Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Blaðsíða 34
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Barnaloppan í Skeifunni 11d er stórsniðugt framtak sem Guð-ríður Gunnlaugsdóttir og mað-
urinn hennar, Andri Jónsson, settu á
laggirnar í fyrravor. „Hugmyndin var
í grunninn að opna markað þar sem
fólk getur komið og leigt bása til þess
að selja notaðar barnavörur svo sem
barnaföt, leikföng, barnavagna, bíl-
stóla og margt fleira,“ segir Guðríður.
Endurnýting fyrir umhverfið
„Það er gífurlegt magn af barnavör-
um í góðu standi sem fer á haugana
af því að fólk veit ekki hvernig það
getur auðveldlega losað sig við þær.
Það er alger synd því það fer svo ótal
margt til spillis í dag og við þurfum öll
að fara að hugsa betur um umhverf-
ið.“
Barnaloppan er sterkur liður í því
að minnka sóun í nútímasamfélagi.
„Nánast allar vörur hér eru endur-
nýttar og er það meginhugsjónin að
bjóða eingöngu upp á endurnýttar
vörur. Barnavörur eru margar hverjar
notaðar í svo stuttan tíma í senn og
þá sérstaklega fyrstu árin, því krílin
stækka svo hratt. Þess vegna er gott
að fleiri fjölskyldur geti notið þeirra.“
En hvernig virkar þetta?
„Seljandi leigir bás að lágmarki í eina
viku og verðleggur sínar eigin vörur.
Við erum með verðmiða með strik-
amerkjum hér í búðinni og þegar
vörurnar eru komnar í básinn þá sjá-
um við alfarið um restina, aðstoðum
viðskiptavininn og sjáum um söluna
á vörunum. Seljandinn þarf því ekki
að vera sjálfur á staðnum eins og
á sambærilegum mörkuðum. Þá er
hægt að fylgjast með sölunni rafrænt
í gegnum internetið. Við greiðum
seljandanum svo söluhagnaðinn með
millifærslu samdægurs. Þetta getur
varla verið einfaldara!“
Einfalt og þægilegt fyrir þig – og umhverfið allt!
BARNALOPPAN:
1. Bókaðu bás sem hentar þér
Þegar þú bókar bás færðu sendan
aðgang inn á innri síðuna okk-
ar, Loppubókun.is. Þar skráir þú
inn verðin á þeim vörum sem þú
hyggst selja í Barnaloppunni. Við
komu í verslunina verða verðmiðar
með strikamerkjum klárir til af-
hendingar. ATH. Ef óskað er eftir
að selja stærri vörur, eins og t.d.
vagn, kerru eða bílstól, er möguleiki
að koma þeim fyrir á stóra svæð-
inu hjá okkur og kostar það 300 kr.
fyrir hvern hlut og fer greiðsla fram
við komu í verslun. Einnig er hægt
að greiða fyrir tiltekt í básum við
komu í verslun. Nánari upplýsingar
má finna í skilmálum okkar.
2. Komdu vörunum þínum fyrir í
básnum
Við komu í Barnaloppuna verða
þér útvegaðir verðmiðar og herða-
tré. Einnig eru þjófavarnir í boði
og perlur í mismunandi litum
sem settar eru á herðatrén til
að stærðarmerkja, en það er að
sjálfsögðu valkvætt. Þú kemur vör-
unum fyrir, og við mælum með að
tekin sé mynd af básnum til þess
að deila á samfélagsmiðlum og
auglýsa þannig básinn þinn.
3. Við sjáum alfarið um söluna
Við þjónustum viðskiptavini versl-
unarinnar og seljum vörurnar þínar
fyrir þig. Þú getur ávallt fylgst
með sölunni þinni frá degi til dags í
gegnum Loppubókun undir „Yfirlit“,
en við ráðleggjum þó að kíkt sé við
meðan á leigutíma stendur til að
halda básnum snyrtilegum og/eða
fylla á hann.
4. Við greiðum þér út
söluhagnaðinn
Söluhagnaðurinn er greiddur
út með millifærslu og því máttu
gjarnan gefa okkur upp reiknings-
númer og kennitölu þegar þú óskar
eftir greiðslu, hvort sem það er á
miðju tímabili eða í lokin. Millifærsl-
ur eru framkvæmdar sama dag og
greiðslu er óskað. Þóknun er 15% af
heildarsölu.