Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 32
Skiptifarþegum
sem fara um Kefla-
víkurflugvöll fækkar um
43 prósent frá í fyrra, úr
tæpum 3,9 milljónum í
tæpar 2,2 milljónir. Þar
munar tæplega 1,7 millj-
ónum farþega. Mestu
munar um brotthvarf
WOW air.
Fjölgun farþega um Keflavíkur-flugvöll hefur verið afar hröð á síðustu árum og hefur hún í
sumum tilvikum kallað á upp-
færða farþegaspá þegar liðið hefur
á árið – hvort sem farþegum hefur
fjölgað eða fækkað. Í lok mars hætti
WOW air, einn stærsti viðskipta-
vinur Isavia á Keflavíkurflugvelli,
starfsemi. Þá var ljóst að gera yrði
breytingar á farþegaspá fyrir árið
2019. Því til viðbótar hefur verið
nokkur óvissa vegna stöðu Boeing
MAX flugvéla Icelandair.
Í spá fyrir árið 2019, sem birt
var í janúar, var gert ráð fyrir
að 8,9 milljón farþegar færu um
Keflavíkurflugvöll í ár. Í upp-
færðri farþegaspá Isavia, þ.e.
rauntölur fyrir janúar til og með
maí og síðan spá fyrir júní til og
með desember, er gert ráð fyrir að
heildarfjöldi farþega sem fer um
Keflavíkurflugvöll verði tæpar 7,3
milljónir sem er fækkun um tæpar
2,5 milljónir frá því sem var í fyrra.
Áætlaður heildarfjöldi í ár er nærri
hálfri milljón meiri en árið 2016.
Í spá Isavia frá í janúar var gert
ráð fyrir því að 2,26 milljónir
erlendra farþega kæmu til Íslands.
Það var fækkun um 2% frá því í
fyrra. Það er mat Isavia, að erlendir
farþegar til landsins í ár verði 1.927
þúsund. Það er fækkun um 333
þúsund manns frá fyrri spá og 388
þúsund manns frá því sem raunin
varð í fyrra. Spáin gerir því ráð
fyrir um 9% fleiri erlendum ferða-
mönnum en árið 2016.
Íslenskum farþegum fækkar
um 5,5%, úr rúmlega 668 þúsund í
rúmlega 631 þúsund.
Sumarið á Keflavíkurvelli
Þó svo að ferðamönnum sem fara
um Keflavíkurflugvöll í ár fækki
frá því sem var í fyrra vill Isavia
áfram hvetja farþega til að mæta
tímanlega í f lugstöðina. Það er
vegna þess að álagstímar eru enn
til staðar í starfsemi flugfélaga
á f lugvellinum og flugferðir eru
því oft á sama eða svipuðum
tíma. Mælt er með því að farþegar
komi til innritunar 2-2,5 klukku-
stundum fyrir brottför. Þeir eru
hvattir til að vera vel undirbúnir
fyrir öryggisleit á f lugvellinum og
nýta sér sjálfsinnritunarstöðvar
ef slíkt er í boði fyrir viðkomandi
flug til þess að allt muni ganga vel
fyrir sig á f lugvellinum.
Mat Isavia er að fjöldi erlendra
farþega til Íslands í ár verði 1.927
þúsund. Þeim fækki því um 388
þúsund milli ára.
Skiptifarþegum sem fara um
Keflavíkurflugvöll fækkar um 43
prósent frá í fyrra, úr tæpum 3,9
milljónum í tæpar 2,2 milljónir.
Þar munar tæplega 1,7 milljónum
farþega. Mestu munar um brott-
hvarf WOW air.
Uppfærðar tölur um farþega-
fjölda í júní og til loka desember
benda til að heildarfjöldi farþega
sem fara um Keflavíkurflugvöll
árið 2019 verði um 7,3 milljónir.
Útlit er fyrir að íslenskir farþegar
um Keflavíkurflugvöll verði um
631 þúsund árið 2019 sem er 37
þúsundum færri en í fyrra.
Farþegaspá Isavia 2019 fyrir
Keflavíkurflugvöll er unnin út frá
upplýsingum um afgreiðslutíma
sem flugfélögin hafa tryggt sér.
Farþegaspáin byggir á upplýsing-
um úr kerfum Isavia, til viðbótar
við þær fréttir sem borist hafa af
f lugfélögum. Spáin er að því leyti
unnin með öðrum hætti en áður.
Isavia telur hins vegar að fyrir
liggi nægar upplýsingar til að gefa
út uppfærða farþegaspá og svara
þannig ákalli markaðarins.
Farþegum fækkar mikið milli ára
Þó svo að ferðamönnum sem fara um Keflavíkurflugvöll í ár fækki frá því sem var í fyrra vill Isavia
áfram hvetja farþega til að mæta tímanlega í flugstöðina. Álagstímar eru enn til staðar í starf-
semi flugfélaga á flugvellinum og flugferðir eru því oft á sama eða svipuðum tíma.
Það er mat Isavia, að erlendir farþegar til landsins í ár verði 1.927 þúsund. Það er fækkun um 333 þúsund manns frá fyrri spá. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þó svo að ferðamönnum sem fara um Keflavíkurflugvöll í ár fækki vill
Isavia áfram hvetja farþega til að mæta tímanlega. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
6 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RKEFLAVÍKURVÖLLUR
Við skutlum þér!
Tryggt sæti
Tíðar ferðir
Frítt internet
flugrutan.is
Áætlunarferðir Flugrútunnar eru í
tengslum við allar komur & brottfarir
flugvéla um Keflavíkurflugvöll.
Verslaðu miða á flugrutan.is
Kynnisferðir – Reykjavik Excursions
Umferðarmiðstöðin BSÍ • 101 Reykjavík
580 5400 • main@re.is
www.re.is • www.flugrutan.is
2
9
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:0
3
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
5
4
-C
E
4
0
2
3
5
4
-C
D
0
4
2
3
5
4
-C
B
C
8
2
3
5
4
-C
A
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
2
8
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K