Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 30
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ SPEED STACK: Einbeiting, samhæfing og ótrúlegur hraði Sport Stacking glasastöflun er stórskemmtileg íþrótt sem verður sífellt vinsælli með hverju árinu. „Íþróttin er stunduð í tæplega 50.000 skólum og stofnunum í yfir 50 löndum og það eru haldnar stórar keppnir í þessu úti um allan heim. Á hverju ári er haldið heimsmeistaramót þar sem börn, unglinar og fullorðnir keppa í þessari frábæru íþrótt,“ segir Guðmundur Már Ketilsson. Ekki lengur límd við símann „Glasastöflun er meðal annars inni í námskrá í mörgum bandarískum skól- um. Þá er þetta valfag eins og smíði eða handavinna. Sportið er einnig orðið mjög vinsælt í dönskum skólum en íþróttin var m.a. kynnt þar til þess að vega upp á móti öllum þeim tíma sem börn og unglingar verja í síman- um og á samfélagsmiðlum í frístund- um. Margir eru þá farnir að leika sér í glasastöflun úti í frímínútum í stað þess að vera límd við símann.“ Ótrúlegur hraði Sport stacking gengur út á að stafla plastglösum í fyrirfram ákveðin mynstur, í ákveðinni röð, eins hratt og mögulegt er. Þá er staflað í 3-3-3 mynstur, 3-6-3, og svo í raðmynstur þar sem farið er í gegnum nokkur mynstur. „Þetta hljómar kannski einfalt en þau sem eru flink geta staflað á ótrúlegum hraða og nota til þess tækni sem þau tileinka sér svo stöfl- unin gangi snurðulaust fyrir sig. Heimsmetið í 3-3-3 mynstrinu er 1,3 sekúndur, sem hljómar ótrúlegt, en þeir bestu eru svona snöggir.“ Speed Stacks-glösin Það virkar langbest að notast við Speed Stack-glösin þar sem þau eru sérbyggð fyrir íþróttina. Það er gat á botninum á hverju glasi svo að þau festist ekki saman, staflist vel og renni auðveldlega í sundur og saman. „Við erum með umboð fyrir sölu á Speed Stacks-glösunum á Íslandi og höfum farið í félagsmiðstöðvar og skóla að kynna íþróttina. Við fórum á kynningu hjá Samfés með glösin og í kjölfarið sendum við Speed Stacks-glös í fjölmörg félagsheimili úti á landi. Við stefnum svo að því að halda Íslands- meistaramót í glasastöflun innan tveggja ára.“ Samhæfing og einbeiting Það sem er hvað best við þessa íþrótt er að hún hentar öllum, á öllum aldri. Börn eru fljót að tileinka sér tæknina við að stafla og fullorðnum þykir þetta ekki síður skemmtilegt. Svo henta hefðbundnar hópíþrótt- ir og boltaíþróttir ekki alltaf öllum krökkum og þá koma íþróttir eins og Sport Stacking sterkar inn. Það hafa verið gerðar margar rannsóknir og komið hefur í ljós að þetta er virki- lega holl íþrótt þar sem hún æfir vel samhæfingu milli augna og handa og eykur enn fremur einbeitingu. Þetta er því líka sniðugt sport fyrir þá sem stunda aðrar íþróttir en vilja æfa þessi atriði betur. „Sjálfur er ég ekkert sérlega góður í að stafla, en mér finnst það eigi að síður gaman. Sonur minn, sem er ellefu ára, og vinir hans eru miklu betri en ég og leika sér mikið í þessu.“ Lágt grunngjald Einnig er vert að benda á að það eina sem þarf í sportið er í rauninni Speed Stacks-glösin en mottan kemur sér vel til að draga úr hávaða og halda glösunum stöðugum. Startgjaldið fyrir íþróttina er því mjög lágt miðað við margar aðrar íþróttir og tóm- stundir. „Einnig fylgir ævilöng ábyrgð á glösunum og ef eitt brotnar þá færðu bara nýtt,“ segir Guðmundur. Eins og staðan er í dag þá fást vörurnar eingöngu á síðunni www. speedstacks.is Sími: 690-4920 / 698-8041 Netpóstur: info@speedstacks.is Facebook: Speed Stacks á Íslandi Instagram: Speedstacksisland

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.