Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2019, Side 54
54 SPORT 8. mars 2019
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
Ljósakassar
Ljósaskil
3D stafir
Hönnun
Ráðgjöf
Uppsetning
Hvað er að ungu kynslóðinni?
ÞAÐ líður að verkefni hjá íslenska
karlalandsliðinu í fótbolta og líkt og
undanfarna mánuði stefnir í að nokkra
lykilmenn muni vanta vegna meiðsla.
Það er áhyggjuefni hversu illa gengur að
endurnýja liðið, frá árinu 2013 hefur liðið
þurft að treysta meira og minna á sama
kjarnann. Eiður Smári Guðjohnsen og
Kolbeinn Sigþórsson hafa horfið á braut,
en erfiðlega hefur tekist að fá nýja og
yngri menn til að taka að sér lykil
hlutverk og ábyrgð í liðinu. Þannig
eru gamlir refir enn á sínum stað,
það er ekkert betra í boði.
ÞAÐ verður að teljast slæmt
ástand, að eðlileg endurnýjun í
liðinu hafi ekki átt sér stað. Aðeins
Arnór Sigurðsson virðist ætla
að geta stimplað sig inn af
yngri mönnum í bráð,
hann spilar reglulega
með CSKA Moskvu
í sterkri deild,
stendur sig vel og
frammistaða hans
hefur vakið athygli stærri liða. Arnór er
aðeins 19 ára gamall og er vonarstjarna
íslenska fótboltans, hann þarf samt meiri
hjálp frá yngri mönnum ef gleðin í kringum
fótboltann á að halda áfram á næstu
árum. Bestu ár lykilmanna eru senn á enda.
ÞAÐ fögnuðu því flestir þegar Albert
Guðmundsson, einn hæfileika
ríkasti knattspyrnumaður sem
íslenskur fótbolti hefur séð,
gekk í raðir AZ Alkmaar. Hann
yfirgaf stórlið PSV í Hollandi
og færði sig yfir í minna lið,
flestir töldu að þarna myndi
stj rna Alberts skína skært.
Dvöl hans hjá félaginu hefur
valdið mér vonbrigðum. Albert
verður 22 ára gamall í sumar
og hefur aðeins spilað
1.064 mínútur í
deildarkeppni
með aðalliði.
Sem dæmi má
nefna að Gylfi
Þór Sigurðsson
hafði spilað rúmlega fimm sinnum meira í
deildarkeppni með aðalliði á sama aldri.
ÉG vona að Albert fari að ná flugi með AZ,
hann hefur hæfileika til að sigra heiminn,
er í sterkri deild og hjá félagi sem er tilbúið
til að gefa yngri mönnum tækifærið. Það
væru vonbrigði ef Albert þyrfti að fara
niður eina tröppu til viðbótar til að spila
með aðalliði. Fleiri leikmenn hafa líka
valdið vonbrigðum af kynslóðinni sem
á að taka við, Jón Dagur Þorsteinsson,
Óttar Magnús Karlsson, Kristján Flóki
Finnbogason, Alfons Sampsted, Júlíus
Magnússon, Viktor Karl Einarsson, og
Tryggvi Hrafn Haraldsson eru dæmi um
leikmenn sem eru komnir miklu styttra
á sinni leið sem knattspyrnumenn. Vonir
stóðu til fyrir örfáum árum að þeir yrðu
komnir miklu lengra. Ástæða þess að ég
dreg Albert meira út fyrir sviga og skrifa
meira um hann er að hæfileikarnir þar eru
ótrúlegir, þeir skila mönnum þó aðeins
hálfa leið, og nú þarf þessi öflugi piltur að
hysja upp brækurnar og nýta hæfileikana
til fullnustu.
