Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 27
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Vönduð og litrík íslensk hönnun
Í vefversluninni agu.is má finna dásamlega fallegar og skemmti-legar flíkur fyrir börn. Hver flík er
hönnuð, sniðin og saumuð af vand-
virkni á vinnustofu Brynju Daggar
Gunnarsdóttur í Þorlákshöfn og selur
hún flíkurnar í gegnum vefverslun
sína, agu.is. Flíkurnar hafa vakið
verðskuldaða athygli og lukku fyr-
ir litadýrð og skemmtilegar myndir
en ekki síður fyrir hvað þær eru
endingargóðar og úr vönduðu efni.
Íslensk hönnun
„Ég byrjaði að hanna, sníða og sauma
vörurnar 2012 þegar ég var ólétt að
dóttur minni. Árið eftir setti ég upp
Facebook-síðu með vörunum og upp
frá því fór þetta að vinda upp á sig.
Ég hanna barnaföt úr lífrænni og
algerlega eiturefnalausri hágæða
bómull. Efnin eru mjög endingar-
góð og þola þvott afar vel, sem er
óneitanlega mikilvægt þegar kemur
að barnafötum. Þessar flíkur erfast
vel á milli barna því þær endast svo
vel,“ segir Brynja.
Litrík og skemmtileg efni
Efnin sem Brynja notar í flíkurnar
eru ótrúlega falleg, litrík og
skemmtileg með myndum af pöndum,
einhyrningum, blómum, fiðrildum og
alls kyns nattúrumyndum og ævin-
týralegum skepnum. „Börnin hrein-
lega elska þessar flíkur því þær eru
svo litríkar og fallegar. Þetta eru hvort
tveggja efni þar sem ég hanna sjálf
myndirnar, og svo efni sem ég flyt
inn. Það er alltaf að aukast hjá mér
að ég hanni efnin sjálf því þá get ég
leikið mér endalaust með liti, form og
myndir.
Eftir að ég flutti til Þorlákshafnar
og setti upp vinnustofu þar þá opnaði
ég vefverslun á agu.is þar sem allar
vörurnar mínar eru til sölu. Þar getur
fólk fylgst mjög vel með hvað er til og
hvað er væntanlegt,“ segir Brynja.
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðunni agu.is og Facebook-síð-
unni: agu barnavörur
Sími: 695-6050
Vefpóstur: aguhonnun@gmail.com
AGU.IS: