Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 37
Allt fyrir börnin 8. mars 2019 KYNNINGARBLAÐ
Leikfélag Flensborgar setur upp söngleikinn SYSTRA AKT í nýjum búningi. Verkið er byggt á
samnefndri kvikmynd og er sýningin
stútfull af nýrri tónlist, gríni og
dönsum.
Leikritið er byggt á hinni geysilega
vinsælu bíómynd, Sister’s Act, sem
Whoopi Goldberg lék aðalhlutverk
ið í á sínum tíma. Þegar skemmti
krafturinn Deloris sér kærasta sinn
fremja morð verður henni umhugað
um sitt eigið líf. Vitnavernd í Saint
Katherinnunnuklaustrinu er það sem
tekur næst við. Henni reynist erfitt að
vera eins og hinar nunnurnar og til
að halda henni frá vandræðum innan
klaustursins er henni falið það verk
efni að taka þátt í kórnum. Þar brýst
gleðin út, en ætli það megi?
„Sagan er ótrúlega skemmtileg,
við vorum fyrst og fremst að leita að
kómísku verki og það er afskaplega
mikil kómík í þessu verki og svo
eru skrautlegir og skemmtilegir
karakterar. Síðast en ekki síst er það
gospel tónlistin sem er fjarskalega
skemmtileg og þar ætlum við að nota
salinn og fá áhorfendur með okkur,“
segir Aldís Ósk Davíðsdóttir, formaður
Leikfélags Flensborgarskóla.
Leikfélagið hefur verið starfandi
lengi en sérlega mikil gróska hefur
verið í starfinu síðustu ár. „Við höf
um verið að setja upp mjög stórar
sýningar sem hafa orðið vinsælar,“
segir Aldís.
12 manna leikhópur heldur uppi
sýningunni en auk hans segir Aldís að
um 10 manna hópur sé til aðstoðar
á ýmsan hátt auk þess að koma að
sviðsmyndinni. Allir 12 leikararnir
syngja á sviðinu en auk þess eru
spilaðar upptökur með söng þeirra og
tónlistarstjórinn er með hljóðfæra
leikinn á tölvu.
Mikil orka fer í sýningu af þessu
tagi og leikkonan sem fer í föt Whoopi
Goldberg og leikur Deloris er til
dæmis á sviðinu allan tímann og fær
ekki sekúndu hvíld. Hún heitir Kolbrún
María Einarsdóttir.
„Það fer mikil vinna í svona sýningu
en við erum svo heppin að Flensborg
er heilsueflandi skóli sem leggur
áherslu á að nemendur hafi svigrúm
til að sinna áhugamálum sínum án
þess að það komi niður á námi. Það
er líka heilmikið nám að taka þátt í
þessu ferli,“ Aldís.
Sýningar verða í Bæjarbíói í
Hafnarfirði. Fimm sýningar eru
skráðar en Aldís segir líklegt að í
það minnsta tvær aukasýningar
bætist við. Uppselt hefur verið á allar
wsýningar leikfélagsins undanfarin ár.
Nánari upplýsingar og miðasala eru á
vefnum midi.is.
Mikil kómík, skrautlegir
karakterar og dásamleg tónlist