Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2019, Side 14
14 7. júní 2019FRÉTTIR
irlestra sem hann hefur áhuga á
því að sitja, einnig var salur með
básum þar sem starf annarra að-
ila var kynnt, allt frá forvörnum
til meðferðarúrræða. Hópurinn
og þá sérstaklega Andrea, sem er
mastersnemi í heilbrigðisvísind-
um með áherslu á geðheilbrigði
og sérhæfir sig í misnotkun á lyf-
seðilsskyldum lyfjum, var fljót-
ur að heillast af hugmyndinni að
sitja eins marga fyrirlestra og hann
mögulega gat og drekka í sig vit-
neskju en það sem kom þeim
einna helst á óvart voru ekki fyrir-
lestrarnir sjálfir heldur básarnir en
þeir gáfu hópnum ekki síður þekk-
ingu en fyrirlestrarnir.
„Á básunum sáum við hvað
aðrir voru að gera og áhugavert
var að sjá að önnur erlend félög
voru með verkefni í gangi sem
mörg hver líktust okkar átaki að
einhverju leyti, þau verkefni höfðu
þó öll verið lengur í þróun og
framkvæmd. Við enduðum á löng-
um og innihaldsríkum samtölum
við sérfræðinga, aðstandendur og
aðra sem þekkja til málefnisins
og við uppfræddum okkur eins og
við gátum. Allir voru tilbúnir til að
aðstoða okkur, veita okkur þekk-
ingu og deila með okkur þeirra
reynslu, kennsluefni og svo fram-
vegis. Þvílík samstaða sem maður
fann og maður upplifði að við öll
værum að vinna að sama mark-
miði, það er að segja að sporna við
og draga úr misnotkun lyfseðils-
skyldra lyfja og annarra fíkniefna.
Hvernig fólk vann að því mark-
miði, á hvaða þjónustustigi fólk
vann, eða eftir því hvaða aðferða-
fræði það vann eftir, skipti ekki
máli og flokkaði fólk ekki niður
heldur voru allir þarna til að læra
og sjá hvernig hægt væri að mynda
samráð sín á milli. Það fékk okkur
líka til að hugsa hversu mikilvægt
það er að við Íslendingar stönd-
um saman, við höfum nú þegar
sýnt gríðarlega samstöðu og var
það eitt af því sem fólk hjó eftir og
dàðist að þarna úti, hversu mikil
samstaða varð með Ég á bara eitt
líf-þjóðarátakinu á svona stuttum
tíma. En betur má ef duga skal því
við eigum verk að vinna og eins
og Dr. Frances S. Collins, forstjóri
National Institutes of Health, sagði
á ráðstefnunni: „Við komumst ekki
í þetta ástand á einni nóttu og við
leysum þetta ekki á einni nóttu.
Þarna þarf „allar hendur á þilfar
og brettum upp ermar“-verkefni.“
Þetta á algjörlega við um þann
samfélagsvanda sem við stöndum
frammi fyrir hér á Íslandi. Við get-
um ekki setið og horft á allar þær
birtingarmyndir sem misnotkun
á lyfseðilsskyldum lyfjum og öðr-
um fíkniefnum er að skilja eftir sig;
dauðsföllin, bílsslysin, geðrænu
vandkvæðin og svo framvegis. Því
miður hefur þetta ástand ágerst
hratt og farið fram úr okkur, tím-
inn er ekki að vinna með okkur og
þurfa handtökin því að vera snögg
en áreiðanleg,“ segir Andrea Ýr.
Hópurinn þegar farinn að nýta
hugmyndir frá ráðstefnunni
Hópurinn segir erfitt að segja í
stutt máli hvað stóð uppúr á ráð-
stefnunni en er sammála um að
nokkur áhersluatriði beri af: Sam-
staða, kærleikur, burt með skömm,
tala um og viðurkenna vandann,
langtíma átak og nýjar áskoranir
þýða nýjar leiðir.
„Verkefnin sem vöktu einna
helst áhuga okkar, voru marg-
vísleg og erum við nú þegar að
nýta okkur hugmyndir úr þeim
sem við munum mögulega inn-
leiða í okkar starf. Í einum fyrir-
lestri á ráðstefnunni var farið yfir
helstu forvarnarverkefnin þar
sem náðst hefur að draga úr mis-
notkun á lyfseðilsskyldum lyfjum
og öðrum fíkniefnum. Verkefn-
in hafa borið mismikinn árangur,
eru margvísleg og fela í sér mis-
mikinn kostnað. Þau verkefni sem
sýnt hafa fram á virkni hvað varðar
að dregið hafi úr notkun ólöglegra
fíkniefna að undanskildu kanna-
bis, voru Teen Intervene, Positive
Action, Towards no drug abuse,
Strengthening families og PRO-
SPER.
Það vekur mikinn áhuga hjá
okkur að sjá hvernig þessi ofan-
greindu verkefni eru unnin og get-
um við vel hugsað okkur að nýta
eitthvað af þeirra gagnreyndu að-
ferðum en þar sem við erum að
einblína á misnotkun á lyfseð-
ilsskyldum lyfjum þá vildum við
einnig afla upplýsinga um hvað
virkaði varðandi þann málaflokk
en þar sem slíkur vandi er ekki
eins rótgróinn og notkun ólög-
legra fíkniefna þá er ekki til eins
mikið af verkefnum þar sem búið
er að rannsaka virkni vísindalega.
