Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 32
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Frábærar vörur fyrir börnin HREIÐUR: Hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Valgeir Ingason opnuðu vefverslunina hreidur.is í febrúar árið 2016. Verslunin hefur frá upphafi skapað sér sérstöðu með því að bjóða upp á gæðavör- ur sem eru í senn nýstárlegar og á afar hagstæðu verði. „Hreiður selur í raun allt fyrir börnin að undan- skildum barna fötum og vöruúrvalið fer síbreikkandi. Við erum alltaf að taka inn nýjar og spennandi vörur. Og þar sem við flytjum inn vörurnar sjálf er engin yfirbygging í rekstri fyrirtækisins og því getum við boðið mun hagstæðara verð en ella,“ segir Guðrún. Hlaupahjól sem stækkar með barninu Vörur frá Globber eru áberandi í versluninni en um er að ræða fram- sækin hlaupahjól og hjólabúnað. Hreiður er eini aðilinn á Íslandi sem selur þessi hjól en Globber er marg- verðlaunaður framleiðandi og hjólin til í ýmiss konar útfærslu fyrir alla fjölskylduna. Verðlaunuð hlaupahjól Globber-hlaupahjólin hafa hlot- ið fjölda verðlauna og í fyrra hlutu ELITE-hjólin gullverðlaun ISPO AWARDS 2018 í Þýskalandi, í flokknum besta hlaupahjólið fyrir börn. Vex með barninu Ein áhugaverðasta varan er EVO COMFORT 4in1-hlaupahjól fyrir börn frá 15 mánaða aldri og upp úr. Hlaupahjólið vex með með barninu, svo þegar barnið er mjög ungt geta foreldrar teymt hjólið á meðan barnið situr á því. Svo er hjólinu breytt með einföldum hætti í hefðbundið hlaupa- hjól sem tekur allt að 50 kílóa þungan notanda. Globber-hlaupahjólin eru til í mörgum fallegum litum. Flottir og traustir hjálmar Mikið úrval er af öryggishjálmum fyrir börn og fullorðna frá Globber í Hreiðri. Hjálmarnir eru allir fyrsta flokks hágæða hjálmar, sérlega fal- legir og litaúrvalið er afar breitt. Skemmtileg leikföng „Frábærar sveigjanlegar bílabrautir frá hollenska leikfangahönnuðinum Waytoplay hafa notið mikilla vin- sælda hjá okkur undanfarið. Einnig er vert að kíkja á umhverfisvænu leik- föngin frá Plan Toys og frábær mjúk- dýr frá Bukowski Family. Við vorum að fá sendingu af gullfallegum vörum frá Sass & Belle sem eru tilvald- ar í barnaherbergið og bíðum eftir fleiri vörum frá þeim. Við erum mjög dugleg að skoða það sem stendur til boða fyrir börnin og erum sífellt að panta inn nýjar vörur.“ Hér hefur aðeins fátt verið nefnt í vöruúrvalinu hjá Hreiðri. „Það er mjög gott að gera innkaup í aðgengilegri vefversluninni hreidur.is en það er líka þægilegt og skemmtilegt fyrir þá sem hafa tök á, að koma í verslunina í Auðbrekku 6, þreifa á vörunum og fá upplýsingar og ráðgjöf hjá okkur,“ segir Guðrún. Vefverslunin sendir hvert á land sem er og pantanir yfir 10.000 krónur eru án aukagjalds. Fylgstu með okkur á Facebook: Hreiður.is Vefpóstur: hreidur@hreidur.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.