
Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf., stendur á merkilegum tímamótum í sögu félags-
ins. Á miðvikudaginn var skrifað undir viljayfirlýsingu um þróun flugborgar við Keflavíkurflugvöll.
Fulltrúar Isavia, sveitarfélaga og fjármálaráðherra skrifuðu undir viljayfirlýsinguna.
Í þróun flugborgarinnar er stefnt að nýtingu auðlinda og styrkleika Íslands.
Þetta er auðvitað gífurlegt landflæmi,“ segir Marta Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Kadeco. Svæðið sem Kadeco hefur
til umráða er 60 ferkílómetrar að
stærð.
„Núna getum við farið að ein
beita okkur að næsta fasa í þessu
verkefni, sem er að þróa landið
við flugstöðina sem við förum
með fyrir hönd ríkisins. Þetta er
eitt verðmætasta landsvæðið í
eigu ríkissjóðs.“ Næst á dagskrá
er að byggja upp viðskiptagarð
sem byggir á hugmyndafræði Dr.
John Kasarda um flugborgina eða
Aerotropolis.
„Við höfum unnið eftir þessari
hugmyndafræði frá árinu 2009.
Þannig að við erum nú þegar
byrjuð að innleiða hana á svæð
inu.“
Gagnaver fjárfesta fyrir
milljarða króna
Uppbygging flugborgarinnar
reiðir sig að öllu leyti á að Kefla
víkurflugvöllur haldi áfram að
vaxa og dafna. „Okkar verkefni
er að gera umhverfið í kringum
flugvöllinn aðlaðandi, bæði við
skiptalega og eiginlega. Við viljum
að menn kjósi að staðsetja sín
fyrirtæki og flugtengda starfsemi á
þessum stað.“
Það eru mörg tækifæri í boði
við Keflavíkurflugvöll fyrir fjöl
breytta starfsemi. „Gagnaverin
á Ásbrú eru einn hluti af þessari
uppbyggingu,“ segir Marta en slík
starfsemi þarf á greiðum flugleið
um að halda. Gagnaverin Verne
Global og þörungaverksmiðja
Algalífs eru með starfsemi á Ásbrú
að sögn Mörtu, en þau fyrirtæki
eru skýr dæmi um ákjósanlega
starfsemi á svæðinu.
Verne Global og Algalíf hafa
þegar fjárfest fyrir tugi milljarða
króna á svæðinu. „Fleiri fyrirtæki
af þessum skala, sem og hótelkeðj
ur, dreifingaraðilar og hátækni
fyrirtæki munu kjósa að staðsetja
sig við Keflavíkurflugvöll ef lagt er
Velgengni flugvallarins er
lykill að uppvexti á svæðinu
Flugborgir
erlendis hafa
þróast í já-
kvæða átt og
skilað hagsæld.
Möguleikarnir á
fjölbreyttri starf-
semi við flugvöll-
inn eru margir að
sögn Mörtu Jóns-
dóttur.
af stað í þetta risavaxna verkefni á
réttum forsendum,“ segir Marta.
Kjörið fyrir stóra dreifingar-
miðstöð
Fyrsta þróunarverkefni Kadeco
á svæðinu var menntastofnunin
Keilir sem býður upp á fjölbreytt
nám á borð við flugnám, íþrótta
akademíu og háskólabrú. Sam
kvæmt Mörtu hefur það komið
í ljós með byggingu flugborga
erlendis að sterk menntastofnun
sé nauðsynleg á slíkum svæðum.
Marta segir að landsvæðið sé
kjörið fyrir stóra dreifingarmið
stöð á borð við Amazon vegna
landfræðilegrar staðsetningar
Íslands. „Þegar fram í sækir viljum
við sjá slíka starfsemi á þessu
svæði.“ Næsta skref hjá Kadeco er
að greina hvers konar starfsemi
væri ákjósanlegust á svæðinu,
með tilliti til staðsetningar Íslands
og auðlinda sem hér eru að finna.
Eftir það verður búin til markaðs
áætlun til að sækja fjárfestingu inn
á svæðið, bæði innanlands og utan
í samstarfi við Íslandsstofu . „Við
ætlum að efna til hugmyndasam
keppni á meðal arkitekta, væntan
lega á Evrópska efnahagssvæðinu.
Eftir það verða lögð drög að útliti
svæðisins. Þá verðum við búin að
ákveða hvaða starfsemi við erum
að fara að sækja inn á svæðið.“
Áætlað er að fimm ár fari í að
leggja drög að útliti svæðisins með
tilliti til starfseminnar sem verður
þar og vinna þá greiningarvinnu
sem nauðsynleg er, en að vonandi
verði styttra í að sýnilegur árangur
verði af þeirri vinnu.
10 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RKEFLAVÍKURVÖLLUR
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
5
4
-E
6
F
0
2
3
5
4
-E
5
B
4
2
3
5
4
-E
4
7
8
2
3
5
4
-E
3
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K