Við sáum þó efnileg verkefni, til að
mynda Proper use of prescription
drugs (Rétt aðferð við notkun lyf-
sseðilsskyldra lyfja) sem er starf
sem tekið er inn í skóla, sem inni-
heldur verkefni, myndbönd og
fleira. Annað verkefni heitir This is
not about drugs (Þetta snýst ekki
um dóp) sem einnig vinnur með
myndband/stuttmynd með leið-
andi umræðum og verkefnum í
kjölfarið,“ segir Andrea Ýr.
Samstarf og samstaða er
lykilatriði
Andrea Ýr segir að hópnum hafi
fundist áhugavert að sjá að gegn-
umgangandi í öllum átökunum,
þar sem tekist hefur að draga úr
misnotkun á lyfseðilsskyldum lyf-
jum og öðrum fíkniefnum í ríkjum
Bandaríkjanna, þá ríkti samstarf
og samstaða milli fólks. Á það ekki
einungis við innan samfélagsins,
heldur einnig á milli þeirra sem
unnu við málaflokkinn, það er
að segja allt frá fræðslu/forvörn-
um til meðferðarúrræða og þá sér
í lagi að löggæsla og tollyfirvöld
væru elfd og að þau væru í góðu
samstarfi við aðra aðila sem mál-
ið varðaði.
„Þau samfélagslegu vit-
undarvakningarátök, sem taka þó
einnig að sér fræðslu/forvarnir,
sem heilluðu okkur mest voru Fed
Up! og Not my kid. Einnig voru
ýmis meðferðarúrræði sem vöktu
áhuga okkar, stuðningsúrræði eftir
meðferð og stóð þar upp úr bata-
samfélagssamtök (e. Recovery
Community Organization) í fylk-
inu Kentucky sem kallast Voices of
Hope (Raddir vonarinnar), nafnið
eitt og sér gefur manni hlýju í
hjartað. Við getum með engu móti
talið upp öll þau verkefni sem gáfu
og munu halda áfram að gefa okk-
ur innblástur í okkar vinnu en ef
áhugi er fyrir því að heyra meira
um einstök verkefni, tökum við
glöð á móti fyrirspurnum.
Þau frábæru verkefni sem við
fengum að kynnast í básunum
og innsýnin inn í hverju þau hafa
áorkað veitti manni von og stað-
festingu á að við sem komum að
átakinu Ég á bara eitt líf erum á
réttri leið hvað varðar okkar ver-
kefni. Eins og með öll verkefni,
hvort sem það er innan félagasam-
taka, ríkis, sveitarfélaga eða hvað
annað þá getum við ekki staðið ein
frekar en erlendu verkefnin, mikil-
vægi þess að sem flestir leggi hönd
á plóg og allir vinni saman verður
aldrei ofmetið. Með þjóðarátak-
inu einu þurrkum við ekki þenn-
an vanda út, ekki frekar en önnur
verkefni eða stofnanir en með því
að standa saman og að allir leggist
saman á árarnar getum við öll haft
áhrif og fundið svar við því hvernig
við vinnum bug á þessum vanda.
Enginn einn er með algilt svar um
hvernig best er að vinna á þess-
um vanda og við sem stöndum
að Ég á bara eitt líf erum allavega
til í að vera með þeim fyrstu til að
viðurkenna að við séum ekki með
öll svörin en við teljum okkur þó
hafa nokkuð mikið til málanna að
leggja,“ segir Andrea Ýr.
Á bak við hvert andlát eru ótal
mörg líf í sárum
Samkvæmt Ólafi B. Einarssyni hjá
Embætti Landlæknis, eru stað-
fest 39 lyfjatengd andlát árið 2018,
samanborið við 30 árið 2017.
„Eins og við segjum oft, þó við
myndum einungis ná að bjarga
einu lífi, þá væri öll okkar erfið-
isvinna þess virði. Á bak við eitt líf
er manneskja; sonur, dóttir, bróð-
ir, vinur og svo framvegis, sem skil-
ur eftir sig ótal mörg líf í sárum. Við
sem stöndum að þjóðarátakinu
getum því miður ekki fengið dýr-
mætt líf Einars Darra okkar til baka
en við getum lagt okkar af mörkum
til að annar dýrmætur einstakling-
ur fái kannski tækifæri til að upplifa
allt sem lífið hefur upp á að bjóða.
Þetta er heldur betur þess virði að
láta reyna á, það finnst okkur alla-
vega og við efumst ekki um að þeir
sem vinna í þessum málaflokki eru
hjartanlega sammála okkur. Við
viljum enda á að hrósa öllum þeim
sem vinna í þessum erfiða mála-
flokki, sama hvort það er í forvörn-
um, stuðningi, meðferð, innan rík-
is, sveita, samtaka eða annað. Við
vonum að í sameiningu getum við
fundið lausn.
Förum vel með þetta eina líf
sem við eigum, hlúum að geðheil-
brigði okkar og annarra, valdeflum
okkur og aðra í kringum okkur með
fræðslu og forvörnum, stöndum
með þeim sem þurfa stuðning og
aðstoð, styðjum þá sem náð hafa
bata og leggjum okkur fram um að
sýna hvort öðru virðingu og kær-
leika, það skiptir máli.” n
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu flottar innréttingar
í hæsta gæðaflokki. Mikið úrval.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Hreifst af verkefninu Andrea
Ýr ásamt David Brian Laws sem
missti dóttur sína 17 ára gamla.
„Hann var svo heillaður af Ég á
bara eitt líf þjóðarátakinu og
kraftinum í hópnum, að hann vill
helst gera okkur af sendiherra fyrir
Shatterproof.“
Armbönd átaksins Aníta Rún
og Óskar með armbönd átaksins
LJÓSMYND: DV/HANNA
„Ég á
bara
eitt líf
og þú
líka“