Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 36
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ Yngsti hópurinn er 5 til 6 ára krakkar sem æfa hér einu sinni í viku en svo verðum við með hópa alveg upp í 17 ára í unglingastarfinu,“ segir Benjamín Mokry, framkvæmdastjóri Klifur- hússins. Innanhússklifur er frábær íþrótt fyrir börn og unglinga, bæði skemmtileg og styrkjandi. Benjamín segir að börn séu mjög fljót að tileinka sé þá tækni sem til þarf í innanhússklifur þó að þau hafi minni líkamsstyrk en f ullorðnir. Á heimsvísu eru margir flinkustu iðkendur innanhússklifurs á unglings- aldri. Boðið er upp á námskeið fram í maí og síðan hefst haustönn í september og stendur fram í desem- ber. Í sumar, frá annarri viku júlí og inn í miðjan ágúst, verða síðan í boði vikulöng námskeið fyrir 6 til 12 ára krakka, frá kl. 8.oo til 16.00. Enginn munur á getu stráka og stelpna Að sögn Benjamins reynir klifrið bæði á styrk og liðleika. „Það er enginn munur á getu stráka og stelpna. Þótt strákarnir fari langt á kraftinum þá eru stelpurnar oftast með betri tækni. Hugtakið tækniklifur er þekkt enda eru tækni og liðleiki mikilvægir þættir í þessu sporti.“ Klifrið eflir allt í senn, þol, liðleika og styrk, og hentar fólki á öllum aldri. „Til dæmis getur maður aldrei orðið of sterk- ur í fingrunum en klifrið eflir mjög fingrastyrk. Það er nokkuð sem fólk er almennt ekki að þjálfa með sér. Fyrsta skiptið er í raun alltaf erfiðast þó svo að sé óneitanlega alltaf skemmtilegt að prófa klifur. En þegar maður byrjar að mæta reglulega í klifur, kannski 2–3 skipti í viku, er maður fljótur að sjá árangurinn og er ótrúlegt hvað sumir hafa náð langt á stuttum tíma,“ segir Benjamín. Frábært fjölskyldusport Klifur er fyrir fólk á öllum aldri og fjölmargir fullorðnir æfa og skemmta sér reglulega í Klifurhúsinu. „Klifur er líka gott sport fyrir alla fjölskylduna þar sem allir klifra á sínu getustigi. Ég klifra til dæmis oft með sex ára syni mínum þar sem hann fer leið sem hentar honum og ég fer mína leið við hliðina á honum,“ segir Benjamín. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum klifurhusid.is og á Facebook- -síðu Klifurhússins. Skráning á nám- skeið fer fram í gegnum Nora-kerfið, sjá nánar á klifurhusid.felog.is. Innanhússklifur er frábært sport fyrir krakka og unglinga KLIFURHÚSIÐ:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.