Ófeigur - 15.12.1950, Síða 30

Ófeigur - 15.12.1950, Síða 30
30 ÓFEIGUR konar rannsókn á forystu Pálma Loftssonar á land- helgisgæzlunni. Hé^ var sýnilegt, að í þingi og stjórn var uppi ákveðin löngun til að gerbreyta því skipu- lagi, sem Pálmi Loftsson hafði myndað og mótað með tuttugu ára staðfastri og giftudrjúgri vinnu. Þar sem svo vill til, að ég hef í meira en þrjátíu ár fylgzt með þróun þessara mála og tel, að Pálmi Loftsson hafi á þessum umrædda vettvangi verið stórhuga og skap- andi, en þó gætinn, svo að af ber, þykir mér hann verð- ur þakklætis og viðurkenningar fyrir dagsverk sitt, en ekki tortryggni og ofsókna. Hygg ég, að þjóðina skipti miklu að fá í þessu efni glögg gögn til að byggja á dóma sína. Hef ég þess vegna talið við eiga, að bera fram fyrir alþjóð manna heimildir, sem skera úr um það, hversu unnið hefur verið að strandgæzlu og strand- siglingamálum síðan um 1920. Þá eiga menn hægra með að meta starf Pálma Loftssonar í þágu lands og þjóðar. II. Ráðueyti Trjggva Þórhallssonar. Haustið 1927 komu tveir nýir flokkar, bænda og verkamanna, til valda á íslandi. Ráðuneyti Tryggva Þórhallssonar var næstum heilt kjörtímabil stutt af báðum þessum flokkum. Með nýjum mönnum komu ný viðhorf um fjölmörg þjóðfélagsmál. Hafði áhrifa bænda og verkamanna mjög gætt í landsmálum frá 1917. Hélt sú þróun áfram lítt breytt fullan aldar- fjórðung. Er það mál manna, að í engu landi í álf- unni hafi á svo skömmum tíma orðið jafngagngerð- ar breytingar til framfara og hér á landi á árabilinu 1917—1942. Hvíldu framkvæmdir landstjórnarinnar mjög á okkur Tryggva Þórhallssyni. Unnum við báðir að því verki, sem hér verður gert að umtalsefni, en það var alger nýskipun samgöngumála með ströndum fram og vemdun landhelginnar. Stóðum við báðir að því þýðingarmikla samkomulagi, sem gert var um for- stöðu þesesara mála við Pálma Loftsson skömmu fyrir Alþingishátíðina 1930. Atvik höguðu því svo, að ég hafði í fyrstu meiri áhuga fyrir strandferðunum en landhelgisgæzlunni, en strandsiglingamar tilheyrðu at- vinnumálunum, sem vom undir umsjón Tryggva Þór-

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.