Ófeigur - 15.12.1950, Blaðsíða 20
20
ÖFEIGUR
að hafa umsjón í skiptamálinu í sinni sveit en varð var
við samgang á aðkomnu fé og heimakindum, brá
strax við og lét slátra á sínum bæ 100 nýkeyptum
lömbum þó að honum væri það stór skaði. Er slíkt í
einu sjálfsagður og lofsverður þegnskapur, sem vert er
að hafa til eftirbreytni. Er skemst af því að segja að
allri þjóðinni stendur voði af sleifarlaginu með fjár-
skipti Mýramanna. Byggðin virðist vera einn hræri- 4
grautur af aðkomnu fé og skepnum, sem koma eftir
smölun úr afrétt og heimahögum. Það þarf ekki
nema eina veika kind til að sýkja allan sauðfjár-
stofninn í sýslunni. Að Mýrum liggja fimm sýslur,
svo að ekki sé meira sagt. Bændur þar geta allir
átt á hættu að sauðfé þeirra fái veikina í þessum
byggðum og þaðan breiðist faraldurinn um landið allt,
eins og fyrr frá karakúluppsprettunni. Kæruleysið í
stjórn þessara mála er án fordæma. Hermann Jónasson
og Páll Zoph. halda að sér höndum og láta óátalið að
ýmsir bændur kaupa nú eftir að skiptin fóru fram
sauðfé úr öðrum héruðum og flytja þennan búsmala
inn í sýsluna utan við lög og skiptareglur. Hér dugir
ekki nema eitt ráð: Að skipta aftur í allri Mýrasýslu *
og láta héraðið vera sauðlaust í heilt ár. Jafnframt
ætti að láta þá sem standa að þessu hegningarverða
sleifarlagi sæta ábyrgð, en launa drengskaparmönnum
eins og Kjartan í Einholti sýndan þegnskap og manndóm.
Má brátt sjá hvort Alþingi og stjórnin kunna rétt vinnu-
brögð í þessu stórmáli eða hvort andi karakúlmannanna
svífur enn yfir vötnunum þar sem líf og framtíð íslenzku
bændastéttarinnar er í veði.
1 jólablaði Landvarnar var skýrt frá því, að Gunnar
Bjarnason ráðunautur á Hvanneyri, hafi átt mikinn þátt
í að koma á fót sambandi smáhestaframleiðenda í Vest-
ur-Evrópu, í því skyni að skapa íslenzkum bændum
skilyrði fyrir árlegum og öruggum hrossamarkaði í
stórlöndunum. Var búizt við að þetta mál mundi hvar-
vetna mæta skilningi og samúð hér á landi, en svo
var þó ekki. Um líkt leyti og grein þessi barst út um
landið, kom boðsbréf frá Þýzkalandi til Búnaðarfélags
Islands um að senda fulltrúa á stofnfundinn í Köln í
miðjum næsta mánuði. Þegar Páll Zoph. fékk bréfið,
þótti honum skörin tekin að færast upp í bekkinn,.