Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 5
Þann 22. febrúar sl., strax eftir að sjávarútvegsráðherra
hafði tilkynnt, að hann - ríkisstjórnin - myndi leyfa
hvalveiðar að nýju - dráp á ekki færri en 2.130 dýrum, á
fimm árum - sendi stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar,
SAF, sem auðvitað er langstærsta og þýðingarmesta
atvinnugrein landsins, frá sér harðorð mótmæli við
þessari ákvörðun, þar sem lýst er vonbrigðum og
skilningsleysi samtakanna með þessa ákvörðun og
spurningar settar fram um það, á hverju hún byggi
eiginlega.
Fór þetta nokkuð fram hjá þér, Þórdís Kolbrún?
Áður höfðu Hvalaskoðunarsamtök Íslands sent frá sér
yfirlýsingu, þar sem fram kom, að höfundar skýrslunnar um
„Þjóðhagsleg áhrif hvalveiða“, sem sjávarútvegsráðherra
þóttist byggja sín nýju leyfi á, hefðu ekkert samband haft við
Samtök ferðaþjónustunnar, Hvalaskoðunarsamtökin eða
Íslandsstofu við vinnslu málsins og gerð skýrslunnar.
Fannst þér þetta bara í góðu lagi, Þórdís Kolbrún?
Eins og þú auðvitað veizt og SAF tekur sérstaklega fram í
ályktun sinni, skapar ferðaþjónustan jafn miklar
gjaldeyristekjur á einum degi og hvalveiðarnar skapa á
einu ári. Er í því glóra, Þórdís Kolbrún, að hætta
gífurlegum hagsmunum ferðaþjónustunnar og allra
landsmanna í þágu - í þessu samhengi - pínuhagsmuna
eins fyrirtækis eða eins manns!?
Hvernig getur þú setið þegjandi og hljóðalaus undir þessari
illa grunduðu þróun, þessari heimsku og þessari áhættu!?
Duga þér þau ummæli skýrsluhöfunda, sem aldrei töluðu við
SAF, hvalaskoðunarfyrirtækin eða Íslandsstofu, að „engar
vísbendingar séu um að hvalveiðar hafi orðið til þess að
margir hafi hætt við Íslandsferð“.
Auðvitað fá menn engar vísbendingar, ef þeir kanna ekki
málin!
Höfundar H.Í. skýrslunnar segja svo, eins og fram kemur í
ályktun SAF, að „sennilega hafi hvalveiðar lítil áhrif á
ferðamannastraum til landsins“.
Skyldu skýrsluhöfundar hafa kastað upp peningi um
þetta? Viljum við byggja framtíðina á einhverju
„sennilegu“, þegar við getum kynnt okkur málin og öðlast
vitneskju um, hvað við erum að gera með okkar fjöregg?
Þó að sjávarútvegsráðherra og sú valdaklíka, sem á bak við
hann stendur, hafi látið sér þessar ágizkanir skýrsluhöfunda
um velferð fjöreggs þjóðarinnar nægja, skal því ekki trúað, að
þér, björtum, djörfum og hreinskiptnum ráðherranum, nægi
þessi „forkastanlegu vinnubrögð“, eins og segir í yfirlýsingu
Hvalaskoðunarsamtakanna.
Við beinum hér með þeim eindregnu tilmælum
til þín, að þú beitir þér fyrir því, að
skoðanakannanir fari fram meðal 5-7 helztu
þjóðanna, sem sækja okkur heim og
ferðaþjónusta byggir á, um það; 1) hvaða
augum þær líta hvalveiðar Íslendinga, 2) hvort
veiðarnar muni hafa áhrif á ákvörðun þeirra
um það, hvort þeir vilja sækja Ísland heim, og
gjarnan má bæta við í leiðinni, 3) hvort
hvalveiðarnar muni hafa áhrif á kaup þeirra á
íslenzkum vörum.
Því miður getum við ekkert traust sett lengur á
sjávarútvegsráðherra í þessu máli, okkur til mikilla
vonbrigða, fjármálaráðherra virðist innsti koppur í búri
þeirrar valdaklíku, sem á bak við þetta gjörræðisverk stendur,
og Vinstri grænir hafa svikið sjálfa sig og stuðningsmenn sína
og standa rúnir öllu trausti, þannig, Þórdís Kolbrún, að þú
virðist ein standa eftir traustsins verð, þó að þú hefðir mátta
grípa inn í þetta fyrr.
En, enn er lag og enn má leiðrétta feigðarflan
sjávarútvegsráðherra, fjármálaráðherra og ærulausra
Vinstri grænna.
OPIÐ BRÉF TIL ÞÓRDÍSAR KOLBRÚNAR GYLFADÓTTUR, FERÐAMÁLARÁÐHERRA
Þórdís Kolbrún; hvernig geturðu
setið róleg og hljóð, með hendur í skauti;
berð þú ekki ábyrgð á ferðaþjónustunni!?
JARÐARVINIR
Ole Anton Bieltvedt,
formaður
VIÐ SETJUM ALLT OKKAR TRAUST Á ÞIG, ÞÓRDÍS KOLBRÚN!!