Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 6
6 8. mars 2019FRÉTTIR
ÚRVAL AF HJÁLMUM OG ÚLPUM
Faxafen 12
108 Reykjavík
Sími 534 2727
alparnir.is HREYFING • KRAFTUR • ÁNÆGJA
Allir barna
hjálmar
9.995 kr.-
Fullorðins
hjálmar frá
19.995 kr.-
CMP herra
úlpur frá
29.995 kr.-
UMHVERFISVÆNI
RUSLAPOKINN
www.igf.is
SEGÐ
U NE
I
VIÐ P
LAST
I
Neita að upplýsa kostnað við
Harvard-nám framkvæmdastjóra
S
eðlabanki Íslands neitar
að upplýsa DV um hvort
og/eða hversu háa upp-
hæð bankinn borgaði fyrir
framhaldsnám Ingibjargar Guð-
bjartsdóttur, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits
bankans, við Harvard-skóla í
Bandaríkjunum árin 2016 til
2017. Að mati blaðsins er ótækt
að æðstu stjórnendur Seðlabank-
ans eða annarra stofnana geti út-
hlutað verulegum gæðum, eins
og skólagjöldum í dýrt háskóla-
nám, til undirmanna sinna án
þess að almenningur sé upp-
lýstur um það og hvort öll-
um starfsmönnum standi
slíkt til boða. Sjónar-
mið bankans
eru þau að um
persónulegt
mál
framkvæmdastjórans sé að ræða.
Neitun bankans hefur verið kærð
til Úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál sem mun taka málið fyrir
í byrjun næstu viku.
Fullkunnugt um að
refsiheimildir skorti
Mikill styr hefur staðið um starf-
semi gjaldeyriseftirlits Seðlabank-
ans undanfarin misseri. Ekki síst
varðandi umfangsmikla húsleit
eftirlitsins hjá Samherja og síð-
an 15 milljóna króna stjórnvalds-
sekt sem bankinn lagði á fyrirtæk-
ið árið 2016. Hæstiréttur Íslands
ógilti þá ákvörðun bankans og
síðan hefur málið verið
fyrirferðarmikið í
fjölmiðlum.
Meðal
annars
hefur Þor-
steinn Már Vilhelmsson, forstjóri
Samherja, gengið hart fram og
krafist þess að Már Guðmundsson
seðlabankastjóri og aðrir lykil-
stjórnendur verði látnir sæta
ábyrgð vegna málsins.
Ingibjörg Guðbjartsdóttir, sem
er lögfræðingur að mennt, var
ráðin forstöðumaður gjaldeyris-
eftirlits Seðlabankans í maí 2009 en
síðar varð hún framkvæmdastjóri
eftirlitsins. Óhætt er að fullyrða að
hún hafi gegnt lykilhlutverki í að
móta stefnu og áherslur deildar-
innar. Sú stjórnsýsla sem var
viðhöfð innan eftirlitsins hefur
sætt gríðarlegri gagnrýni undan-
farið, meðal annars frá Tryggva
Gunnarssyni, umboðsmanni Al-
þingis. Meðal annars snýr gagn-
rýnin að því að eftirlitið hafi haldið
áfram að rannsaka einstaklinga
og fyrirtæki, með mjög íþyngj-
andi hætti, þrátt fyrir að stjórn-
endum hafi verið fullkunnugt um
að engar nothæfar refsiheimildir
hafi verið fyrir hendi vegna gjald-
eyrisbrota. Ástæðan var sú að ekki
lá fyrir samþykki ráðherra fyrir
heimild bankans til að beita þess-
um refsingum.
Starfar fyrir
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
Í júlí 2016 var tilkynnt að Ingi-
björg væri farin í leyfi frá Seðla-
bankanum til þess að hefja meist-
aranám í opinberri stjórnsýslu,
MPA, við John F. Kennedy School
of Government við Harvard-há-
skóla í Bandaríkjunum. Kom fram
í tilkynningunni að ráðgert væri að
Ingibjörg kæmi aftur til starfa hjá
Seðlabankanum ári síðar.
Neitun Seðlabankans bendir
til þess að háskólanámið ytra
hafi verið a.m.k. að hluta greitt af
Seðlabankanum enda hafi kostn-
aður ekki verið greiddur væri
bankanum í lófa lagið að upplýsa
þar um. Kostnaður við MPA-nám
við Harvard hleypur á milljón-
um. Það er ekki óþekkt að fyrir-
tæki greiði fyrir slíka framhalds-
menntun starfsmanna, en oftar
en ekki er gert samkomulag um
að viðkomandi starfsmaður vinni
hjá fyrirtækinu í tiltekinn tíma
annars verði námið endurgreitt
að fullu eða hluta. Hvort það sé
viðhaft hjá opinberum stofnunum
liggur þó ekki fyrir. Ingibjörg kom
aftur til starfa árið 2017 en aðeins
til skamms tíma. Þá kvaddi hún
Seðlabankann og hóf störf hjá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum.
Eins og áður segir óskaði DV
eftir formlegri staðfestingu á því
að Seðlabanki Íslands hefði greitt
fyrir Harvard-nám Ingibjargar,
hversu há upphæðin hefði verið
og hvort Ingibjörg hafi verið á
launum, að fullu eða hluta, meðan
á námsleyfi hennar stóð. Til vara
óskaði blaðið eftir upplýsingum
um hversu marga slíka námsstyrki
Seðlabankinn Íslands hafi veitt frá
því að Már Guðmundsson tók við
sem seðlabankastjóri árið 2009
og heildarupphæð slíkra náms-
styrkja. Eins og áður segir hafnaði
Seðlabankinn því alfarið að veita
DV þessar upplýsingar og bar fyrir
sig persónuverndarsjónarmið.
Mun Úrskurðarnefnd upplýsinga-
mála úrskurða um málið á næst-
unni. n
Ingibjörg Guðbjarts-
dóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri
gjaldeyriseftirlits
Seðlabanka Íslands.
Hús Seðla-
bankans við
Kalkofnsveg.