Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 20
20 UMRÆÐA
Sandkorn
8. mars 2019
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Aðalritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristjón Kormákur Guðjónsson
Aðstoðarritstjóri: Einar Þór Sigurðsson Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Látið skoða rassinn ykkar
Þ
að er orðin árlega hefð að
marsmánuður snúist að
miklu leyti um að vekja
athygli á baráttunni gegn
krabbameinum í körlum. Svokall-
aður Mottumars hefur fest sig í
sessi og er það vel. Sá er þessi orð
skrifar hefur fylgst með átakinu af
aðdáun í gegnum árin. Þátttaka
mín hefur þó fyrst og fremst snúist
um móralskan, og stundum fjár-
hagslegan, stuðning. Ástæðan er
sú að ég er taðskegglingur og get
því ekki með nokkru móti skartað
veglegri mottu nema álímd sé!
Eitt af þeim krabbameinum
sem hefur verið að færast í aukana
hérlendis er krabbamein í ristli. Í
hverri viku greinast fjórir einstak-
lingar með slíkt krabbamein. Það
er umtalsverð fjölgun því ekki fyrir
svo löngu voru þrír Íslendingar að
greinast með krabbameinið í viku
hverri. Þá deyr einn Íslendingur í
hverri viku út af ristilkrabbameini.
Rétt er að benda á hið augljósa, að
ristilkrabbameinið herjar jafnt á
bæði kyn.
Þetta er sorgleg þróun því ristil-
krabbamein er eitt fárra meina
sem hægt er að koma í veg fyrir
eða finna á byrjunarstigi og auka
þar með verulega líkur á lækn-
ingu. Það er gert með skimun hjá
meltingarfæralæknum. Mælt er
með því að allir sem eru 50 ára eða
aldri fara í slíka skimun og þróun-
in erlendis er á þá leið að ráðlagð-
ur aldur fer lækkandi. Einhverra
hluta vegna er staðan þó sú að
fólk þarf sjálft að hafa frumkvæð-
ið að því að hefja þessa vegferð. Því
mættu yfirvöld gjarnan breyta. Það
þarf að koma upp einhverju kerfi
þannig að fólk sé hvatt til þess að
panta sér tíma í ristilskimun.
Á dögunum fór leiðarahöfundur
í slíka skimun, langt fyrir aldur
fram. Ástæðan var sú að föður-
bróðir minn féll fyrir þessari óværu
og í okkar hinsta spjalli hvatti hann
mig til þess að undirgangast slíka
rannsókn. Ég skal glaður játa að
ég var talsvert stressaður fyrir öllu
ferlinu, bæði sjálfri aðgerðinni og
undirbúningnum. Nauðsynlegt
var að borða bara tært og fljótandi
fæði í tvo daga fyrir aðgerðina.
Eins og vigtin á heimili mínu gef-
ur sterklega til kynna þá hef ég ekki
misst af máltíð undanfarna ára-
tugi og bjóst því við mikilli próf-
raun. Þetta reyndist þó vera létt og
löður mannlegt verk. Það er í raun-
inni öllum hollt að upplifa svengd
endrum og eins.
Þá var skimunin sjálf mun skárri
en ég hafði gert ráð fyrir. Það var
þó kannski ekki hápunktur mann-
legrar reisnar að klæðast bláum
buxum með hlera aftan á. Ég tók
skammti af kæruleysislyfi fagn-
andi skömmu síðar og síðan vissi
ég varla af mér fyrr en skoðuninni
var lokið. Þá hysjaði ég upp um
mig buxurnar og ég hvet yfirvöld
til þess að fylgja fordæmi mínu í
þessum málaflokki. Lesendur sem
hafa náð 50 ára aldri vil ég ein-
dregið hvetja til þess að panta sér
tíma í slíka skimun hið fyrsta. n
Leiðari
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Fjölmiðlabann í
kjaraviðræðunum
Ríkissáttasemjari hefur nú
brugðið á það ráð að setja
samingafólk í fjölmiðlabann.
Ekki hefur farið fram hjá nein-
um að aukin harka er komin í
kjaraviðræðurnar. Sérstaklega
hvað varðar Eflingu og þeirra
róttæka formann.
Efling hefur boðað verkföll og
Samtök atvinnulífsins brugð-
ið á það ráð að kæra verkföllin.
Ekki er þetta ástand beint til
þess fallið að lægja öldurnar.
Fjölmiðlabanni hefur áður ver-
ið beitt í kjaraviðræðum. Til
dæmis eftir að upp úr slitnaði
í samningaumleitunum sjó-
manna árið 2017.
Lilju hyglað
Lilja Dögg Alfreðsdóttir kynnti í
vikunni aðgerðir til að aðstoða
fólk til kennaranáms. Er þetta
í samræmi við kosningaloforð
Framsóknarflokksins sem Lilja
auglýsti hvað mest sjálf. Meðal
annars verður hægt að sækja
um 800 þúsunda króna náms-
styrk til kennaranáms og starfs-
námið verður launað. Fær hún
nóg af peningum til að setja í
sinn málaflokk.
Vekur þetta spurningar um
aðrar stéttir. Það er ekki aðeins
kennaraskortur í landinu. Mik-
ið vantar af hjúkrunarfræðing-
um, læknum, sálfræðingum og
fleiri sérfræðingum innan heil-
brigðisgeirans. Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra hlýt-
ur að horfa á kynningu Lilju
öfundaraugum.
Spurning vikunnar Hver ættu lágmarkslaun á Íslandi að vera?
„Að minnsta kosti vel yfir 300 þúsund
krónur útborgað.“
Dagný Karlsdóttir
„250 þúsund krónur.“
Guðjón Smári Smárason
„Þannig að þau
dugi til framfærslu.“
Guðrún Ágústsdóttir
„Pass. Get ekki svarað þessu.“
Gísli Þorsteinsson