Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Síða 42
42 8. mars 2019
Þ
ann 23. ágúst árið 1989
greindi DV frá því að lög
reglan í Hafnarfirði hefði
lagt hald á mikið magn af
skotvopnum. Alls fimmtán hólka
af ýmsum stærðum og gerðum.
Sumar byssurnar voru einhleyp
ur, aðrar tvíhleypur og sumar
marghleypur.
Reyndar var um að ræða svo
kallaðar túttubyssur og hinir
seku voru hópur af börnum úr
Hafnarfirði og Garðabæ. Voru
gerendurnir flestir á aldrinum
tíu til tólf ára og höfðu verið í
stríðsleikjum í Garðabæ.
Túttubyssur eru alls ekki
meinlausar en úr þeim er yfir
leitt skotið steinum eða berjum.
Vel er hægt að brjóta rúður eða
blinda fólk með þeim. Byssurnar
sjálfar eru yfirleitt gerðar úr hvít
um plaströrum, sem afklipptur
„putti“ eða „tútta“ af uppþvotta
hanska er límd á með einangr
unarlímbandi.
Umræddir krakkar höfðu
einmitt skotið á bíl og skemmt
hann töluvert. Þetta voru fyrstu
skemmdirnar sem lögreglan í
Hafnarfirði var vör við af völdum
túttubyssa.
„Þetta getur verið stórhættu
legt,“ sagði einn lögregluþjónn
inn við DV. „Ef hörðum hlut
um er skotið úr þessum byssum
af stuttu færi er eflaust hægt að
skaða fólk, ég tala nú ekki um ef
það sem skotið er úr þessu fer í
augu fólks. Við höfum grun um
að krakkarnir skjóti mest smá
steinum úr þessum byssum.“
Skutu gogginn af önd
Þessi vopnafundur varð ekki til í
tómarúmi. Eiginlegur túttubyssu
faraldur hófst á níunda áratugn
um hjá krökkum landsins. Oft
var skipt í fylkingar og barist á
hentugum svæðum, til dæmis í
kirkjugörðum eða lystigörðum.
Var þetta nokkurs konar litabolti
(paintball) síns tíma.
En börn notuðu túttubyssurn
ar einnig á málleysingja. Árið
1986 greindi DV frá því að ung
lingar á Akureyri hefðu drepið
tvær endur með því að skjóta þær
í höfuðið með túttubyssum. Gerð
ist þetta með nokkurra daga milli
bili á andapollinum, fyrir neðan
sundlaugina.
Þorsteinn Þorsteinsson, sund
laugarvörður og formaður um
hverfismálanefndar bæjarins,
sagði:
„Öndin, sem fannst í fyrradag,
var skotin í hausinn þannig að
goggurinn rifnaði. Öndin gat ekk
ert étið og veslaðist því upp og
drapst að lokum. Það er komið
inn til okkar í sundlaugina annað
slagið og okkur sagt frá krökkum
við andapollinn með túttubyssur.“
Hin öndin drapst samstundis.
Má ætla að þessir unglingar hafi
ekki notað ber við skotleiki sína.
Lýðheilsulegur vágestur
Beinar lýðheilsulegar tölur liggja
fyrir um afleiðingar túttubyssu
æðisins. Túttubyssur orsökuðu
20,6 prósent augnmars reyk
vískra barna á árunum 1984
til 1993. Var greint frá þessu
í Læknablaðinu árið 1995 og
tölurnar fengnar frá Landakots
spítala.
Á þessu tímabili voru 133
börn lögð inn á spítalann vegna
augnslysa, 109 drengir og 24
stúlkur. Rúmur helmingur þeirra
var með augnmar og langflest
slysanna urðu við leik. Í þessari
rannsókn sást að túttubyssuæðið
var í rénun. Á fyrri hluta tímabils
ins höfðu 26,7 prósent augnmars
hlotist af völdum túttubyssa en
aðeins 8,7 prósent á seinni hlut
anum.
Túttubyssur eru nú nánast
horfnar úr menningu barna og
unglinga á Íslandi. En þó stinga
þær annað slagið upp kollin
um. n
LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM
Greiðslulausnir tengdar
helstu afgreiðslukerfum
Allir posar frá
Verifone taka
við snertilausum
greiðslum með
farsímum
Sjálfstandandi greiðslulausnir
og handfrjálsir posar
Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060
Efasemdir um
ágæti bílbelta
F
raman af 20.
öldinni var
engin bílbelta
skylda á Íslandi,
frekar en annars stað
ar í heiminum. Árið
1981 voru slík lög sett
í fyrsta sinn á Íslandi
en þá án viðurlaga og
héldu margir lands
menn áfram að sitja
beltislausir í bílum.
Þegar byrjað var að
sekta árið 1988 breytt
ist það.
Hinar Norður
landaþjóðirnar settu
bílbeltisskyldu á um
miðjan áttunda ára
tuginn. Á þeim tíma
hófst mikil umræða
um bílbeltanotkun
og sitt sýndist hverj
um. Töldu sumir að
bílbeltin heftu frelsi
öku mannsins, yllu
innilokunarkennd og
vanlíðan. Þar að auki
voru efasemdir uppi
um að beltin björguðu
mannslífum.
Vísir spurði veg
farendur hvort lög
leiða ætti bílbelta
notkun, einn ágústdag
árið 1975 og svörin
eru mörg nútímafólki
framandi. n
Vopnabúr gert upp-
tækt í Garðabæ
n Túttubyssuæði íslenskra barna og unglinga
Marghleypa Túttubyssugerð
var frumlegt sport.
Andapollurinn á Akureyri Unglingar stútuðu tveimur öndum.
15 byssur Lögreglan í Hafnarfirði gerði
vopnabúrið upptækt.