Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 16
16 8. mars 2019FRÉTTIR
É
g kom fyrst í fyrra, 2018 í júlí.
Strax eftir fyrsta mánuðinn
vissi ég að ekki væri allt með
felldu.“
Romeo Sarga kom til Íslands í
júlí 2018. Hann var kominn hing
að, með bróður sínum, til að
vinna og spara pening. Hann hafði
ákveðnar hugmyndir um hvað
biði hans við komuna, enda hafði
hann hlotið upplýsingar og loforð
frá starfsmannaleigunni Menn í
vinnu ehf. sem hann var að fara að
vinna fyrir.
Eftir að hann kom á áfanga
stað, varð honum þó fljótt ljóst, að
þau fögru fyrirheit sem hann hafði
fengið, voru í hrópandi ósamræmi
við þann veruleika sem tók á móti
honum á Íslandi. Hann settist nið
ur með blaðamanni til að segja frá
því af hverju hann hætti hjá starfs
mannaleigunni Menn í vinnu ehf.
og af hverju hann og fleiri fyrrver
andi starfsmenn eru nú að leita
réttar síns með aðstoð Eflingar.
Húsnæðið að Hjallabrekku
„Fyrst og fremst var það húsnæðis
vandamál, varðandi gistinguna.
Við vorum alltaf of margir í sama
herbergi. Þegar það var haft sam
band við okkur úti, áður en ég kom
til Íslands, var okkur tjáð að við
myndum búa við góðar aðstæður.
Ekkert endilega að við yrðum einir
í herbergi. Mér til dæmis var sagt,
því ég kom með bróður mínu, að
við fengjum að vera tveir einir
saman.“
En Romeo og bróðir hans voru
ekki í tveggja manna herbergi. Þeir
voru yfirleitt 3–4 saman.
„Herbergin voru mjög lítil. Við
höfðum ekki einu sinni pláss til
að leggja frá okkur persónulega
muni við hliðina á rúminu. Þetta
voru mjög mjög slæmar aðstæð
ur. Margir sem hafa komið hing
að endast bara í 1–3 mánuði. Þeir
verða óánægðir þegar þeir sjá hvar
þeir eiga að búa og hvað launin
eru lág og fara því bara heim. Ég
er búinn að endast óvenju lengi og
með einn hæsta starfsaldurinn.“
DV fjallaði um daginn um
málsvarnir starfsmannaleigunnar.
Þar greindi fyrirsvarsmaður leig
unnar, Halla Rut, frá því að Romeo
og fleiri hefðu dvalið í flottri ris
íbúð í Krummahólum þar til þeir
fóru í jólafrí heim til Rúmeníu.
Romeo segir það rangt, hann hafi
bara búið að Hjallabrekku.
„Það særði mig að heyra hvaða
lygum hún er að dreifa um mig og
okkur. Ég hef aldrei verið á öðrum
stað eða í annarri íbúð eins og hún
heldur fram. Það er ekki satt og ég
veit ekki af hverju hún er að halda
því fram.“
Sárnaði fréttin
Við komuna til landsins fékk
Romeo samning til undirritunar
sem kvað á um 1.600 króna tíma
kaup í dagvinnu og 2.800 króna í
yfirvinnu. Síðan hafi starfsmanna
leigan ákveðið að hafa launin 440
þúsund krónur fastar á mánuði
fyrir 220 vinnustundir.
„Ég veit ekki hvaða samkomu
lag við eigum að hafa gert, ég fékk
aldrei nýjan samning til að skrifa
undir. Ég kannast ekki við að hafa
samið um föst mánaðarleg laun.“
Eitt ef fyrstu verkefnunum sem
Romeo var settur í var að taka til
eftir Guns N‘Rosestónleikana
á Laugardalsvelli. Sú vinna hafi
verið svört og fengu þeir starfs
menn sem henni sinntu greidda
einhverja fjárhæð sem þeir höfðu
enga leið til að sannreyna. Það var
ekki fyrr en löngu seinna sem þeir
byrjuðu að fá launaseðla.
„Við fengum aldrei launaseðla
fyrr en við byrjuðum að ganga á
eftir því. Þá fórum við að fá þá raf
rænt í heimabanka.“
Tungumálaörðugleikar
Blaðamaður bar launaseðil fyrir
nóvembermánuð undir Romeo
sem virtist ekki hafa fengið upp
lýsingar um hvernig lesa eigi
úr launaseðlum. Ýmislegt sem
blaðamaður benti honum á varð
andi frádráttarliði og útreikning
launa, kom Romeo á óvart. Til
dæmis taldi hann að 10,17% or
lofsgreiðslur sem bættust við föstu
launin væri frádráttarliður sem
væri lagður inn á einhvern orlofs
reikning sem ekki væri til.
Frádráttarliðir voru sýndir fyrir
hvern mánuð, en einnig samtala
um frádráttarliði frá áramótum.
Þetta hafði aldrei verið skýrt al
mennilega út fyrir honum. DV
hefur áður greint frá því að starfs
mannaleigan bæti kjör starfs
manna eftir vissan reynslu
tíma. Þetta var ekki skýrt út fyrir
starfsmönnum. Um hver mánaða
mót báru þeir saman launin sín
og skildu ekki af hverju þeir fengu
mismikið greitt fyrir sömu vinnu.
Enda er starfsmannaleigan ekki
með túlk á sínum vegum, og því
geta tungumálaörðugleikar orðið
til vandræða.
„Þetta er líka aðalvandamálið.
Það koma upp vandamál því það
eru alls ekki allir sem tala ensku
og svörin eru snörp frá leigunni,
ef þau berast yfirhöfuð. Við vorum
til dæmis fjórir í sama verki með
sama vinnutíma. Ég fékk kannski
rúmlega 100 þúsund útborgað á
meðan aðrir fengu 20 eða 70 þús
und. Þá vakna margar spurningar.
Til dæmis ég og bróðir minn, við
höfum unnið til svona klukkan
hálf sex, sex, en aðrir eru kannski
til tíu um kvöldið. Svo þegar við
berum saman launaseðlana okkar
þá var ég að fá miklu meira borg
að en þeir.“
Peningarnir á bankabók og
launamál
Romeo segir að samskiptin við
Höllu hafi alltaf farið vel fram,
en hún hafi stöðugt verið að
GRÁTANDI
RÚMENINN
STÍGUR FRAM
n Hafnar málflutningi Menn í vinnu ehf. og vill segja sína hlið n Áttu á hættu að vera
sendir fyrirvaralaust úr landi nSagt að það þýddi ekkert að hringja í lögregluna„Það særði mig að heyra
hvaða lygum hún er að
dreifa um mig og okkur
Erla Dóra
erladora@dv.is
Romeo var hryggur vegna stöðunnar.
Mynd/RÚV