Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 2
2 8. mars 2019FRÉTTIR
Á þessum degi,
8. mars
1618 – Þýski stjörnufræðingurinn
Johannes Kepler setur fram þriðja lög-
málið um gang reikstjarnanna um sólu.
1817 – Kauphöllin í New York er
stofnuð.
1910 – Franski flugmaðurinn
Raymonde de Laroche fær fyrst kvenna
flugstjórnarréttindi.
1974 – Charles de Gaulle-flugvöllurinn
er opnaður í París í Frakklandi.
Síðustu orðin
„Slökum aðeins á, bræður …“
– Bandaríkjamaðurinn Malcolm X
(1925–1965), baráttumaður fyrir
mannréttindum og réttindum
blökkumanna
NÆSTI KAFLI HEFST HJÁ OKKUR
NAUSTABRYGGJA 31, 110 REYKJAVÍK
79.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
184 M2
5
HRAUNBÆR 30, 110 REYKJAVÍK
38.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Fjölbýli
107 M2
4
ARNARTANGI, 270 MOSFELLSBÆR
49.900.000 kr.
Tegund
Stærð
Herbergi
Raðhús
94 M2
4
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / S. 570 4800 www.gimli.is BJÓÐUM UPPÁ FRÍTT SÖLUVERÐMAT
ARI ELTIHRELLIR
DREIFIR NEKTAR-
MYNDUM AF
FYRRVERANDI
n Ítrekað kærður til lögreglu fyrir áreitni n Hefur stundað
stafrænt kynferðisofbeldi
H
ann heldur úti fjölmörgum
grúppum og Facebook-síðum
til að hrella konur, sem voru
annaðhvort að deita hann í
stuttan tíma eða eru tengd einhverjum
í kringum þær. Hafa jafnvel bara vogað
sér að segja nei við hann. Hann auglýsir
þær sem vændiskonur, bendlar þær við
barnaníð og almennt reynir að eyði-
leggja mannorð þeirra.“ Þannig hljóðar
nafnlaust ákall um hjálp í fjölmennum
Facebook-hópi kvenna, sem nefnist:
Stöndum saman – stefnumótaforrit.
Sá er hjálparbeiðnin snýst um er Ari
Sigurðsson, 46 ára gamall maður sem
búsettur er í Taílandi nú um stundir. Ari
hefur ítrekað verið kærður til lögreglu
fyrir margs konar stafrænt kynferðis-
ofbeldi án þess að lögregluyfirvöld hafi
getað stöðvað framgöngu hans. Þá hef-
ur DV heimildir fyrir því að margar
konur hafi lent í margs konar annarri
áreitni af hálfu Ara eftir skammvinn
samskipti við hann á stefnumóta-
forritum.
Sendi grófar klámmyndir
til DV og lögreglu
Á dögunum barst póstur frá Ara til rit-
stjórnar blaðsins sem innihélt ótal
nektarmyndir af konu sem Ari hafði
verið í sambandi með í stuttan tíma.
Til að ögra yfirvöldum var afrit af póst-
inum einnig sent til Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur DV
heimildir fyrir því að sami póstur hafi
verið sendur til allra samstarfsmanna
konunnar þar sem gefið var í skyn að
hún stundaði vændi. Þessi háttsemi
Ara hefur verið kærð til lögreglu.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Ari
hefur uppi hegðun af þessu tagi. Í ágúst
2016 steig Björg Amalía Ívarsdóttir fram
í viðtali við DV og lýsti sams konar hátt-
semi Ara. Hún hafði kynnst honum á
stefnumótasíðu og sambandið gengið
vel í fyrstu. Fljótlega fór að halla undan
fæti og lýsti Björg Amalía margs konar
andlegu ofbeldi sem hún sakaði Ara
um að beita hana. Þegar sambandinu
lauk fór hann að áreita Björgu Amalíu
með ýmsum hætti, meðal annars dreifa
niðurlægjandi myndum og mynd-
böndum af henni sem víðast. Þá prent-
aði Ari út nektarmyndir af henni auk
skilaboða um að hún væri að selja sig,
og dreifði myndunum í póstkassa í fjöl-
býlishúsi sem Björg Amalía var búsett
í. Einnig hélt hann því fram að Björg
Amalía hefði beitt hann grófu heimilis-
ofbeldi.
Þegar DV hafði samband við Ara
á sínum tíma vegna ásakana Bjargar
Amalíu þá sagðist hann vera í fullum
rétti til að birta myndirnar og mynd-
böndin. „Þetta eru myndbönd sem ég
hef fullt leyfi til þess að birta. Ég hef
yfir leitt lent í því að enginn trúir því
að ég hafi lent í þessu ofbeldi. Þetta er
að mínu mati myndband á móti orði,“
sagði Ari. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is