Ófeigur - 15.12.1950, Side 12
12
ÖFEIGUR
ferskvatnsfiskum í dái, nema þegar ríki erfinginn kem-
ur hingað í sumarleyfi og þegar landbúnaðarráðherr-
ann starfrækir fyrir 1500 kr. þá laxveiði í Grímsá
sem sr. Eiríkur á Hesti leigði ráðherranum undan
prestsetrinu um líkt leyti og hann settist að í Reykja-
vík á fræðimennsku launum frá gjafmildu Alþingi.
Framsláttur Hermanns um að Ólafur á Hellulandi hafi
orðið bolsivikum óþarfur ljár í þúfu, var skynvilla. {
Ólafur mun hvorki hafa unnið byltingarliðinu gagn
eða tjón. Hið sanna er, að Bjarni Ásgeirsson, H.
J. og fylgifiskar þeirra eru svo hneigðir til athafna-
leysis og svefnværðar, að þeir hafa óbeit á fjörmikl-
um athafnamönnum. Þessvegna er ferskvatnsfiskarækt-
unin orðin sumarleyfisskemmtun hins ógæfusama
manns, sem getur ekki flutt auð sinn heim til ætt-
jarðarinnar fyrir ófremdarástandi löggjafar og skatta-
mála. ,
Forkólfar búnaðarmálanna hafa sýnt hugvitssemi
sína í meðferð garðyrkjumála svo að þar hallar lítt á
og með ferskvatnsfiskana. Endur fyrir löngu var Ragn-
ar Ásgeirsson ráðinn garðyrkjuráðunautur Búnaðar- ,
félags Islands. Ragnar er greindur maður og fjölles-
inn, en varð lítt ágengt við starf sitt að hjálpa bænd-
um við garðyrkjumálin. Kom þar að lokum að sýnilegt
þótti, að starf Ragnars í þágu búnaðarmálanna bæri
engan árangur og væri með öllu óþarft. Undir venjuleg-
um kringumstæðum hefði slíkum manni verið veitt
lausn eða færður að öðru starfi, þar sem hans var
þörf. Ekki þótti þetta henta. Stjóm Búnaðarfélagsins
vildi gera betur við þennan starfsmann en nokkurn
annan, sem var í þess þjónustu. Keypti stjórnin vand-
að hús með snotrum garði í Hveragerði handa þess-
um ráðunaut og situr hann þar á fullum launum. Ekki
fela yfirmenn hans honum önnur verk en að fara á
vorin í hinar vinsælu skemmtiferðir sveitakvenna, er -4
þær heimsækja framandi héruð. Er Ragnar að vísu
vel til þess fallinn, en svo mundi vera um ýms önnur
störf, ef hugkvæmd húsbændanna væri á hærra stigi
heldur en raun ber vitni um.
*
Eiríkur Einarsson hefur lengi átt setu á þingi, en
ekki verið afkastamaður að sama skapi. Utan þings