Ófeigur - 15.12.1950, Qupperneq 7
ÓFEIGTJR
7
beygja sig fyrir kröfu Eyjólfs og Bjarna um 30 þús. kr.
útgjöld við flutning til og frá vinnustað á hjúum þessa
einstæða fyrirtækis. Engin gagnrýnisrödd heyrðist í
stórblöðum landsins í sambandi við Silfurtúnskaup
Bjarna Ásgeirssonar eða reksturs þess. Mbl. átti Eyjólf,
Tírninn Bjarna, Alþýðublaðið átti Stefán sem stýrði
allri þjóðnýtingu auðvaldsflokkanna. Kommúnistar eru
mjög velviljaðir þessu samsyndarfyrirtæki.
%
Bjarni Ásgeirsson átti í vændum ýmiskonar pólitískan
mótgang eftir að Hermann hafði komið honum úr ráð-
herrastólnum. Þegar búnaðarmálastjóri varð forsætis-
ráðherra, losnaði embætti hans í Búnaðarfélagi Islands.
Bjarni var formaður félagsins og hafði verið það um
langa stund. Honum kom nú til hugar, sem vel mátti
vera, að setjast í sæti Steingríms, meðan það væri autt.
Tók hann við setningu fyrst í stað. Pólitísk starfsemi,
sem er í framkvæmd ekki annað en snúningar á kaffi-
húsum og bitlingaveiðar, gerir jafnvel dugandi menn
óstarfhæfa. Bjarni var kominn á þetta stig. Á stutt-
um tíma voru 300 bréf á skrifstofunni, sem ekki var
svarað. Steingrímur reyndi að líta eftir vinnubrögðunum
og kom þar flesta daga, en sú hjálp nægði ekki. Bjarni
fann að hann þurfti að koma nýju skipulagi á fyrir-
tækið og lét sér koma til hugar, að einn af ráðunaut-
unum gerði öll störf búnaðarmálastjóra í hjáverkum,
en sjálfur framkvæmdastjórinn kæmi í fyrirtækið einu
sinni í viku. Þetta fyrirkomulag hefði að líkindum lán-
azt, ef ekki hefði viljað svo illa til, að Páll Zophoní-
asson hafði misst sem svarar einu kúgildi af ríkisbitl-
ingum á hinni löngu eyðimerkurgöngu meðan Fram-
sókn var ekki í stjórn. Sá Páll nú í fyrsta sinn hilla
undir mannvirðingar, án þess að þær væru beinlínis
fengnar með þingmannsaðstöðu hans.
Hermann og Páll Zoph. höfðu sýnt bolsivismanum
mestan trúnað af öllum ,,meðreiðarmönnum“ kommún-
ista hér á landi. Hafði Páll beinlínis greitt atkvæði
með þeim móti vörnum landsins, en Hermann setið
hjá. Páll stóð í þeirri trú, að ef hann sýndi kommún-
istum fyllstu undirgefni, gæti hann tryggt sér 60 rauð-