Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Page 36
Allt fyrir börnin 8. mars 2019KYNNINGARBLAÐ
Yngsti hópurinn er 5 til 6 ára krakkar sem æfa hér einu sinni í viku en svo verðum
við með hópa alveg upp í 17 ára í
unglingastarfinu,“ segir Benjamín
Mokry, framkvæmdastjóri Klifur-
hússins. Innanhússklifur er frábær
íþrótt fyrir börn og unglinga, bæði
skemmtileg og styrkjandi.
Benjamín segir að börn séu mjög
fljót að tileinka sé þá tækni sem til
þarf í innanhússklifur þó að þau
hafi minni líkamsstyrk en f ullorðnir.
Á heimsvísu eru margir flinkustu
iðkendur innanhússklifurs á unglings-
aldri.
Boðið er upp á námskeið fram
í maí og síðan hefst haustönn í
september og stendur fram í desem-
ber. Í sumar, frá annarri viku júlí og
inn í miðjan ágúst, verða síðan í boði
vikulöng námskeið fyrir 6 til 12 ára
krakka, frá kl. 8.oo til 16.00.
Enginn munur á getu stráka og
stelpna
Að sögn Benjamins reynir klifrið bæði
á styrk og liðleika. „Það er enginn
munur á getu stráka og stelpna.
Þótt strákarnir fari langt á kraftinum
þá eru stelpurnar oftast með betri
tækni. Hugtakið tækniklifur er þekkt
enda eru tækni og liðleiki mikilvægir
þættir í þessu sporti.“ Klifrið eflir
allt í senn, þol, liðleika og styrk, og
hentar fólki á öllum aldri. „Til dæmis
getur maður aldrei orðið of sterk-
ur í fingrunum en klifrið eflir mjög
fingrastyrk. Það er nokkuð sem fólk
er almennt ekki að þjálfa með sér.
Fyrsta skiptið er í raun alltaf erfiðast
þó svo að sé óneitanlega alltaf
skemmtilegt að prófa klifur. En þegar
maður byrjar að mæta reglulega
í klifur, kannski 2–3 skipti í viku, er
maður fljótur að sjá árangurinn og er
ótrúlegt hvað sumir hafa náð langt á
stuttum tíma,“ segir Benjamín.
Frábært fjölskyldusport
Klifur er fyrir fólk á öllum aldri og
fjölmargir fullorðnir æfa og skemmta
sér reglulega í Klifurhúsinu. „Klifur er
líka gott sport fyrir alla fjölskylduna
þar sem allir klifra á sínu getustigi. Ég
klifra til dæmis oft með sex ára syni
mínum þar sem hann fer leið sem
hentar honum og ég fer mína leið við
hliðina á honum,“ segir Benjamín.
Nánari upplýsingar er að finna á
vefnum klifurhusid.is og á Facebook-
-síðu Klifurhússins. Skráning á nám-
skeið fer fram í gegnum Nora-kerfið,
sjá nánar á klifurhusid.felog.is.
Innanhússklifur er frábært
sport fyrir krakka og unglinga
KLIFURHÚSIÐ: