Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 4
4 8. mars 2019FRÉTTIR
Hjúskaparstaða og börn?
Kvæntur Lilju Karlsdóttur – við eigum
saman þrjár dætur.
Bók eða bíó? Bækur, eða réttara sagt
hljóðbækur, eru í miklu uppáhaldi þessa
dagana.
Hvað er skemmtilegt? Lífið. Úti-
vist með fjölskyldunni, skíði, golf og hvers
konar hreyfing. Fátt slær þó því við að elda
góðan mat með góðum vinum og vínum.
Mætti þó sjálfsagt vera meiri
hreyfing og minni matur.
Hvað er leiðin-
legt? Hroki. Fátt fer
í taugarnar á mér en
hrokafullt fólk gerir það
svo sannarlega. Sérstak-
lega þegar fara saman
völd og hroki. Völdum
fylgir ábyrgð og ábyrgð
mætti svo gjarnan fylgja
meiri auðmýkt.
Trúir þú á drauga? Nei.
Notarðu regnhlíf? Nei – ég gleymi
henni alltaf.
Áttu gæludýr? Já, við eigum 9 ára
gamlan Dverg-Schnauzer sem heitir Glói.
Mikill gleðigjafi fyrir fjölskylduna.
Hefurðu gengið á Esjuna? Já, geri
það reglulega með fjölskyldunni.
Fyrsta atvinnan? Fyrsta sumarstarf-
ið var þegar ég var 12 ára að tappa Nivea-
kremi í dósir hjá S. Helgasyni,
fyrirtæki sem móðurafi minn
stofnaði. Eftirminnilegast var
sennilega þegar ég hellti
niður 200 lítrum af Double
Douche-sjampói – þóttist
ráða við að færa tunnuna
en það reyndist rangt
mat.
Leiðinlegasta húsverkið? Mér
finnst ágætt að græja tiltekt, skúra og ryk-
suga. Hins vegar leiðist mér mest að þurrka
af og pússa spegla.
Besta ráð sem þú hefur fengið?
Ég hef fengið svo mörg góð ráð í gegnum
lífið frá fjölskyldu og vinum að það er erfitt
að greina á milli. Á endanum hafa þau flest
snúist um að fylgja hjartanu – nokkuð sem
ég hef alltaf gert og hefur reynst mér vel í
lífi og starfi.
Mannkostir þínir? Það er nú kannski
annarra að leggja mat á það. Ég held að það
hafi alltaf gagnast mér vel að vera frekar
róleg og yfirveguð týpa. Ég reyni að koma
fram við fólk af virðingu og muna að það eru
alltaf fleiri en ein hlið á málunum.
Lestir þínir? Var alltaf óstjórnlega
óstundvís en það hefur batnað með
árunum. Í seinni tíð er það eflaust helst
áunninn athyglisbrestur og óhófleg notkun
fréttamiðla í símanum mínum.
Hver er fyrsta minningin þín?
Man eftir forláta rauðum slökkviliðsbíl sem
ég átti þegar ég var u.þ.b. tveggja ára og
hláturinn hjá föðurafa mínum þegar hann
hrasaði með mig í stiga þegar ég var litlu
eldri. Hann lést skömmu síðar og mér þykir
alltaf vænt um þessa minningu.
Það erfiðasta sem þú hefur
gert? Að jarða föður minn.
Nammi, snakk eða ís? Alltaf
nammi.
Fyrsti bíllinn? 1978 módel af Saab 96.
Eðalbíll, þó svo að dempararnir hafi verið
vitaónýtir og nokkurt ryð komi í gripinn.
Eitthvað að lokum? Nei, er þetta
ekki bara fínt?
Konungsblæti Íslendinga
F
lott er að fá reista af sér
brjóstmynd úr graníti eða
bronsi. Enn þá flottara að fá
heila styttu á áberandi stað í
bænum. Ólafur Ragnar Grímsson
er flottur karl og veit vel af því. Það
kitlar því hégómann að fá brjóst-
mynd á Bessastöðum og máske
mun stytta í fullri stærð rísa af
honum í fyllingu tímans. Sem
fyrrverandi ráðherra og forseti er
Ólafur ígildi konungs hér á þessu
landi, sem sárlega vantar og þráir
blátt blóð.
Við Íslendingar erum hrifnir
af konungum og það sést best á
því hvernig við tilbiðjum forseta
vorn. Það sama er ekki uppi á ten-
ingnum hjá til dæmis Þjóðverjum
og Ítölum, sem einnig hafa valda-
lausa forseta. Það veit enginn
hverjir forsetarnir Frank-Walter
Steinmeier og Sergio Matterella
eru. Ekki einu sinni Þjóðverjar og
Ítalir sjálfir.
