Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 32
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Frábærar vörur fyrir börnin
HREIÐUR:
Hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Valgeir Ingason opnuðu vefverslunina hreidur.is í
febrúar árið 2016. Verslunin hefur
frá upphafi skapað sér sérstöðu
með því að bjóða upp á gæðavör-
ur sem eru í senn nýstárlegar og á
afar hagstæðu verði. „Hreiður selur
í raun allt fyrir börnin að undan-
skildum barna fötum og vöruúrvalið
fer síbreikkandi. Við erum alltaf að
taka inn nýjar og spennandi vörur.
Og þar sem við flytjum inn vörurnar
sjálf er engin yfirbygging í rekstri
fyrirtækisins og því getum við boðið
mun hagstæðara verð en ella,“ segir
Guðrún.
Hlaupahjól sem stækkar með
barninu
Vörur frá Globber eru áberandi í
versluninni en um er að ræða fram-
sækin hlaupahjól og hjólabúnað.
Hreiður er eini aðilinn á Íslandi sem
selur þessi hjól en Globber er marg-
verðlaunaður framleiðandi og hjólin
til í ýmiss konar útfærslu fyrir alla
fjölskylduna.
Verðlaunuð hlaupahjól
Globber-hlaupahjólin hafa hlot-
ið fjölda verðlauna og í fyrra hlutu
ELITE-hjólin gullverðlaun ISPO
AWARDS 2018 í Þýskalandi, í
flokknum besta hlaupahjólið fyrir
börn.
Vex með barninu
Ein áhugaverðasta varan er EVO
COMFORT 4in1-hlaupahjól fyrir
börn frá 15 mánaða aldri og upp úr.
Hlaupahjólið vex með með barninu,
svo þegar barnið er mjög ungt geta
foreldrar teymt hjólið á meðan barnið
situr á því. Svo er hjólinu breytt með
einföldum hætti í hefðbundið hlaupa-
hjól sem tekur allt að 50 kílóa þungan
notanda. Globber-hlaupahjólin eru til
í mörgum fallegum litum.
Flottir og traustir hjálmar
Mikið úrval er af öryggishjálmum
fyrir börn og fullorðna frá Globber
í Hreiðri. Hjálmarnir eru allir fyrsta
flokks hágæða hjálmar, sérlega fal-
legir og litaúrvalið er afar breitt.
Skemmtileg leikföng
„Frábærar sveigjanlegar bílabrautir
frá hollenska leikfangahönnuðinum
Waytoplay hafa notið mikilla vin-
sælda hjá okkur undanfarið. Einnig er
vert að kíkja á umhverfisvænu leik-
föngin frá Plan Toys og frábær mjúk-
dýr frá Bukowski Family. Við vorum
að fá sendingu af gullfallegum vörum
frá Sass & Belle sem eru tilvald-
ar í barnaherbergið og bíðum eftir
fleiri vörum frá þeim. Við erum mjög
dugleg að skoða það sem stendur til
boða fyrir börnin og erum sífellt að
panta inn nýjar vörur.“
Hér hefur aðeins fátt verið nefnt í
vöruúrvalinu hjá Hreiðri. „Það er mjög
gott að gera innkaup í aðgengilegri
vefversluninni hreidur.is en það er
líka þægilegt og skemmtilegt fyrir þá
sem hafa tök á, að koma í verslunina
í Auðbrekku 6, þreifa á vörunum og
fá upplýsingar og ráðgjöf hjá okkur,“
segir Guðrún.
Vefverslunin sendir hvert á land
sem er og pantanir yfir 10.000 krónur
eru án aukagjalds.
Fylgstu með okkur á Facebook:
Hreiður.is
Vefpóstur: hreidur@hreidur.is