Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 24
Arna er mjög ánægð í náminu en hún stundar íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík og telur hún að íþróttin og námið tvinnist vel saman. Ísafjarðarbær á hug hennar allan, en þar ólst hún upp og stundaði íþróttir af krafti, þar á meðal skíði. Um áramótin 2006/2007 var Arna í æfingaferð í Geilo í Noregi þegar hún lenti í alvarlegu skíðaslysi og hlaut mænuskaða, þá 16 ára gömul. Sex árum eftir slysið flutti hún suður til Reykjavíkur og byrjaði þá að æfa handahjól. Handahjól er ein grein undir Alþjóðlega hjólasambandinu, líkt og fjallahjól og götuhjól. „Ég hef hingað til verið mikið ein að æfa hér á Íslandi, en það eru aðeins fleiri byrjaðir að stunda þetta núna,“ segir Arna. Það eru engar handahjólakeppnir hér á landi en þegar hún byrjaði var hún að taka þátt í styttri hjólakeppnum eða maraþonhlaupum. Hún var fyrsti Íslendingurinn sem keppti á handahjóli eða í hjólreiðum fyrir hreyfihamlaða „Ég fór á fyrsta mótið mitt árið 2014 og hef verið að keppa síðan. Markmið mitt núna er að komast á Ólympíuleika fatlaðra haustið 2020 í Tókýó.“ Aftur á byrjunarreit Eftir slysið var Arna lengi í sjúkra- þjálfun og meðfram henni var hún í mikilli styrktarþjálfun. „Þegar maður fær mænuskaða þá þarf að læra að setjast upp í rúminu, klæða sig, ýta sér í stólnum og færa sig á milli stóla. Allt þetta krefst mikils styrks í efri líkamanum.“ Í dag er hún hjá Fannari Karvel, styrktar- þjálfara og íþróttafræðingi. „Hjá honum er ég að lyfta lóðum og gera alls konar styrktaræfingar fyrir efri líkamann, bara eins og allir íþróttamenn,“ útskýrir Arna. Það var ekki bara erfitt að finna sér nýja íþrótt eftir slysið heldur þurfti að byggja upp gríðarlegan styrk og þol. Þar sem íþróttin krefst mikils styrks í höndunum þá hefur tekið tíma fyrir Örnu að byggja hann upp en hún hefur æft vel og vandlega. „Þetta var mjög erfitt fyrst, en þá var ég mest að hjóla flatt, stutt og hægt, en er að reyna að komast nær þeim sem eru að hjóla með fótunum. Aukinn áhugi gleður Arna hefur verið dugleg að fara til útlanda að keppa á þessu ári. Hún stefnir á að taka eitt mót í viðbót áður en hún fer á Heimsmeistara- mótið í hjólreiðum hreyfihaml- aðra sem haldið verður í Hollandi í byrjun september. „Þetta mót er hápunktur ársins, og ég er mjög spennt.“ Nýlega skrifaði Arna undir samning hjá Icepharma. Hún er mjög spennt fyrir samstarfinu og finnur fyrir meiri áhuga á íþróttinni. „Þetta sport er rosalega dýrt, ég þarf til dæmis að vera á sérsmíðuðu hjóli og allar græjur í kringum þetta eru alls ekki ódýr- ar. Svo þar sem ég er ekki að keppa heima þá þarf ég alltaf að fara til útlanda að keppa og það getur kostað sitt. Ég er því mjög þakklát að fá aðstoð frá Icepharma til að ná sem lengst í þessu.“ Hún finnur fyrir meira áhuga á íþróttinni og telur mikilvægt að fjalla meira um fjölbreyttari íþróttir. „Það er greinilega meiri áhugi á fjölbreyttara sporti, maður finnur fyrir ákveðnari viðurkenn- ingu. Ástæðan fyrir því að ég hef verið mikið í fjölmiðlum og farið í mörg viðtöl er að ég vil auglýsa þetta sport betur. Sérstaklega fyrir fólk með hreyfihömlun.“ Vill miðla sinni þekkingu Hún er gríðarlega ánægð með að hafa tekið þá ákvörðun að prófa þessa íþrótt. „Þessi íþrótt gefur mér svo mikið, bæði hreyfingin og svo almenn líkamlega heilsa. Hreyfing er að sjálfsögðu mikil- væg fyrir alla, en sérstaklega fyrir fólk með mænuskaða því líkams- hreyfingin verður almennt ekkert rosalega góð.“ Arna kláraði nýverið fyrsta árið sitt í Háskólanum í Reykja- vík þar sem hún stundar nám í íþróttafræði. „Ég átti smá erfitt með að byrja aftur í námi eftir að ég slasaðist. En ég hef ótrúlega mikinn áhuga á þessu og námið er oft að hjálpa mér í íþróttinni. Það er líka gott fyrir mig að benda fólki sem er í endurhæfingu á íþróttir og hreyfingu, mér finnst það svo- lítið vanta á Íslandi.“ Erlendis er fólk sem hlýtur mænuskaða oft á sérstöku sjúkrahúsi þar sem því er gefið sérhæft prógramm og ýmsir möguleikar. „Mig langar að fólk viti að möguleikarnir eru til staðar. Íþróttafólk sem slasast á það oft til að hætta, en það er meira í boði,“ segir Arna. Arna segir að margir þættir spili inn í þegar kemur að jákvæðni og drifkrafti. „Mér finnst þetta aðallega ótrúlega gaman. Auð- vitað koma dagar þar sem ég nenni kannski ekki á æfingu, en það gerist held ég hjá flestum íþróttamönn- um stöku sinnum. Þessi tilfinning að komast út og upplifa hraða og adrenalín er eitthvað sem ég sæki í, og svo líður mér bara svo ótrúlega vel, það er aðalhvatningin.“ Næsta stóra mót hjá Örnu er Heimsmeistaramótið í Hollandi í september. Á ferð og flugi um fallega Ísland. MYND/ ÞÓRDÍS REYNIS- DÓTTIR Ásta Eir Árnadóttir astaeir@frettabladid.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 2 9 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 3 F B 0 8 0 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 4 -9 C E 0 2 3 5 4 -9 B A 4 2 3 5 4 -9 A 6 8 2 3 5 4 -9 9 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.