Íslendingar gerðu þau klunna-
legu mistök að segja sig úr lög-
um við Danakonung og taka upp
embætti forseta. Ef við gætum
snúið til baka í DeLorean-tímavél
myndum við ekki gera sömu mis-
tökin heldur halda sambandinu
við konung eða í versta falli taka
upp eigin konungsætt. Það yrði
að sjálfsögðu að vera fín ætt með
ættarnafn eins og til dæmis Thors,
Buch eða Kjerúlf.
Hinar Norðurlandaþjóðirnar
eru þær þjóðir sem við Ís-
lendingar berum okkur sífellt
saman við, fyrir utan Finna með
sín háu kinnbein og fimmtán fall-
beygingar. Danir, Svíar og Norð-
menn eiga sínar konungsfjöl-
skyldur sem þeir halda mikið upp
á og skarta við öll helstu tækifæri.
Þetta eru okkar fyrirmyndir.
Við upphefjum okkar forseta
á stall með konungum og drottn-
ingum Norðurlanda. Setjum
hann í kjólföt með borða, nælum
í hann orður og komum honum
fyrir í litlum kastala langt frá ys
og þys miðborgarinnar. Forsetar,
og reyndar biskupar líka, eru eina
fólkið sem við titlum herra og frú.
Forsetar okkar eru ekki ald-
ir upp frá blautu barnsbeini til að
gegna embættinu og því hafa þeir
mismunandi sýn á það. Munur-
inn á Ólafi og Guðna gæti ekki
verið augljósari. Ólafur lítur á sig
sem hálfguð en Guðni er vand-
ræðalega alþýðlegur. Þeir þurftu
hins vegar ekki að aðlagast emb-
ættinu, þjóðin aðlagaðist þeim.
Það sést best hversu konung-
legan brag forsetaembættið okkar
hefur þegar kemur að kosningum.
Það er alltaf hitamál þegar nýr for-
seti er valinn, en þegar búið er að
krýna hann þá er ekki aftur snúið.
Það þykir argasti dónaskapur og
föðurlandssvik að bjóða sig fram
gegn sitjandi forseta. Tilraun til
valdaráns jafnvel.
Það er kominn tími til þess að
við Íslendingar hættum þessu
hálfkáki og viðurkennum að okk-
ur langar sjúklega mikið í kóng og
drottningu. Við getum þá leiðrétt
mistökin frá 1944 og komið okkur
saman um ættlegg til þess að taka
við tigninni. Eða þá að biðja Mar-
gréti að taka aftur við okkur. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Jólin voru eitt sinn bönnuð á Englandi
Neanderdalsflauta er elsta hljóðfærið
sem fundist hefur, talin vera um 45
þúsund ára gömul
Inngrónar táneglur eru arfgengar
Íslenskir karlar eru líklegri til að fá
lekanda en konur að fá klamýdíu
Það eru bakteríur í rigningu
Hver er
hann
n Er með millinafnið
Helgi
n Fékk fálkaorðuna
árið 2011
n Var valinn poppstjarna
ársins árið 1969
n Lék í kvikmyndunum Óðali feðr-
anna, Djöflaeyjunni og Villiljósi
n Söng fyrir Íslands hönd
í Eurovision árið 1995
SVAR: BJÖRGVIN HALLDÓRSSON
„Það er kominn
tími til þess
að við Íslendingar
hættum þessu hálf-
káki og viðurkennum
að okkur langar sjúk-
lega mikið í kóng og
drottningu
AÐALFUNDUR BÍ 2019
Fimmtudaginn 4. apríl kl. 20.00 í Síðumúla 23
Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2019 verður
haldinn fimmtudaginn 4. apríl n.k. að Síðumúla 23
3. hæð, 108 Reykjavík þar sem félagið er til húsa og hefst
fundurinn stundvíslega kl. 20.00.
Dagskrá:
• Venjuleg aðalfundarstörf
• Skýrslur frá starfsnefndum
• Kosningar*
• Lagabreytingar
• Önnur mál
BÍ-félagar eru hvattir til að mæta
*Framboð til formanns BÍ þarf að berast
skrifstofu BÍ ekki síðar en tveimur vikum fyrir
boðaðan aðalfund.
Þorsteinn Víglundsson
YFIRHEYRSLAN
Þorsteinn
Víglundsson
389712