Dómarinn:
HULDUMAÐUR
ÍSLENSKA FÓTBOLTANS
GRÆÐIR Á TÁ OG FINGRI
n Frederik Lütt hefur aðstoðað KSÍ í
fjölda ára n Ekki fæst gefið upp hvað
KSÍ hefur greitt honum
F
rederik Lütt er nafn sem
fáir ef nokkur knattspyrnu-
áhugamaður á Íslandi vissi
af fyrr en Hjörvar Hafliðason
knattspyrnusérfræðingur fór að
nefna hann á nafn og benda á það
starf sem hann hefur unnið fyrir
KSÍ. Lütt er þýskur viðskiptamað-
ur sem hefur víðtæk tengsl í hin-
um stóra knattspyrnuheimi. Hann
hefur starfað með og fyrir KSÍ í
meira en tíu ár, fyrst fyrir fyrirtæk-
ið SportFive, sem nú hefur ver-
ið lagt niður. Lütt á nú fyrirtækið
Pareteo, en þangað hefur runnið
mikið af fjármunum frá KSÍ vegna
starfa hans.
Lütt hefur komið að samning-
um um sjónvarpsréttindi, bæði
vegna fótboltans á Íslands og
landsleikja. Lütt hefur komið að
samningum KSÍ við Errea, sem sér
um búninga landsliðsins. Flestir af
æfingaleikjum Íslands síðustu ár
eiga rætur sínar að rekja til Lütt.
Lütt hefur þannig náð sambönd-
um í Katar og Asíu, og þangað hef-
ur landsliðið ferðast reglulega, oft-
ar en ekki frítt. Heimildarmaður
DV segir að Lütt hafi þénað vel á
þeim ferðum. Hann hefur hjálp-
að til við markaðsréttindi erlend-
is og fleira. Lütt sést iðulega með
starfsmönnum KSÍ á landsleikjum
og í kringum verkefni liðsins á er-
lendri grundu.
Allt í „köttum“
Knattspyrnuheimurinn getur verið
flókinn, þar snýst allt um að fá
„kött“ eins og sagt er á knattspyrnu-
máli. Þannig gerist lítið án þess að
milliliður fái sinn skerf af kökunni,
miklir fjármunir eru í spilinu og
Lütt hefur veitt KSÍ þjónustu gegn
því að fá „kött“ af þeim upphæðum
sem eru í boði. Ekki er hægt að sjá
út úr ársreikningum KSÍ hversu há
upphæð hefur runnið til Pareteo,
fyrirtækis Lütt. Þeir sem þekkja til
málanna segja DV að Lütt haf feng-
ið tugi milljóna fyrir að hjálpa KSÍ
og líklega yfir 100 milljónir.
Trúnaður um samninga við Lütt
DV sendi fyrirspurn til Klöru Bjart-
marz, framkvæmdarstjóra KSÍ, og
spurði um samstarf sambands-
ins við Lütt en ekki fæst gefið
upp hvað sambandið hefur greitt
honum. ,,Eins og flest, ef ekki öll,
önnur knattspyrnusambönd (og
rekstraraðilar almennt) nýtir KSÍ
sér aðstoð innlendra og erlendra
sérfræðinga í tengslum við ýmis
verkefni. Þar á meðal eru umboðs-
menn sem taka að sér að finna og
semja um vináttuleiki þegar það á
við og hefur það fyrirkomulag gef-
ist vel, bæði knattspyrnulega og
fjárhagslega. Um þessa samninga
ríkir trúnaður eins og almennt
er um samninga sambandsins
og greiðslur vegna þeirra,“ sagði
Klara í svari sínu.
Geir Þorsteinsson gerði samstarfs-
samning við Lütt, sem rann út árið
2017. Síðan þá hefur Guðni Bergs-
son, sem tók við starfinu, nýtt
starfskrafta Lütt áfram: „Freder-
ik Lütt er einn þeirra sérfræðinga
sem KSÍ hefur keypt sérfræði-
aðstoð af og hefur hann komið
að ýmsum verkefnum fyrir KSÍ í
gegnum tíðina. Frederik var með
samstarfssamning við KSÍ sem
rann út 2017 og var ekki endur-
nýjaður. Frederik hefur þó frá
þeim tíma, ásamt fleiri milliliðum
sem KSÍ hefur unnið með, stund-
um aðstoðað við skipulagningu
vináttuleikja eins og venja er til,
en aðkoma hans að þeim verkefn-
um er með nokkuð öðrum hætti
en áður.“ n
Lütt á ferðalagi
með landsliðinu á
Ítalíu, ásamt Geir
Þorsteinssyni, þá
formanni KSÍ.
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is