Ófeigur - 15.12.1950, Blaðsíða 42
42
ÓFEIGUR
að stundum veiðist sama og ekki neitt í kasti á tog-
ara, en stundum mikið og þess á milli mjög breytilega.
Magnús Guðmundsson hreyfði aldrei framar þessa
skýrslu og sýndi Pálma Loftssyni fulla kurteisi og
viðurkenningu fyrir störf hans. Var ofsókn þessi að
kenna öfgafullum flokksbræðrum ráðherrans. En þeg-
ar ráðherrann sá, að Skipaútgerðin hafði verið afflutt
af fákænum og miður góðgjörnum mönnum, lét hann
áróður þeirra móti Pálma Loftssyni eins og vind um
eyrun þjóta. Lauk svo endurskoðun Ludvigs C. Magn-
ússonar.
XIX.
Dulsmálssvikin sönnuð.
Með stjórnarskiptunum 1932 féll niður í bili öll eftir-
grennslan varðandi misfellur loftskeyta, og fór því
svo fram, þar til stjórn Framsóknarmanna og Alþýðu-
flokksins tók við stjórnartaumunum á miðju ári 1934..
Framkvæmd landhelgisgæzlunnar var þá aftur flutt í
Skipaútgerð ríkisins. Meðan við Pálmi Loftsson höfð-
um unnið saman að þessum málum, voru gerð-
ar allmiklar athuganir á því, hversu dulmálasskeytin
væru notuð. Eftir að Pálmi Loftsson tók aftur við
daglegri framkvæmd gæzlunnar, hélt hann áfram þess-
um rannsóknum, alveg eins og lögregla þingstjórnar-
landanna gerir skyldu sína, er hún leitar að gögnum
móti þeim landráðamönnum kjarorkufræðinnar, sem
láta vitneskju af hendi til óvinanna fyrir fjárhagsleg
hlunnindi. Kom þar að lokum, að ýmsar sannanir bár-
ust lögreglunni í hendur um dulmálsnotkunina. Hátt-
settur trúnaðarmaður í þjóðfélaginu týndi á almanna-
færi dulmálslykli, sem hann hafði notað til að leiðbeina
togara inn í landhelgina. Enskur togari strandaði hér
við land, og við björgun þess skips fannst dulmáls-
lykill, sem var miðaður við umboðsmenn skipsins í
landi. Snerist dulmál enska skipsins um íslenzku varð-
skipin og hreyfingar þeirra. Þá tókst að lokum að
uppgötva með einföldum aðferðum grunsamlegt athæfi
í landhelgisnjósnum í fari allmargra íslenzkra borg-
ara í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði, Reykjavík og ísa-
firði. Þegar nægilegum gögnum hafði verið safnað gegn
mönnum þessum, var gerð húsrannsókn hjá þeim öll-