Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 30
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
SPEED STACK:
Einbeiting, samhæfing og ótrúlegur hraði
Sport Stacking glasastöflun er stórskemmtileg íþrótt sem verður sífellt vinsælli með
hverju árinu. „Íþróttin er stunduð
í tæplega 50.000 skólum og
stofnunum í yfir 50 löndum og það
eru haldnar stórar keppnir í þessu úti
um allan heim. Á hverju ári er haldið
heimsmeistaramót þar sem börn,
unglinar og fullorðnir keppa í þessari
frábæru íþrótt,“ segir Guðmundur
Már Ketilsson.
Ekki lengur límd við símann
„Glasastöflun er meðal annars inni í
námskrá í mörgum bandarískum skól-
um. Þá er þetta valfag eins og smíði
eða handavinna. Sportið er einnig
orðið mjög vinsælt í dönskum skólum
en íþróttin var m.a. kynnt þar til þess
að vega upp á móti öllum þeim tíma
sem börn og unglingar verja í síman-
um og á samfélagsmiðlum í frístund-
um. Margir eru þá farnir að leika sér
í glasastöflun úti í frímínútum í stað
þess að vera límd við símann.“
Ótrúlegur hraði
Sport stacking gengur út á að stafla
plastglösum í fyrirfram ákveðin
mynstur, í ákveðinni röð, eins hratt
og mögulegt er. Þá er staflað í 3-3-3
mynstur, 3-6-3, og svo í raðmynstur
þar sem farið er í gegnum nokkur
mynstur.
„Þetta hljómar kannski einfalt
en þau sem eru flink geta staflað
á ótrúlegum hraða og nota til þess
tækni sem þau tileinka sér svo stöfl-
unin gangi snurðulaust fyrir sig.
Heimsmetið í 3-3-3 mynstrinu er 1,3
sekúndur, sem hljómar ótrúlegt, en
þeir bestu eru svona snöggir.“
Speed Stacks-glösin
Það virkar langbest að notast við
Speed Stack-glösin þar sem þau eru
sérbyggð fyrir íþróttina. Það er gat á
botninum á hverju glasi svo að þau
festist ekki saman, staflist vel og renni
auðveldlega í sundur og saman. „Við
erum með umboð fyrir sölu á Speed
Stacks-glösunum á Íslandi og höfum
farið í félagsmiðstöðvar og skóla að
kynna íþróttina. Við fórum á kynningu
hjá Samfés með glösin og í kjölfarið
sendum við Speed Stacks-glös í
fjölmörg félagsheimili úti á landi. Við
stefnum svo að því að halda Íslands-
meistaramót í glasastöflun innan
tveggja ára.“
Samhæfing og einbeiting
Það sem er hvað best við þessa
íþrótt er að hún hentar öllum, á öllum
aldri. Börn eru fljót að tileinka sér
tæknina við að stafla og fullorðnum
þykir þetta ekki síður skemmtilegt.
Svo henta hefðbundnar hópíþrótt-
ir og boltaíþróttir ekki alltaf öllum
krökkum og þá koma íþróttir eins og
Sport Stacking sterkar inn. Það hafa
verið gerðar margar rannsóknir og
komið hefur í ljós að þetta er virki-
lega holl íþrótt þar sem hún æfir vel
samhæfingu milli augna og handa
og eykur enn fremur einbeitingu.
Þetta er því líka sniðugt sport fyrir
þá sem stunda aðrar íþróttir en vilja
æfa þessi atriði betur. „Sjálfur er ég
ekkert sérlega góður í að stafla, en
mér finnst það eigi að síður gaman.
Sonur minn, sem er ellefu ára, og vinir
hans eru miklu betri en ég og leika sér
mikið í þessu.“
Lágt grunngjald
Einnig er vert að benda á að það eina
sem þarf í sportið er í rauninni Speed
Stacks-glösin en mottan kemur sér
vel til að draga úr hávaða og halda
glösunum stöðugum. Startgjaldið
fyrir íþróttina er því mjög lágt miðað
við margar aðrar íþróttir og tóm-
stundir. „Einnig fylgir ævilöng ábyrgð
á glösunum og ef eitt brotnar þá
færðu bara nýtt,“ segir Guðmundur.
Eins og staðan er í dag þá fást
vörurnar eingöngu á síðunni www.
speedstacks.is
Sími: 690-4920 / 698-8041
Netpóstur: info@speedstacks.is
Facebook: Speed Stacks á Íslandi
Instagram: Speedstacksisland