Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 29.06.2019, Blaðsíða 2
Hlustaðu á hlaðvarpið hans Bubba og fjölmörg önnur áhuga- verð og skemmtileg hlaðvörp á www.frettabladid.is/hladvarp Hlaðvarp Alltaf var góður fílingur, alltaf vorum við í góðu skapi, alltaf var nóg af grasi. Sigurður Árnason, upptökumaður og bassaleikari 44 kínverskir ferða- menn voru í rútunni þennan örlagaríka dag í desember. 595 1000 KRÍT8. JÚLÍ Í 10 NÆTUR H L AÐVAR PI Ð „Það var ek kert algengt á þessum tíma að fólk væri að tala svona beinskeytt um hlutina. Ég hugsaði að þetta væri gæi sem ætti framtíðina fyrir sér,“ segir Sigurður Árnason, upptöku- maður og bassaleikari, um fyrstu kynni sín af Bubba Morthens í öðrum þætti hlaðvarpsins Sögur af plötum. Í þættinum rekja þeir félagar söguna að baki fyrstu plötu Bubba, Ísbjarnarblús. „Hlutirnir fóru að gerast. Alltaf var góður fíl- ingur, alltaf vorum við í góðu skapi, alltaf var nóg af grasi. Þegar maður slappaði af og hlustaði á árangurinn fékk maður sér alltaf reyk. Þetta voru alveg stórkostlegir tímar,“ segir Sigurður sem minnist tímanna vel. Platan var tekin upp hjá útgáfu- fyrirtækinu SG-hljómplötum sem var í eigu tónlistar- og útvarps- mannsins Svavars Gests. Bubbi og Sigurður lýsa því hversu erfitt gat verið að vinna með Svavari. „Mín upplifun af honum var að hann var svo leiðinlegur. Rosalega þurr,“ segir Bubbi og þakkar Sigurði fyrir að hafa „lagað Excel-skjalið“, en tökur í stúdíóinu stóðu yfir mun lengur en það sem skrásettur tímafjöldi sagði til um. Sigurður segir svo frá því hvernig þekktasta lag Bubba komst næstum því ekki á plötuna. „Þegar þú tókst Stál og hnífur þá vorum við bara tveir uppi í stúdíói og þegar þú ert búinn að spila þetta inn þá segirðu: „Æ, eigum við að láta þetta fara með?“ og ég sagði „Hvað? Auð- vitað!“ Og svo í dag er þetta þjóð- söngur Íslendinga!“ Bubbi skefur ekki af mikilvægi aðkomu þess að hafa góðan upptökumann. „Þú leyfðir hlutunum svolítið að fara sína leið. Ísbjarnarblús er í rauninni jafn mikið þér að þakka og mér að þakka. Þetta var svo mikið sjokk þegar við fórum að taka upp plötu númer tvö sem var Geislavirkir. Þar kom einhver Breti sem eigin- lega skar undan okkur. Við vorum svo mikill kraftur live en þegar við komum inn í stúdíóið hugsaði ég að þetta væri ekki nærri því jafn skemmtilegt og á Ísbjarnarblús.“ Hægt er að hlusta á fyrstu tvo þætti hlaðvarpsins á vef Frétta- blaðsins. arnartomas@frettabladid.is Stál og hnífur komst næstum ekki með Alls mun Bubbi taka fyrir tíu af plötum sínum í hlaðvarpinu. Blobbarnir fóru um borgina Þessar furðuverur vöktu athygli í miðborg Reykjavíkur í gær þar sem þær fóru um og brugðu á leik. Ekki var þó hér að hefjast fundur í borgar- stjórn Reykjavíkur heldur um að ræða gjörning frá Götuleikhúsinu. Verurnar skrautlegu kallast Blobbarnir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Veður NA átt 8-15 m/s, hvassast NV-til og við SA-ströndina. Víða skýjað og lítils háttar úrkoma, en léttir til NV-lands og fer að rigna suðaustan til seinni partinn. Hiti 5 til 15 stig á morgun, svalast um NA-vert landið. SJÁ SÍÐU 32 Bubbi Morthens og Sigurður Árnason upp- tökumaður rifja upp upptökuferli plötunnar Ísbjarnarblús í nýjum þætti hlaðvarpsins Sögur af plötum. Bubbi segir Sigurð lykilþátt í velgengni plötunnar. DÓMSMÁL Útbúnaði og viðhaldi var stórlega ábótavant á rútubifreiðinni þar sem tveir kínverskir ferðamenn létu lífið eftir að bílstjóri hennar missti stjórn á henni í árslok 2017 skammt frá Kirkjubæjarklaustri. Rútan hefði með réttu ekki átt að vera í umferð. Bremsur orðnar lélegar sem og vetrardekk. Þetta er meðal þess sem fram kemur í dómi Héraðsdóms Suðurlands yfir bíl- stjóranum sem ók rútunni. Héraðsdómur dæmdi bílstjórann í sex mánaða skilorðsbundið fang- elsi, hann var sviptur ökurétti í tvö ár og gert að greiða sakarkostnað upp á rúmlega tvær og hálfa millj- ón króna. Slysið varð miðvikudag inn 27.  desember 2017 á Suðurlands- vegi. Ferðamaður í fólksbíl á undan rútunni var að beygja inn á útsýnis- stað þegar rútan, sem ekið var of hratt miðað við aðstæður, ók aftan á hann. Rútubílstjórinn missti stjórn á rútunni sem fór yfir á öfugan vegar helming og valt á hlið utan vegar. 44 kínverskir ferðamenn voru um borð. Tveir létu lífið sem fyrr segir en margir slösuðust, þar af tveir alvarlega. – smj Rútan átti ekki að vera í umferð Frá slysstað skammt utan Kirkju- bæjarklaustri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SLYS Banaslys varð á Ingjaldssands- vegi á Sandsheiði í Gerðhamarsdal á fimmtudag þegar veghefill hafn- aði utan vegar. Tilkynning um slys- ið barst lögreglu laust fyrir klukkan 18 sama dag en tildrög slyssins eru enn ókunn. Lögreglan á Vestfjörðum hefur málið til rannsóknar, með aðstoð rannsóknarnefndar samgöngu- slysa og Vinnueftirlitsins, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Þá segir að nafn hins látna verði ekki gefið upp að svo stöddu. – smj Banaslys á Sandsheiði Veghefill hafnaði utan vegar. 2 9 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :0 3 F B 0 8 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 5 4 -9 7 F 0 2 3 5 4 -9 6 B 4 2 3 5 4 -9 5 7 8 2 3 5 4 -9 4 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 0 s _ 2 8 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.